Lax- og silungsveiði o.fl.

Mánudaginn 10. nóvember 2003, kl. 17:44:17 (1423)

2003-11-10 17:44:17# 130. lþ. 23.2 fundur 111. mál: #A lax- og silungsveiði o.fl.# (staðfesting bráðabirgðalaga) frv. 116/2003, SigurjÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 130. lþ.

[17:44]

Sigurjón Þórðarson (andsvar):

Frú forseti. Þetta voru ekki mjög skýr svör. Það er greinilegt að hæstv. landbrh. treystir ekki sínum eigin reglum. Hann er ekki tilbúinn til að setja sitt pólitíska líf að veði fyrir þeim reglum sem hann hefur boðað að ættu að vera hinar ströngustu í heimi. Og við sitjum uppi með það hér.