Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 678. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Nr. 46/139.

Þskj. 1951  —  678. mál.


Þingsályktun

um fullgildingu Árósasamnings um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum sem gerður var í Árósum 25. júní 1998.

Samþykkt á Alþingi 16. september 2011.