Drífa Hjartardóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég vil ítreka að það var aldrei um annað að ræða en 1 milljarð. Það er allverulega há upphæð og verið að auka úr 2,8 milljörðum í 3,8 milljarða í þennan málaflokk. Ég tel þetta ekki vera kjarasamning. Ég lít öðrum augum á kjarasamning en samkomulag. Við samkomulagið hefur fyllilega verið staðið.