Rannsókn kjörbréfa

Mánudaginn 26. maí 2003, kl. 19:49:45 (24)

2003-05-26 19:49:45# 129. lþ. 0.94 fundur 1#B rannsókn kjörbréfa#, Aldursforseti HÁs
[prenta uppsett í dálka] 0. fundur, 129. lþ.

[19:49]

Aldursforseti (Halldór Ásgrímsson):

Það er alveg ljóst að hæstv. dómsmrh. hefur engar skyldur á þessum fundi umfram aðra þingmenn. Þetta mál er í höndum Alþingis en ekki ríkisstjórnar. Þetta mál er algerlega í höndum Alþingis. Hér er um þingsetningarfund að ræða. Það er hins vegar sjálfsagt að upplýsa hæstv. dómsmrh. um að viðveru hans sé óskað hér en ég tel að ráðherrann hafi engar skyldur umfram aðra þingmenn að vera viðstaddur þingfund. En þeirri beiðni skal að sjálfsögðu komið á framfæri.