Útvarpslög og samkeppnislög

Laugardaginn 15. maí 2004, kl. 14:32:24 (8245)

2004-05-15 14:32:24# 130. lþ. 116.3 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 130. lþ.

[14:32]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að þeir lögspekingar sem komu fyrir nefndina kynnu mér litlar þakkir ef þessi túlkun yrði ofan á. Þeir voru, a.m.k. tveir af þremur, á öndverðum meiði og vildu sannfæra okkur um að frv. bryti í bága við stjórnarskrá landsins. Ég er einvörðungu að lýsa minni skoðun. Þetta er sjónarmið mitt, mín skoðun en ekki annarra. Ég er einvörðungu að tala fyrir sjálfan mig hvað þetta snertir.