Frsm. utanrmn. (Sigríður A. Þórðardóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 168/2002, um breytingu á XI. viðauka (Fjarskiptaþjónusta) við EES-samninginn. Efni tilskipunar þeirrar sem hér um ræðir hefur þegar verið lögfest á Alþingi með frv. sem hæstv. samgrh. lagði fram á haustþingi og varð að lögum fyrir áramót.
Nefndin leggur einróma til að tillagan verði samþykkt.