Kvikmynd um mansal

Fimmtudaginn 13. mars 2003, kl. 10:35:14 (4879)

2003-03-13 10:35:14# 128. lþ. 99.91 fundur 496#B kvikmynd um mansal# (aths. um störf þingsins), ÁRJ
[prenta uppsett í dálka] 99. fundur, 128. lþ.

[10:35]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Ég var ein þeirra þingmanna sem fór að sjá þessa mynd. Ég verð að taka undir það að ég teldi mjög vel til fundið að þingið stæði fyrir sýningu fyrir þingmenn á þessari mynd. Hún er mjög áhrifamikil.

Ég verð að segja fyrir mitt leyti að hún hefur varla vikið úr huga mér frá því ég sá hana. Ég tel hana vera vopn í baráttunni við þann hryllilega glæp sem þarna er verið að fjalla um og ég tek undir orð hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur um að myndin verði sýnd þingmönnum áður en menn fara til síns heima.