Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 274. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 317  —  274. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um aukna fræðslu í skólum um skaðsemi áfengis.

Flm.: Árni Johnsen, Ólöf Nordal, Sigurður Ingi Jóhannsson,


Vigdís Hauksdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson.



    Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að beita sér fyrir því að aukin verði fræðsla um skaðsemi áfengis í grunn- og framhaldsskólum.

Greinargerð.


    Rannsóknir benda til að undanfarin ár hafi dregið úr ölvunardrykkju ungmenna á grunnskólaaldri. Sömu þróunar gætir meðal framhaldsskólanemenda þó að samdráttur neyslu sé þar minni. Rannsóknir sýna einnig að fjöldi ungmenna sem neytir áfengis meira en tvöfaldast á þeim örfáum mánuðum frá því að grunnskóla lýkur og framhaldsskólanám hefst. Það er því brýnt að taka enn fastar á í áfengismálum íslenskra ungmenna. Fyrir því liggja gild rök.
    Niðurstöður fjölmargra rannsókna sýna að unglingar sem byrja að neyta áfengis um eða fyrir fimmtán ára aldur eru í fjórum sinnum meiri hættu á að ánetjast alkóhóli eða öðrum vímuefnum og verða fyrir skaða en þeir sem byrja að drekka eftir tvítugt. Það er því mikilvægt að komið sé í veg fyrir að fólk undir tvítugu neyti áfengis.
    Skaðsemi áfengisdrykkju fyrir tvítugt er fjölþætt. Því yngri sem unglingar eru þegar þeir byrja að neyta áfengis og því meira magn sem þeir drekka, þeim mun verri áhrif hefur áfengisneyslan á heila þeirra. Þroskatími heilans fram að tvítugu er afar mikilvægur enda verður heilinn ekki fullþroska fyrr en við tuttugu ára aldur. Auk framangreinds má benda á að önnur heilsutengd vandamál, vandamál tengd félagslegri hæfni og hegðunarvandamál hafa talist til fylgifiska slíkrar áfengisneyslu. Þá er rétt að benda á þau hliðrænu áhrif sem felast í skorti á dómgreind sem leiðir til glannaskapar, slysa vegna ölvunaraksturs, ofbeldis, misnotkunar og sjálfsvíga. Hætta á þunglyndi er mun meiri meðal unglinga sem neyta áfengis en þeirra sem ekki drekka. Slíkir unglingar kljást frekar við sjálfsvígshugsanir, eiga oftar í félagslegum vanda og árásargirni þeirra eykst í hlutfalli við drykkjuna.
    Hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni liggja fyrir upplýsingar um að allt að fjórðungur dauðsfalla Evrópubúa á aldrinum 15–29 ára séu óbeinar afleiðingar áfengisneyslu, svo sem vegna umferðarslysa, eitrana, sjálfsvíga og morða.