Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Ég ætlaði fyrst og fremst að spyrja hvað standi til að láta þennan fund ganga langt inn í nóttina. Hér hefur verið þingfundur frá því klukkan hálfellefu í morgun. Ég vil fá að vita hvaða áætlun er uppi um lok þessa þingdags.