Björgunarsveitir og björgunarsveitarmenn

Mánudaginn 02. desember 2002, kl. 15:37:13 (1935)

2002-12-02 15:37:13# 128. lþ. 43.2 fundur 375. mál: #A björgunarsveitir og björgunarsveitarmenn# frv., GAK
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 128. lþ.

[15:37]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Ég kem eingöngu í þennan ræðustól til þess að lýsa yfir stuðningi við frv. Ég held að það sé mjög þarft að marka björgunarsveitastarfseminni lög, ábyrgðir og skyldur og tryggja að ákveðnar tryggingar og önnur atriði sem snúa að starfi björgunarsveitanna sé til staðar. Eins og gerð er grein fyrir í athugasemdum með frv. hefur skort slíka löggjöf og ég mæli eindregið með því að þetta mál fái skjóta og góða afgreiðslu.