Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Frú forseti. Ég hef bara ekki lesið Fréttablaðið í dag, ekki séð það, ég hef ekki haft tíma til þess. (SigurjÞ: Þú vitnar samt í það.) Nei, ég vitnaði í viðtal sem ég held að ég hafi örugglega heyrt í sjónvarpinu í gærkvöldi við þennan ágæta mann. Það er það sem ég hef fyrir mér í því en ég hef ekki lesið Fréttablaðið í dag og hef alveg misst af því. Ég var ekki að vitna í það. Ég heyrði hins vegar þetta viðtal og það var það sem ég var að segja frá. Ég vona að þessi ágæti stjórnarformaður standi við það.