Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég þakka það sem kom fram í máli hv. formanns fjárln. Hafi ég sagt að hv. formaður fjárln. hafi gefið Byrgismönnum loforð þá hef ég mismælt mig. Ég held ég hafi sagt að þeir hafi komið á fund hv. formanns fjárln. og hann hefði tekið vel á móti þeim. Annað held ég hafi ekki sagt um erindi þeirra.