Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hefur svohljóðandi bréf frá varaformanni þingflokks Samf., Kristjáni L. Möller, dags. 3. maí:
,,Þar sem Ásta R. Jóhannesdóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, getur ekki af persónulegum ástæðum sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, Einar Karl Haraldsson, taki sæti hennar á Alþingi á meðan.``
Einar Karl Haraldsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.