Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 127. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 127  —  127. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um brúargerð yfir Jökulsá á Fjöllum.

Frá Halldóri Blöndal.



     1.      Hafa verið gerðar ráðstafanir til að tryggja vegasamgöngur ef til eldgoss kemur í Kötlu?
     2.      Telur ráðherra skynsamlegt að flýta brúargerð yfir Jökulsá á Fjöllum vegna hættu á að vegasamband um Suðurland rofni í slíkum eldsumbrotum?
     3.      Hvenær má búast við að undirbúningi og hönnun nýrrar brúar yfir Jökulsá á Fjöllum ljúki?