Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 350. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 795  —  350. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit



um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu
EES-nefndarinnar nr. 97/2011 um breytingu á X. viðauka
(Almenn þjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jóhönnu Bryndísi Bjarnadóttur og Bergþór Magnússon frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 97/2011, frá 30. september 2011, um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2010/425/ESB frá 28. júlí 2010 um breytingu á ákvörðun 2009/ 767/EB að því er varðar að semja, viðhalda og birta áreiðanlegar skrár um þá vottunaraðila sem aðildarríkin hafa eftirlit með eða veita faggildingu. Sex mánaða frestur, samkvæmt EES-samningnum, til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara er veittur til 30. mars 2012. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála frá 1. október 2010.
    Tilgangur ákvörðunarinnar er eingöngu tæknilegs eðlis, þ.e. að fyrrgreindar skrár verði véllæsilegar í stað þess að vera einungis læsilegar mönnum.
    Innleiðing ákvörðunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og mun fyrirhugað frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um breytingu á lögum um rafrænar undirskriftir, nr. 28/2001, með síðari breytingum, fjalla um það efni. Að líkindum kemur frumvarpið til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Bjarni Benediktsson, Helgi Hjörvar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 14. febrúar 2012.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Gunnar Bragi Sveinsson.


Illugi Gunnarsson.



Mörður Árnason.


Sigmundur Ernir Rúnarsson.


Þuríður Backman.