Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 104. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 104  —  104. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um samstarf við Norðmenn og Dani á sviði öryggismála.

Frá Siv Friðleifsdóttur.



     1.      Er hafin samvinna við Norðmenn og Dani á grundvelli rammasamkomulags og yfirlýsingar frá 26. apríl sl. um samstarf á sviði öryggismála, varnarmála, viðbúnaðar, leitar og björgunar?
     2.      Er unnið að nánari skilgreiningu á því hvað í rammasamkomulaginu og yfirlýsingunni getur falist?