Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 200. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 200  —  200. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um vöktun og bókhald yfir útstreymi gróðurhúsalofttegunda.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hvað líður vinnu við undirbúning vöktunar og bókhalds vegna útstreymis og bindingar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi?
     2.      Hverjar eru nýlegar athugasemdir úttektarnefndar skrifstofu loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna til íslenskra stjórnvalda og hverjar eru tillögur þeirra til útbóta?