Anna Kristín Gunnarsdóttir (andsvar):
Frú forseti. Það verður að vera mat hvers og eins hvað er merkilegt og hvað er ómerkilegt. Ég ætla hins vegar að benda hv. þm. Drífu Hjartardóttur á að ég notaði aldrei þau orð að þingmenn stjórnarmeirihlutans nenntu ekki að sitja í þingsölum Alþingis við umræður. Ég kann enga skýringu á því. En staðreyndirnar tala hins vegar sínu máli.