Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Það er að sjálfsögðu alger oftúlkun að verið sé að grípa inn í prentfrelsið og satt að segja finnst mér mjög sérkennileg þessi eilífa umæða um útvarp Kántrýbæ á Skagaströnd því það er undanþáguákvæði í frv. sem varðar svæðisbundna fjölmiðlun þannig að sú umræða er náttúrlega algerlega út í hött.