Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að 1. varamaður á lista Sjálfstfl. í Vesturl., Helga Halldórsdóttir, skrifstofumaður Borgarnesi, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.
Virðingarfyllst,
Sturla Böðvarsson.``
Helga Halldórsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.