Stjórnlagaþing

Miðvikudaginn 09. júní 2010, kl. 18:32:29 (0)


138. löggjafarþing — 134. fundur,  9. júní 2010.

stjórnlagaþing.

152. mál
[18:32]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu, ég ætla bara að lýsa því yfir að ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um að það þurfi að fara vel með fé. Í þeim efnum þarf að vanda til allra frumvarpa og laga sem hér eru sett og hefði mátt gera betur fyrir löngu. Aðstæður eins og þær eru í dag hvetja okkur vonandi enn frekar til dáða en áður.