Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 566. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 851  —  566. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um skýrslubeiðnir á Alþingi.

Frá Sigurði Kára Kristjánssyni.



     1.      Hve oft hefur verið óskað eftir skýrslum frá ráðherra á Alþingi frá setningu 120. löggjafarþings 1995 fram til ársloka 2003?
     2.      Hver hefur heildarkostnaður ríkissjóðs verið við framkomnar skýrslubeiðnir á fyrrgreindu tímabili samkvæmt verðlagi í árslok 2003?
     3.      Hver hefur kostnaður verið við hverja skýrslu um sig á sama verðlagi?


Skriflegt svar óskast.