Samningur á sviði refsiréttar um spillingu

Föstudaginn 28. nóvember 2003, kl. 12:54:21 (2302)

2003-11-28 12:54:21# 130. lþ. 38.2 fundur 294. mál: #A samningur á sviði refsiréttar um spillingu# þál., Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur, 130. lþ.

[12:54]

Frsm. utanrmn. (Sólveig Pétursdóttir):

Hæstv. forseti. Utanrmn. hefur fjallað um till. til þál. um fullgildingu samnings á sviði refsiréttar um spillingu og fengið á sinn fund Tómas H. Heiðar og Önnu Katrínu Vilhjálmsdóttur frá utanrrn. og Dís Sigurgeirsdóttur frá dóms- og kirkjumrn.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að fullgilda samning á sviði refsiréttar um spillingu sem gerður var í Strassborg 27. janúar 1999 og undirritaður af Íslands hálfu sama dag.

Gera þarf breytingar á nokkrum ákvæðum almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, með síðari breytingum, og á lögum um refsiábyrgð lögaðila vegna mútugreiðslna og hryðjuverka, nr. 144/1998, með síðari breytingum. Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til breytinga á framangreindum lögum og var málið afgreitt frá allsherjarnefnd Alþingis 20. nóvember síðastliðinn.

Samkvæmt upplýsingum frá dómsmrn. og utanrrn. er talið að þær lagabreytingar sem lagðar eru til í frv. dómsmrh. séu fullnægjandi til að uppfylla skyldur Íslands samkvæmt samningnum.

Jónína Bjartmarz og Rannveig Guðmundsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir nál. rita nöfn sín Sólveig Pétursdóttir, formaður, Bryndís Hlöðversdóttir, Drífa Hjartardóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Bjarni Benediktsson, Magnús Stefánsson og Ágúst Ólafur Ágústsson.