Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Þriðjudaginn 18. maí 2004, kl. 10:23:40 (8519)

2004-05-18 10:23:40# 130. lþ. 119.4 fundur 786. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (afnám gjalda) frv. 51/2004, JÁ (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 119. fundur, 130. lþ.

[10:23]

Jóhann Ársælsson (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Mál þetta er hluti af veiðigjaldshugmynd ríkisstjórnarinnar sem fest var í lög en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur sjútvn. ekki tekist að fá fram upplýsingar um hvernig breytingin kemur út fyrir ríkissjóð á þessu ári. Við teljum ótækt að málið hljóti afgreiðslu með þeim hætti sem hér liggur fyrir, eftir allan þennan tíma. Við treystum okkur ekki til að styðja þetta mál og munum sitja hjá.