Ávarp aldursforseta

Miðvikudaginn 01. október 2003, kl. 14:19:15 (2)

2003-10-01 14:19:15# 130. lþ. 0.2 fundur 28#B ávarp aldursforseta#, Aldursforseti HÁs
[prenta uppsett í dálka] 0. fundur, 130. lþ.

[14:19]

Aldursforseti (Halldór Ásgrímsson):

Ég býð hv. alþingismenn velkomna til Alþingis. Ég vona að störf Alþingis, 130. löggjafarþings, sem er að hefjast, verði landi voru og þjóð til heilla.

Fyrir hönd okkar alþingismanna vil ég heilsa starfsfólki Alþingis og vænti þess að við megum eiga góða samvinnu við það eins og endranær.