Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 396. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 862  —  396. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2009, um breytingu á X. viðauka (Hljóð- og myndmiðlun) og XI. viðauka (Fjarskiptaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bergþór Magnússon og Írisi Lind Sæmundsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Valgerði Benediktsdóttur frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2009, frá 9. júní 2009, um breytingu á X. viðauka (Hljóð- og myndmiðlun) og XI. viðauka (Fjarskiptaþjónusta) við EES-samninginn, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/123/EB frá 12. desember 2006 um þjónustu á innri markaðnum.
    Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/123/EB frá 12. desember 2006, hér eftir nefnd þjónustutilskipunin eða tilskipunin, var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2009 frá 9. júní 2009. Tillaga að þjónustutilskipun var fyrst lögð fram á vettvangi ESB í janúar 2004. Markmiðið var að greiða fyrir og auka þjónustuviðskipti milli landa en þrátt fyrir ákvæði um innri markað voru töluverðar hindranir á frjálsu flæði þjónustu enn til staðar sem komu niður á bæði þjónustuveitendum og neytendum. Tillagan fékk mikla athygli og var pólitískt umdeild, sér í lagi vegna ákvæða um heilbrigðisþjónustu og vinnurétt sem voru upphaflega í tillögunni. Hin svokallaða upprunalandsregla var einnig afar umdeild og óttast var að hún fæli í sér félagsleg undirboð, en samkvæmt henni giltu um þjónustuveitanda reglur þess lands þar sem hann var með staðfestu en ekki þar sem þjónustan var veitt.
    Í ljósi þeirrar miklu gagnrýni sem tillagan hlaut lagði framkvæmdastjórnin fram nýja tillögu þar sem tekin voru út ákvæði um heilbrigðisþjónustu og vinnurétt og verulegar breytingar gerðar á upprunalandsreglunni. Sú tillaga var samþykkt í desember 2006. Tilskipunin fékk töluverða athygli í Noregi og gerðu Norðmenn ítarlegar úttektir á hinum ýmsu afleiðingum tilskipunarinnar. Að lokum náðist þó samstaða um hana og var hún eins og áður segir tekin upp í EES-samninginn 9. júní 2009.
    Tilgangur þjónustutilskipunarinnar er að koma á raunverulegum innri markaði á sviði þjónustuviðskipta með því að fjarlægja lagalegar og stjórnsýslulegar hindranir svo að þjónustuveitendur og viðtakendur þjónustu eigi auðveldara með að veita og nýta sér þjónustu yfir landamæri. Tilskipunin á að tryggja þjónustuveitendum þau grundvallarréttindi sem kveðið er á um í 32. og 36. gr. EES-samningsins og innri markaðurinn byggist á, þ.e. staðfestufrelsi og frelsi til að veita þjónustu. Með afnámi hindrana verður auðveldara fyrir þjónustuveitendur að veita þjónustu án staðfestu, sem jafnframt eykur samkeppni og leiðir því til hagræðis fyrir viðtakendur þjónustu í formi lægra verðs og meiri gæða.
    Nefndin hefur kynnti sér yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna þjónustutilskipunarinnar en hún er eftirfarandi:
    „Við upptöku þjónustutilskipunarinnar (2006/123/EB) í EES-samninginn er minnt á af hálfu Íslands að tilskipunin hefur m.a. ekki áhrif á ráðningarskilmála og -skilyrði, samskipti milli aðila vinnumarkaðarins, réttinn til þess að semja um og ganga frá kjarasamningum og grundvallarréttindi, s.s. verkfallsréttinn og réttinn til að grípa til aðgerða á vinnustað. Þjónustutilskipunin hefur ekki áhrif á vinnulöggjöf eða þríhliða samvinnu verkalýðsfélaga, vinnuveitenda og stjórnvalda.
    Af Íslands hálfu er lögð áhersla á að hin víðtæka samstaða meðal Íslendinga um að gera áætlanir um aðgerðir, svo og viðeigandi ráðstafanir, sem miða að því að standa vörð um réttindi innlendra og útsendra starfsmanna og góðan aðbúnað á vinnustöðum, stríði ekki gegn þjónustutilskipuninni. Þær ráðstafanir geta m.a. náð yfir skilvirkt kerfi um almenna beitingu kjarasamninga og innleiðingu sameiginlegrar ábyrgðar verktaka og undirverktaka til þess að tryggja að réttindi vinnandi fólks séu virt.
    Af Íslands hálfu er lögð áhersla á að það verði áfram á valdsviði innlendra yfirvalda – á öllum stigum stjórnsýslunnar, ríkisvalds og sveitarstjórna – að ákvarða í hvaða mæli hið opinbera skuli veita þjónustu, hvernig hún skuli skipulögð og fjármögnuð og hvaða sérstöku kvaðir skuli gilda um slíka opinbera þjónustu.“
    Yfirlýsing þessi er forsenda þess að íslensk stjórnvöld fallast á innleiðingu þjónustutilskipunarinnar hér á landi. Nefndin telur rétt að vísa sérstaklega til yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tillögugreininni og gerir því breytingartillögu þar um.
    Þá telur nefndin æskilegt að í heiti tillögunnar komi fram að um er að ræða heimild til staðfestingar á ákvörðun um að fella þjónustutilskipunina inn í EES-samninginn. Nefndin gerir því tillögu til breytingar á heiti þingsályktunartillögunnar.
    Til að innleiða ákvæði tilskipunarinnar var ákveðið að semja rammafrumvarp þar sem helstu efnisákvæði tilskipunarinnar eru tekin upp en það nefnist frumvarp til laga um þjónustuviðskipti á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins. Frumvarpið var lagt fyrir yfirstandandi þing og í kjölfar 1. umræðu var því vísað til viðskiptanefndar.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGUM:



     1.      Tillögugreinin orðist svo:
                  Alþingi ályktar með vísan í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um þjónustutilskipun Evrópusambandsins, sem samþykkt var á ríkisstjórnarfundi 26. maí 2009, að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2009, frá 9. júní 2009, um að fella inn í EES-samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/123/EB frá 12. desember 2006 um þjónustu á innri markaðnum (Þjónustutilskipun), og breytingu á X. viðauka (Hljóð- og myndmiðlun) og XI. viðauka (Fjarskiptaþjónusta) við samninginn.
     2.      Heiti tillögunnar orðist svo: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2009, um að fella inn í EES-samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/123/EB frá 12. desember 2006 um þjónustu á innri markaðnum (Þjónustutilskipun), og um breytingu á X. viðauka (Hljóð- og myndmiðlun) og XI. viðauka (Fjarskiptaþjónusta) við samninginn.

Alþingi, 18. mars 2010.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Gunnar Bragi Sveinsson.


Helgi Hjörvar.



Valgerður Bjarnadóttir.


Þorgerður K. Gunnarsdóttir.


Þórunn Sveinbjarnardóttir.



Ögmundur Jónasson.