Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 130. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 130  —  130. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um úttekt á umfangi skattsvika.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hvenær má vænta niðurstaðna starfshóps sem samkvæmt þingsályktun, er samþykkt var á Alþingi 3. maí 2002, átti að gera úttekt á umfangi skattsvika, skattsniðgöngu og dulinni efnahagsstarfsemi og skila niðurstöðum fyrir 1. júlí sl.?
     2.      Mun ráðherra gera Alþingi grein fyrir niðurstöðunum strax og þær liggja fyrir og upplýsa hvernig brugðist verður við þeim tillögum til úrbóta sem starfshópnum var falið að leggja fram?