Fullvinnsla botnfiskafla um borð í veiðiskipum

Mánudaginn 04. nóvember 2002, kl. 16:26:50 (1016)

2002-11-04 16:26:50# 128. lþ. 21.8 fundur 245. mál: #A fullvinnsla botnfiskafla um borð í veiðiskipum# (uppsjávarfiskur) frv., ÁSJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur, 128. lþ.

[16:26]

Árni Steinar Jóhannsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er svo sem ekki mikið sem ég vil bæta við. Ég fagna því að ráðuneytið skuli vera í þessari vinnu. Hér er um milljarða og sennilega milljarðatugi að ræða. Ég vil bara þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og lýsa ánægju minni með að þessi vinna skuli vera í gangi.