Guðjón A. Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu):
Hæstv. forseti. Ég skrifaði undir nefndarálitið með fyrirvara. Þær upplýsingar sem vonast var eftir liggja ekki fyrir hvað varðar tekjustreymi af auðlindagjaldinu og hvernig afkoma ríkissjóðs tengist því við niðurfellingu á þróunarsjóðsgjaldinu og í ljósi þess munu þingmenn Frjálsl. sitja hjá við afgreiðslu málsins.