Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 593. máls.

Þskj. 996  —  593. mál.



Tillaga til þingsályktunar

um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2010.

(Lögð fyrir Alþingi á 138. löggjafarþingi 2009–2010.)




    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2010 sem gerðir voru í London 22. október 2009:
     1.      Sameiginlega bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk- íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2010.
     2.      Samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands á árinu 2010.
     3.      Samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2010.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.


    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á eftirtöldum samningum um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2010 sem gerðir voru í London 22. október 2009: 1. sameiginlegri bókun milli Evrópubandalagsins, Færeyja, Íslands, Noregs og Rússneska sambandsríkisins um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2010; 2. samkomulagi milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands á árinu 2010; og 3. samkomulagi milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2010. Sameiginlega bókunin er prentuð sem fylgiskjal I með þingsályktunartillögu þessari, samkomulagið við Noreg sem fylgiskjal II og samkomulagið við Rússneska sambandsríkið sem fylgiskjal III.
    Á fundi strandríkjanna Íslands, Færeyja, Noregs og Rússlands, auk Evrópubandalagsins, í London 21. og 22. október 2009 náðist samkomulag um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2010. Í samræmi við ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) og fyrri ákvörðun aðila um nýtingarstefnu til lengri tíma var heildaraflamark ákveðið 1.483.000 lestir, sbr. sameiginlegu bókunina, fylgiskjal I. Veiðiheimildir aðila skiptast í sömu hlutföllum og verið hefur frá árinu 2007 og verða á árinu 2010 sem hér segir:

    Ísland                    215.183     lestir
    Færeyjar               76.523     lestir
    Noregur               904.630     lestir
    Rússneska sambandsríkið     190.121     lest
    Evrópubandalagið     96.543     lestir

    Í sameiginlegu bókuninni er sem fyrr gert ráð fyrir að heimilt verði að færa hluta kvóta milli ára til að skapa sveigjanleika við nýtingu veiðiheimildanna. Hver aðili getur fært ónotaðan hluta veiðiheimildar, allt að 10% af þeim kvóta sem honum er úthlutað fyrir árið 2010, yfir á þann kvóta sem honum verður úthlutað fyrir árið 2011. Hver aðili getur einnig heimilað skipum sínum að veiða allt að 10% umfram hinn úthlutaða kvóta á árinu 2010 og skal þá það magn, sem veitt er umfram kvótann fyrir árið 2010, dregið frá kvóta aðilans fyrir árið 2011.
    Samhliða hinni fimmhliða sameiginlegu bókun voru gerðir ýmsir tvíhliða samningar milli aðilanna, einkum um heimildir til síldveiða í lögsögu hvers annars á árinu 2010. Samkvæmt tvíhliða samkomulagi milli Íslands og Noregs, sbr. fylgiskjal II, fá íslensk skip ótakmarkaðan aðgang að fiskveiðilögsögu Jan Mayen og mega veiða 40.041 lest af kvóta Íslands í efnahagslögsögunni við meginland Noregs norðan 62°N. Norsk skip fá heimild til að veiða 104.273 lestir í íslenskri lögsögu. Veiði íslensk fiskiskip minna en 29.660 lestir af síld í efnahagslögsögu Noregs á árinu 2010 mun Noregur færa 1.483 lestir af síldarkvóta sínum á árinu 2011 til Íslands.
    Samkvæmt tvíhliða samkomulagi milli Íslands og Rússlands er rússneskum skipum veitt heimild til að veiða allt að 6.388 lestir á takmörkuðu svæði í austurhluta efnahagslögsögu Íslands, sbr. fylgiskjal III.
    Tekið skal fram að í samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2010, sem gengið var frá með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík 9. og 22. mars 2010, er kveðið á um að skipum hvors aðila verði heimilt að veiða allan sinn kvóta í norsk-íslenskri síld í lögsögu hins. Samhliða þingsályktunartillögu þessari er lögð fram þingsályktunartillaga um staðfestingu þess samnings.
    Sameiginlegu bókuninni og tvíhliða samningum á grundvelli hennar skal beitt til bráðabirgða frá og með 1. janúar 2010. Bókunin og samningarnir öðlast gildi þegar allir aðilar hafa tilkynnt hver öðrum um að nauðsynlegri innlendri málsmeðferð sé lokið.

Fylgiskjal I.


SAMEIGINLEG BÓKUN

um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2010.


1.     Sendinefnd Færeyja undir forystu Andras Kristiansen, sendinefnd Evrópubandalagsins undir forystu John Spencer, sendinefnd Íslands undir forystu Hrefnu Karlsdóttur, sendinefnd Noregs undir forystu Sigrun M. Holst og sendinefnd Rússneska sambandsríkisins undir forystu Sergey Belikov hittust í London 21. og 22. október 2009 til að eiga viðræður um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2010.

2.     Sendinefndirnar komu sér saman um að leggja til, hver við sín yfirvöld, að því fyrirkomulagi um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2010, sem greinir í I. viðauka við bókun þessa, verði komið á. Sendinefndirnar lýstu þeirri ætlan sinni að leitast við að ná stöðugleika í hlutdeild aðila í fyrirkomulagi stjórnunar í framtíðinni. Enn fremur komu þær sér saman um að leggja til, hver við sín yfirvöld, það fyrirkomulag langtímastjórnunar sem greinir í II. viðauka.
3.     Bókun þessari, ásamt tvíhliða samningum sem tengjast framkvæmd hennar, skal beitt til bráðabirgða frá og með 1. janúar 2010 og öðlast bókunin og samningarnir gildi þegar allir aðilar hafa tilkynnt hver öðrum um að nauðsynlegri málsmeðferð þeirra sé lokið.
4.     Sendinefndirnar komu sér saman um að fara þess á leit að Færeyjar, sem gestgjafi viðræðnanna, láti Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndinni (NEAFC) í té eintak af þessari sameiginlegu bókun ásamt viðaukunum við hana.

Gjört í London 22. október 2009 í fimm frumeintökum á ensku.

Fyrir sendinefnd Færeyja
Andras Kristiansen

Fyrir sendinefnd Evrópubandalagsins
John Spencer

Fyrir sendinefnd Íslands
Hrefna Karlsdóttir

Fyrir sendinefnd Noregs
Sigrun M. Holst

Fyrir sendinefnd Rússneska sambandsríkisins
Sergey Belikov

I. VIÐAUKI


1.     Leyfilegur heildarafli úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2010 er ákveðinn 1.483.000 lestir.

2.     Samkvæmt framantöldu munu aðilar takmarka veiðar sínar úr síldarstofninum á árinu 2010 á grundvelli eftirfarandi kvóta:
    Evrópubandalagið     96.543     lestir
    Færeyjar                    76.523     lestir
    Ísland                    215.183     lestir
    Noregur                    904.630     lestir
    Rússneska sambandsríkið     190.121     lest
3.     Hver aðili getur fært ónotaðan hluta, allt að 10% af þeim kvóta sem honum er úthlutað fyrir árið 2010, yfir á þann kvóta sem honum verður úthlutað fyrir árið 2011. Slík færsla kemur til viðbótar þeim kvóta sem aðilanum er úthlutað fyrir árið 2011.
4.     Hver aðili getur heimilað skipum sínum að veiða allt að 10% umfram hinn úthlutaða kvóta. Allt það magn sem veitt er umfram hinn úthlutaða kvóta fyrir árið 2010 skal dregið frá úthlutun til aðilans fyrir árið 2011.
5.     Aðilar munu láta í té upplýsingar um kvóta og afla á því formi sem sett er fram í viðbæti við þennan viðauka.
6.     Aðilar koma sér tvíhliða saman um aðrar ráðstafanir, m.a. um heimildir til veiða hver í annars fiskveiðilögsögu og önnur skilyrði fyrir veiðum þar.


II. VIÐAUKI

Fyrirkomulag langtímastjórnunar veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum.


    Aðilar voru sammála um að framkvæma langtímastjórnunaráætlun vegna veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum sem sé í samræmi við varúðarleiðina og sé ætlað að halda nýtingu innan öruggra líffræðilegra marka og tryggja sjálfbærar veiðar. Áætlunin skal samanstanda af eftirfarandi:

1.    Leitast skal við eftir fremsta megni að halda hrygningarstofninum yfir hættumörkunum (B lim) 2.500.000 tonnum.
2.    Að því er árið 2010 og eftirfarandi ár varðar voru aðilar sammála um að takmarka veiðar sínar á grundvelli leyfilegs heildarafla í samræmi við fiskveiðidánarstuðul undir 0,125 fyrir viðeigandi aldurshópa eins og skilgreint er af ICES, nema vísindaráðgjöf í framtíðinni krefjist breytinga á þessum fiskveiðidánarstuðli.
3.    Skyldi hrygningarstofninn minnka niður fyrir viðmiðunarmörkin 5.000.000 tonn (B pa) skal aðlaga fiskveiðidánarstuðulinn sem getið er um í 2. mgr. í ljósi vísindalegs mats á ríkjandi aðstæðum til að tryggja að hrygningarstofninum verði með öruggum og skjótum hætti komið yfir 5.000.000 tonn. Grundvöllur slíkrar aðlögunar skal vera a.m.k. hlutfallsleg lækkun fiskveiðidánarstuðuls frá 0,125 við B pa (5.000.000 tonn) niður í 0,05 við B lim (2.500.000 tonn).
4.    Aðilar skulu, eftir því sem við á, endurskoða þessar stjórnunarráðstafanir og nýtingarstefnu á grundvelli nýrrar ráðgjafar sem ICES lætur í té.


AGREED RECORD


of Conclusions of Fisheries Consultations on the Management of the Norwegian Spring- Spawning (Atlanto-Scandian) Herring Stock in the North-East Atlantic for 2010


1.     A Delegation of the Faroe Islands, headed by Mr Andras Kristiansen, a Delegation of the European Community, headed by Mr John Spencer, a Delegation of Iceland, headed by Ms Hrefna Karlsdóttir, a Delegation of Norway, headed by Ms Sigrun M. Holst, and a Delegation of the Russian Federation, headed by Mr Sergey Belikov, met in London on 21 to 22 October 2009 to consult on the management of the Norwegian Spring-Spawning (Atlanto-Scandian) herring stock for 2010.
2.     The Delegations agreed to recommend to their respective authorities the arrangement for the regulation of the Norwegian Spring-Spawning (Atlanto- Scandian) herring stock in 2010 set out in Annex I to this Agreed Record. The Delegations stated their intention of retaining stability in the relative shares of the Parties in arrangements for future years. Furthermore, they agreed to recommend to their respective authorities the long-term management arrangement set out in Annex II.
3.     This Agreed Record, including the bilateral arrangements related to the implementation of this Agreed Record, shall be applied provisionally from 1 January 2010 and enter into force when all Parties have notified each other of the completion of their necessary procedures.
4.     The Delegations agreed to request the Faroe Islands as host of the consultations, to provide the North-East Atlantic Fisheries Commission (NEAFC) with a copy of this Agreed Record and its Annexes.


Done at London, 22 October 2009 in five originals in English.

For the Delegation of the Faroe Islands
Andras KRISTIANSEN

For the Delegation of the European Community
John SPENCER

For the Delegation of Iceland
Hrefna KARLSDÓTTIR

For the Delegation of Norway
Sigrun M. HOLST

For the Delegation of the Russian Federation
Sergey BELIKOV

ANNEX I


1.     A TAC (total allowable catch) for the Norwegian Spring-Spawning (Atlanto-Scandian) herring stock of 1,483,000 tonnes is established for 2010.
2.     In keeping with the above, the Parties will restrict their fishing on the herring stock in 2010 on the basis of the following quotas:
    European Community     96,543     tonnes
    Faroe Islands          76,523     tonnes
    Iceland                    215,183     tonnes
    Norway                    904,630     tonnes
    Russian Federation     190,121     tonnes
3.     Each Party may transfer unutilised quantities of up to 10% of the quota allocated to the Party for 2010 to the quota allocated to that Party for 2011. Such transfer shall be in addition to the quota allocated to the Party concerned for 2011.
4.     Each Party may authorise fishing by its vessels of up to 10% beyond the quota allocated. All quantities fished beyond the allocated quota for 2010 shall be deducted from the Party's allocation for 2011.

5.     The Parties will provide information regarding quotas and catches in the format set out in the Appendix to this Annex.
6.     Further arrangements, including arrangements for access and other conditions for fishing in the respective zones of fisheries jurisdiction of the Parties, are regulated by bilateral arrangements.

ANNEX II

Arrangement on the Long-Term Management of the Norwegian Spring-Spawning (Atlanto-Scandian) Herring Stock


    The Parties agreed to implement a long-term management plan for the Norwegian Spring-Spawning (Atlanto-Scandian) herring stock, which is consistent with a precautionary approach, intended to constrain harvesting within safe biological limits and designed to provide for sustainable fisheries. The plan shall consist of the following:
1.    Every effort shall be made to maintain a level Spawning Stock Biomass (SSB) greater than the critical level (B lim) of 2,500,000 tonnes.
2.    For 2010 and subsequent years, the Parties agreed to restrict their fishing on the basis of a TAC consistent with a fishing mortality rate of less than 0.125 for appropriate age groups as defined by ICES, unless future scientific advice requires modification of this fishing mortality rate.
3.    Should the SSB fall below a reference point of 5,000,000 tonnes (B pa), the fishing mortality rate, referred to under paragraph 2, shall be adapted in the light of scientific estimates of the conditions then prevailing to ensure a safe and rapid recovery of the SSB to a level in excess of 5,000,000 tonnes. The basis for such adaptation should be at least a linear reduction in the fishing mortality rate from 0.125 at B pa (5,000,000 tonnes) to 0.05 at B lim (2,500,000 tonnes).
4.    The Parties shall, as appropriate, review and revise these management measures and strategies on the basis of any new advice provided by ICES.


Fylgiskjal II.


SAMKOMULAG

milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands.


    Í samræmi við 3. mgr. sameiginlegrar bókunar um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur- Atlantshafi á árinu 2010 milli Íslands, Evrópubandalagsins, Færeyja, Noregs og Rússneska sambandsríkisins 22. október 2009 hafa verið gerðir sérstakir tvíhliða samningar um veiðar aðila í fiskveiðilögsögu hvers annars.


    Að því er varðar Ísland og Noreg verður fyrirkomulagið sem hér segir:
    Íslenskum fiskiskipum er á árinu 2010 heimilt að veiða 215.183 lestir af síld í fiskveiðilögsögu Jan Mayen og í efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, þar af að hámarki 40.041 lestir í efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N.

    Norskum fiskiskipum er á árinu 2010 heimilt að veiða allt að 104.273 lestir af síld í efnahagslögsögu Íslands.
    Í því tilviki að íslensk fiskiskip veiða minna en 29.660 lestir af síld í efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N á árinu 2010 mun Noregur færa 1.483 lestir af síldarkvóta sínum á árinu 2011 til Íslands.

    Aðilar munu semja um nánari skilyrði varðandi veiðarnar.

Gjört í London 22. október 2009.

Fyrir hönd íslensku     Fyrir hönd norsku
sendinefndarinnar:          sendinefndarinnar:

Hrefna Karlsdóttir          Sigrun M. Holst


ARRANGEMENT

between Iceland and Norway on Access to the Norwegian Economic Zone North of 62°N, the Fishery Zone around Jan Mayen and the Icelandic Exclusive Economic Zone


    In accordance with paragraph 3 of the Agreed Record of Conclusion of Fisheries Consultations on the Management of the Norwegian Spring-Spawning (Atlanto-Scandian) herring stock in the North-East Atlantic for 2010 between Iceland, the European Community, the Faroe Islands, Norway and the Russian Federation of 22 October 2009, separate bilateral arrangements on access to the respective zones of fisheries jurisdiction of the Parties have been concluded.
    The following arrangement between Iceland and Norway shall apply:
    Icelandic fishing vessels are granted access in 2010 to fish 215,183 tonnes of herring in the Fishery Zone around Jan Mayen or in the Norwegian Economic Zone north of 62°N, of which a maximum of 40,041 tonnes of herring may be fished in the Norwegian Economic Zone north of 62°N.
    Norwegian fishing vessels are granted access in 2010 to fish 104,273 tonnes of herring in the Icelandic Exclusive Economic Zone.
    In the event that Icelandic fishing vessels catch less than 29,660 tonnes of herring in the Norwegian Economic Zone north of 62°N during 2010, Norway will transfer 1,483 tonnes of its herring quota for 2011 to Iceland.
    The Parties will agree upon further provisions on the conditions of the fisheries.

Done at London, 22 October 2009


For the Icelandic          For the Norwegian
Delegation                    Delegation

Hrefna KARLSDÓTTIR     Sigrun M. HOLST


Fylgiskjal III.


SAMKOMULAG

milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2010.


1.     Með vísan til sameiginlegrar bókunar um niðurstöður viðræðna um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2010, sem undirrituð var í dag af Íslandi, Evrópubandalaginu, Færeyjum, Noregi og Rússneska sambandsríkinu, hafa sendinefndir Íslands og Rússneska sambandsríkisins komið sér saman um að rússneskum fiskiskipum verði veitt heimild til að veiða á árinu 2010 allt að 6.388 lestir af síld innan efnahagslögsögu Íslands utan línu sem er dregin milli eftirtalinna punkta:     
    A.     64°00'N – 09°00'V
    B.     67°00'N – 09°00'V
    C.     69°25'N – 13°00'V
2.     Aðilar munu semja um nánari skilyrði varðandi veiðarnar.

London, 22. október 2009.


Fyrir hönd                    Fyrir hönd sendinefndar
sendinefndar Íslands:     Rússneska sambandsríkisins:

Hrefna Karlsdóttir          Sergey Belikov


ARRANGEMENT

between Iceland and the Russian Federation
on Access to the Icelandic Exclusive Economic Zone in 2010


1.     With reference to the Agreed Record of Conclusions signed today between Iceland, the European Community, the Faroe Islands, Norway and the Russian Federation on the Management of the Norwegian Spring-Spawning (Atlanto-Scandian) herring stock in the North-East Atlantic for 2010, the Delegations of Iceland and the Russian Federation have agreed that Russian fishing vessels shall be granted access in 2010 to take up to 6.388 tonnes of herring within the Icelandic Exclusive Economic Zone outside a line drawn between the following points:
    A.     64°00´N – 09°00´W
    B.     67°00´N – 09°00´W
    C.     69°25´N – 13°00´W
2.     The Parties will agree upon further provisions on the conditions of the fisheries.

London, 22 October 2009


For the Delegation          For the Delegation
of Iceland                    of the Russian Federation

Hrefna KARLSDÓTTIR     Sergey BELIKOV