Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem Katrín Fjeldsted, 14. þm. Reykv., er erlendis á vegum Alþingis og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að 2. varamaður á lista Sjálfstfl. í Reykjavík, Stefanía Óskarsdóttir, taki sæti hennar á meðan en 1. varamaður, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi, er forfallaður.
Virðingarfyllst,
Sigríður A. Þórðardóttir,
formaður þingflokks sjálfstæðismanna.``
Stefanía Óskarsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.