Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 69. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 69  —  69. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um val kvenna við fæðingar.

Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur og Svanfríði Jónasdóttur.



     1.      Hvaða leiðir sér ráðherra færar til að auka val kvenna á fæðingaraðstæðum?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir fleiri möguleikum, t.d. með áherslu á heimafæðingar og fæðingar á minni stofnunum utan hátæknisjúkrahúsa?