Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjaneskjördæmi, Ágúst Einarsson prófessor, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.
Virðingarfyllst,
Rannveig Guðmundsdóttir, 4. þm. Reykn.``
Ágúst Einarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.