Álfheiður Ingadóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Þetta voru ágætisútreikningar sem formaður efh.- og viðskn. kynnti fyrir okkur hér. Ég vil biðja hann að koma í þennan ræðustól og reikna fyrir okkur á sama hátt hver ávinningur starfsmanns í sveitarfélagi er sem fram að lögfestingu þessa frv. sem hér liggur fyrir hefur notið 0,2% mótframlags á viðbótarlífeyrissparnað sinn sem verður af honum tekinn núna. Við skulum sjá í hvaða hæðir ávöxtunin kemst hjá hv. þm. Pétri H. Blöndal.