138. löggjafarþing — 41. fundur, 8. des. 2009.
ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
76. mál
Virðulegi forseti. Áhættusækni hluta þjóðarinnar hefur leitt okkur í þá erfiðu stöðu sem við glímum nú við að greiða úr. Með því að halda Icesave-málinu óleystu tökum við mikla efnahagslega og pólitíska áhættu. Lausn málsins er einn liður í því að vinna þjóðina út úr efnahagsvandanum. Ég segi já.