Framkvæmd þingsályktunarinnar
Þingskjal 959 — 609. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2012 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
(Lögð fyrir Alþingi á 140. löggjafarþingi 2011–2012.)
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2012, frá 10. febrúar 2012, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/76/ESB frá 24. nóvember 2010 um breytingu á tilskipunum 2006/48/EB og 2006/49/EB að því er varðar eiginfjárkröfur vegna veltubókar og endurverðbréfana og eftirlit með starfskjarastefnu.
Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.
1. Inngangur.
Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2012, frá 10. febrúar 2012, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/76/ESB frá 24. nóvember 2010 um breytingu á tilskipunum 2006/48/EB og 2006/49/EB að því er varðar eiginfjárkröfur vegna veltubókar og endurverðbréfana og eftirlit með starfskjarastefnu.
Tilskipun 2010/76/ESB er ætlað að auka eftirlit með starfskjarastefnu fjármálafyrirtækja, m.a. í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að starfsmenn séu verðlaunaðir fyrir að taka miklar áhættur í starfi sínu. Eftirlitsaðilum eru veittar heimildir til að beita fjármálafyrirtæki sektum fari þau ekki að nýjum reglum varðandi starfskjarastefnu.
Í tillögu þessari er gerð grein fyrir efni gerðarinnar sem hér um ræðir, en hún felur ekki í sér breytingar á þeim meginreglum sem í EES-samningnum felast. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar sem hér um ræðir er prentuð sem fylgiskjal með tillögu þessari ásamt gerðinni sjálfri.
2. Um stjórnskipulegan fyrirvara.
Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
Að því er Ísland varðar hefur stjórnskipulegur fyrirvari almennt einungis verið settur þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrárinnar að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
Umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar felur í sér breytingu á EES-samningnum en þar sem hún kallar á lagabreytingar hér á landi var hún tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst.
3. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/76/ESB frá 24. nóvember 2010 um breytingu á tilskipunum 2006/48/EB og 2006/49/EB að því er varðar eiginfjárkröfur vegna veltubókar og endurverðbréfana og eftirlit með starfskjarastefnu.
Tilskipun 2010/76 /ESB breytir tveim tilskipunum Evrópusambandsins, tilskipun 2006/ 48/EB um fjármálafyrirtæki (bankatilskipunin) og tilskipun 2006/49/EB um eiginfjárkröfur fjárfestingarfyrirtækja og lánastofnana. Breytingunum á bankatilskipuninni er ætlað að auka eftirlit með starfskjarastefnu fjármálafyrirtækja, m.a. í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að starfsmenn séu verðlaunaðir fyrir að taka miklar áhættur í starfi sínu. Gerð er sú krafa að lánastofnanir setji sér starfskjarastefnu sem þjóni langtímamarkmiðum þeirra. Þannig verða árangurstengdar greiðslur metnar eftir því hve mikil áhætta var tekin og mun taka mið af lengri tíma. Þetta á að koma í veg fyrir að einstakir starfsmenn séu verðlaunaðir fyrir að taka miklar áhættur í starfi sem hafa einungis jákvæð áhrif til skamms tíma en hafa neikvæð áhrif þegar til lengri tíma er litið. Eftirlitsaðilum eru veittar ríkari heimildir til að beita fjármálafyrirtæki sektum fari þau ekki að nýjum reglum varðandi starfskjarastefnu.
Breytingar á tilskipun 2006/49/EB mæla fyrir um að gerðar skuli hærri eiginfjárkröfur í fjárfestingarfélögum og lánastofnunum þegar um endurverðbréfun er að ræða, auknar kröfur skuli gerðar til upplýsingaskyldu fjármálafyrirtækja varðandi áhættur vegna verðbréfunar, auk þess sem breytingar eru gerðar á því hvernig fjármálafyrirtæki skuli meta áhættur tengdar veltubók.
4. Lagabreytingar og hugsanleg áhrif hér á landi.
Innleiðing tilskipunar 2010/76/ESB kallar á breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og einnig mögulega reglum Fjármálaeftirlitsins nr. 215/2007, um eiginfjárkröfur og áhættugrunn fjármálafyrirtækja, og nr. 162/2011, um fyrirgreiðslur fjármálafyrirtækis til stjórnarmanna, framkvæmdastjóra, lykilstarfsmanna eða þeirra sem eiga virkan eignarhlut í því, eða aðila í nánum tengslum við framangreinda. Fyrirhugað er að efnahags- og viðskiptaráðherra leggi fram lagafrumvarp á næsta haustþingi til innleiðingar tilskipuninni.
Ekki er gert ráð fyrir því að innleiðing tilskipunarinnar hafi í för með sér teljandi stjórnsýslulegar eða efnahagslegar afleiðingar fyrir íslenska ríkið.
Fylgiskjal I.
ÁKVÖRÐUN SAMEIGINLEGU EES-NEFNDARINNAR nr. 19/2012
frá 10. febrúar 2012
um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn
SAMEIGINLEGA EES-NEFNDIN HEFUR TEKIÐ NEÐANGREINDA ÁKVÖRÐUN
með vísan til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, með áorðnum breytingum samkvæmt bókun um breytingu á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, er nefnist „samningurinn“ í því sem hér fer á eftir, einkum ákvæða 98. gr.,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) IX. viðauka við samninginn var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2011 frá 21. október 2011 ( 1 ).
2) Fella ber inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/76/ESB frá 24. nóvember 2010 um breytingu á tilskipunum 2006/48/EB og 2006/49/EB að því er varðar eiginfjárkröfur vegna veltubókar og endurverðbréfana og eftirlit með starfskjarastefnu ( 2 ).
ÁKVÖRÐUNIN ER SVOHLJÓÐANDI:
1. gr.
Eftirfarandi undirliður bætist við í 14. lið (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/48/EB) og 31. lið (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/49/EB) í IX. viðauka við samninginn:
„– 32010 L 0076: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/76/ESB frá 24. nóvember 2010 (Stjtíð. ESB L 329, 14.12.2010, bls. 3).“
2. gr.
Íslenskur og norskur texti tilskipunar 2010/76/ESB, sem verður birtur í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, telst fullgiltur.
3. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi 11. febrúar 2012, að því tilskildu að allar tilkynningar samkvæmt 1. mgr. 103. gr. samningsins hafi borist sameiginlegu EES-nefndinni ( * ).
4. gr.
Gjört í Brussel 10. febrúar 2012.
Fyrir hönd sameiginlegu EES-nefndarinnar
Gianluca Grippa
starfandi formaður.
TILSKIPUN EVRÓPUÞINGSINS OG RÁÐSINS 2010/76/ESB
frá 24. nóvember 2010
um breytingu á tilskipunum 2006/48/EB og 2006/49/EB að því er varðar eiginfjárkröfur vegna
veltubókar og endurverðbréfana og eftirlit með starfskjarastefnu
(Texti sem varðar EES)
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 1. mgr. 53. gr.,
með hliðsjón af tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins,
með hliðsjón af áliti Seðlabanka Evrópu ( 1 ),
með hliðsjón af áliti efnahags- og félagsmálanefndar Evrópubandalaganna ( 2 ),
í samræmi við almenna löggjafarmeðferð ( 3 ),
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Mikil og óhyggileg áhættusækni í bankageiranum leiddi til falls einstakra fjármálastofnana og kerfislægra vandamála í aðildarríkjum og á alþjóðavettvangi. Ástæður slíkrar áhættusækni eru margar og flóknar, en eftirlitsyfirvöld og eftirlitsstofnanir, þ.m.t. G-20 og evrópska bankaeftirlitsnefndin (CEBS), eru sammála um að óheppilegt fyrirkomulag starfskjara sumra fjármálastofnana hafi verið áhrifaþáttur. Starfskjarastefna sem hvetur til áhættutöku, sem er umfram almennt áhættuþol stofnunar, getur grafið undan traustri og skilvirkri áhættustýringu og aukið á óhóflega áhættusækni. Þess vegna eru alþjóðlega samþykktu og staðfestu meginreglur ráðgjafanefndarinnar um fjármálastöðugleika (FSB) um góðar greiðsluvenjur (meginreglur ráðgjafanefndarinnar um fjármálastöðugleika) sérstaklega mikilvægar.
2) Í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/48/ EB frá 14. júní 2006 um stofnun og rekstur lánastofnana ( 4 ) er þess krafist að lánastofnanir hafi fyrirkomulag, áætlanir, ferli og kerfi til þess að stýra áhættu sem þær eru óvarðar fyrir. Samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/49/EB frá 14. júní 2006 um eiginfjárkröfur fjárfestingarfyrirtækja og lánastofnana ( 5 ) gilda kröfurnar um fjárfestingarfyrirtæki í skilningi tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/39/EB frá 21. apríl 2004 um markaði fyrir fjármálagerninga ( 6 ). Í tilskipun 2006/48/EB er þess krafist að lögbær yfirvöld endurskoði viðkomandi fyrirkomulag, áætlanir, ferli og kerfi og ákvarði hvort eigið fé hlutaðeigandi lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis tryggi trausta stýringu og vörn þeirrar áhættu sem stofnunin eða fyrirtækið er eða kann að vera óvarið fyrir. Slíkt eftirlit fer fram á samstæðugrundvelli í tengslum við bankasamstæður og nær til eignarhaldsfélaga á fjármálasviði og hlutdeildarfélaga fjármálastofnana í öllum lögsögum.
3) Til að takast á við möguleg skaðleg áhrif af illa útfærðri uppbyggingu starfskjara á trausta stýringu á áhættu og eftirlit með áhættusækni einstaklinga, skal bæta við kröfurnar í tilskipun 2006/48/EB skýlausri skyldu lánastofnana og fjárfestingarfyrirtækja til að koma á og viðhalda starfskjarastefnu og -venjum, sem eru í samræmi við skilvirka áhættustýringu, að því er varðar flokka starfsfólks sem vinnur störf sem hafa marktæk áhrif á áhættusnið þess. Þessir flokkar starfsfólks skulu a.m.k. vera yfirstjórn, þeir sem taka áhættu, starfsfólk við eftirlitsstörf og aðrir starfsmenn ef starfskjör þeirra, þ.m.t. valkvæð lífeyrisréttindi, skipa þeim í sama flokk og yfirstjórn og þeim sem taka áhættu.
4) Þar sem mikil og óhyggileg áhættusækni getur grafið undan fjárhagslegu heilbrigði lánastofnana eða fjárfestingarfyrirtækja og raskað jafnvægi bankakerfisins er mikilvægt að nýju skyldurnar, að því er varðar starfskjarastefnu og -venjur, komi til framkvæmda á samræmdan hátt og nái yfir alla þætti starfskjara, þ.m.t. laun, valkvæðan lífeyri og sambærilegan ávinning. Í því samhengi er valkvæður lífeyrir greiðsla lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis að eigin ákvörðun til starfsmanns á einstaklingsgrundvelli sem miðast við greiðslu við starfslok eða þegar þeirra er vænst og unnt er að laga að breytilegum starfskjörum. Því er rétt að tilgreina skýrar meginreglur um traust starfskjör til þess að tryggja að uppbygging starfskjara hvetji ekki til óhóflegrar áhættusækni einstaklinga, eða leiði til freistnivanda, og sé í samræmi við áhættuvilja, gildi og langtímahagsmuni lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis. Starfskjör skulu vera í samræmi við hlutverk fjármálageirans sem gangverks sem stuðlar að skilvirkri ráðstöfun fjármagns í hagkerfinu. Í meginreglunum skal einkum kveðið á um að skipulag starfskjarastefnu tryggi að hvatar séu í samræmi við langtímahagsmuni lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis og að greiðsluaðferðir styrki eiginfjárgrunn þess. Árangurstengdir þættir starfskjara skulu einnig vera til þess að auka sanngirni í uppbyggingu starfskjara lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis. Í meginreglunum skal þess gætt að lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki geti beitt ákvæðunum með mismunandi hætti eftir stærð, innra skipulagi og því hvers eðlis starfsemi þeirra er, umfangi hennar og hversu flókin hún er og einkum að það kunni að vera ósanngjarnt að fjárfestingarfyrirtæki, sem um getur í 2. og 3. mgr. 20. gr. tilskipunar 2006/49//EB, fari að öllum meginreglunum. Til þess að tryggja að skipulag starfskjarastefnu sé samþætt við áhættustýringu lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis skal framkvæmdastjórn hverrar lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis, í eftirlitshlutverki sínu, samþykkja og endurskoða reglulega þær meginreglur sem á að beita. Í því samhengi á að vera mögulegt, eftir atvikum og í samræmi við landsbundinn félagarétt, að líta á framkvæmdastjórnina í eftirlitshlutverki sínu sem eftirlitsstjórn.
5) Þess skal krafist að lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki, sem eru mikilvæg með tilliti til stærðar, innra skipulags og þess hvers eðlis starfsemi þeirra er, umfangi hennar og hversu flókin hún er, komi á fót starfskjaranefnd sem er óaðskiljanlegur hluti af eftirlits- og stjórnunarkerfi þeirra og skipulagi.
6) Framkvæmdastjórnin skal, eigi síðar en 1. apríl 2013, endurskoða meginreglurnar um starfskjarastefnu, sérstaklega að því er varðar skilvirkni, framkvæmd og framfylgd þeirra, með tilliti til þróunar á alþjóðavettvangi þ.m.t. frekari tillögur ráðgjafanefndarinnar um fjármálastöðugleika og framkvæmd á meginreglum nefndarinnar í öðrum lögsögum, þ.m.t. tengslin á milli skipulags mismunandi starfskjara og óhóflegrar áhættusækni.
7) Starfskjarastefna skal miða að því að samræma persónuleg markmið starfsfólks við langtímahagsmuni viðkomandi lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis. Mat á árangurstengdum þáttum starfskjara skal byggt á árangri til lengri tíma litið og taka tillit til útistandandi áhættu sem árangurinn er bundinn. Árangursmatið skal ná yfir nokkurra ára tímabil, sem er að lágmarki þrjú til fimm ár, til að tryggja að það sé byggt á árangri til lengri tíma litið og að útgreiðslu á árangurstengdum þáttum starfskjara sé dreift yfir viðskiptasveiflu lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis. Til þess að samræma hvata enn frekar skal verulegur hluti breytilegra starfskjara alls starfsfólks, sem fellur undir þessar kröfur, felast í hlutabréfum, hlutabréfatengdum gerningum lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis, með fyrirvara um rekstrarform hlutaðeigandi lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis að lögum, eða, ef um er að ræða lánastofnun eða fjárfestingarfyrirtæki sem ekki er skráð á markað, öðrum jafngildum gerningum sem ekki eru ígildi reiðufjár og, eftir því sem við á, öðrum fjármálagerningum til langs tíma sem endurspegla lánshæfisgæði lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis nægilega vel. Það skal vera mögulegt að slíkir gerningar feli í sér fjármálagerning sem unnt er að breyta í hlutafé, eða niðurfæra með öðrum hætti, ef stofnunin stendur frammi fyrir alvarlegum fjárhagserfiðleikum. Í þeim tilvikum sem hlutaðeigandi lánastofnun gefur ekki út fjármálagerninga til langs tíma skal hún hafa heimild til að gefa út verulegan hluta af breytilegum starfskjörum í formi hlutabréfa og hlutabréfatengdra gerninga og öðrum jafngildum gerningum sem ekki eru ígildi reiðufjár. Aðildarríkin eða lögbær yfirvöld þeirra skulu geta sett takmarkanir á gerð og skipulag þessara gerninga eða bannað tiltekna gerninga, eftir því sem við á.
8) Til að lágmarka hvata til óhóflegrar áhættusækni skulu breytileg starfskjör vera hæfilegur hluti af heildarstarfskjörum. Það er nauðsynlegt að föst laun starfsmanns séu nægilega hátt hlutfall af heildarstarfskjörum hans til þess að hægt sé að reka sveigjanlega starfskjarastefnu varðandi breytilega þætti starfskjara, þ.m.t. möguleika á að greiða enga breytilega þætti. Til að tryggja samfellu starfskjaravenja innan geirans þykir rétt að tilgreina tilteknar skýrar kröfur. Tryggð breytileg starfskjör eru ekki í samræmi við trausta áhættustýringu eða meginregluna um árangurstengd laun og skulu, að jafnaði, vera bönnuð.
9) Verulegum hluta af breytilegum þætti starfskjara, svo sem 40 til 60%, skal frestað um viðeigandi tíma. Þann hluta skal auka marktækt í samræmi við stöðu og ábyrgð þess aðila sem nýtur starfskjaranna. Auk þess skal verulegur hluti af breytilegum þætti starfskjara felast í hlutabréfum, hlutabréfatengdum gerningum lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis, með fyrirvara um rekstrarform hlutaðeigandi lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis að lögum, eða, ef um er að ræða lánastofnun eða fjárfestingarfyrirtæki sem ekki er skráð á markað, öðrum jafngildum gerningum sem ekki eru ígildi reiðufjár og, eftir því sem við á, öðrum fjármálagerningum til langs tíma sem endurspegla lánshæfisgæði lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis nægilega vel. Í því samhengi er meðalhófsreglan mjög mikilvæg þar sem ekki er víst að alltaf sé viðeigandi að beita þessum kröfum í tengslum við litlar lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki. Með tilliti til takmarkana sem setja skorður á fjárhæð breytilegra starfskjara sem má greiða í reiðufé og fyrirfram, skal takmarka þá fjárhæð breytilegra starfskjara sem heimilt er að greiða í reiðufé eða ígildi handbærs fjár og ekki skal fresta, til þess að samræma enn frekar persónuleg markmið starfsfólks og langtímahagsmuni lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis.
10) Lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki skulu tryggja að breytileg starfskjör í heild sinni takmarki ekki getu þeirra til að styrkja eiginfjárgrunn sinn. Nauðsynleg aukning eigin fjár skal vera í samræmi við núverandi eiginfjárstöðu lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis. Í því samhengi skulu lögbær yfirvöld aðildarríkis hafa vald til að takmarka breytileg starfskjör, m.a. við hlutfall af hreinum heildartekjum, þegar þau samræmast ekki því að viðhalda traustum eiginfjárgrunni.
11) Lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki skulu krefjast þess að starfsfólk þeirra skuldbindi sig til að beita ekki persónulegum áhættuvarnaráætlunum eða tryggingum til að grafa undan áhættusamræmingu sem felst í starfskjarafyrirkomulagi þeirra.
12) Það skal vera forgangsatriði að styrkja eiginfjárgrunn þeirra eininga sem njóta góðs af sérstöku inngripi ríkisstjórnar og kveða á um endurheimtur á aðstoð skattgreiðanda. Öll breytileg starfskjör skulu endurspegla þessi forgangsatriði.
13) Meginreglurnar um trausta starfskjarastefnu sem settar eru fram í tilmælum framkvæmdastjórnarinnar frá 30. apríl 2009 um starfskjarastefnu á sviði fjármálaþjónustu ( 1 ) eru í samræmi við og bæta við meginreglurnar sem eru settar fram í þessari tilskipun.
14) Ákvæði varðandi starfskjör hafa ekki áhrif á fulla nýtingu grundvallarréttinda sem tryggð eru með sáttmálunum, einkum 5. mgr. 153. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (TFEU), almennar meginreglur landsbundinnar samnings- og vinnulöggjafar, löggjöf varðandi réttindi og þátttöku hluthafa og almennar skyldur stjórnar og eftirlitsstjórnar hlutaðeigandi stofnunar, auk réttinda, eftir atvikum, aðila vinnumarkaðarins til að framfylgja kjarasamningum, í samræmi við landslög og venjur.
15) Til að tryggja skjóta og skilvirka framkvæmd skulu lögbær yfirvöld einnig hafa vald til að leggja á eða beita fjárhagslegum viðurlögum eða viðurlögum sem ekki eru fjárhagsleg eða öðrum ráðstöfunum ef um er að ræða brot á kröfu samkvæmt tilskipun 2006/48/EB, þ.m.t. kröfu um að hafa starfskjarastefnu sem er í samræmi við trausta og skilvirka áhættustýringu. Þessar ráðstafanir og viðurlög skulu vera skilvirk, í réttu hlutfalli við brotið og hafa letjandi áhrif. Til að tryggja samræmi og jöfn samkeppnisskilyrði skal framkvæmdastjórnin endurskoða samþykkt og beitingu aðildarríkjanna á slíkum ráðstöfunum og viðurlögum í samanteknu formi með tilliti til samræmis þeirra innan Evrópusambandsins.
16) Til að tryggja skilvirkt eftirlit með áhættu vegna óheppilegs fyrirkomulags starfskjara, skal starfskjarastefna og -venjur sem lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki taka upp falla undir eftirlit samkvæmt tilskipun 2006/48/EB. Við eftirlitið skulu eftirlitsaðilar leggja mat á það hvort líklegt sé að stefna og venjur hvetji til óhóflegrar áhættusækni þess starfsfólks sem um er að ræða. Þar að auki skal Evrópska bankaeftirlitsnefndin (CEBS) sjá til þess að til séu viðmiðunarreglur um mat á hæfi þeirra aðila sem í reynd stjórna starfsemi lánastofnunar.
17) Í grænbók framkvæmdastjórnarinnar frá 2. júní 2010 um stjórnarhætti í fjármálastofnunum og starfskjarastefnu eru tilgreind mistök varðandi stjórnarhætti í lánastofnunum og fjárfestingarfyrirtækjum sem ber að taka á. Meðal þeirra lausna sem lagðar eru til vísar framkvæmdastjórnin til þess að nauðsynlegt sé að herða verulega kröfur til þeirra einstaklinga sem í reynd stjórna starfsemi lánastofnunar og skulu hafa óflekkað mannorð og búa yfir viðeigandi reynslu auk þess að vera metnir hæfir til að sinna starfsemi í grein sinni. Í grænbókinni er einnig lögð áhersla á nauðsyn þess að auka þátttöku hluthafa við samþykki á starfskjarastefnu. Til að fylgja þessu eftir vekja Evrópuþingið og ráðið athygli á fyrirætlun framkvæmdastjórnarinnar um að leggja fram tillögur að nýrri löggjöf um þessi mál, eftir því sem við á.
18) Til að auka gagnsæi enn frekar að því er varðar starfskjaravenjur lánastofnana og fjárfestingarfyrirtækja, skulu lögbær yfirvöld aðildarríkja safna saman upplýsingum um starfskjör til þess að fylgja þróun starfskjara í samræmi við þá flokka tölulegra upplýsinga sem lánastofnunum og fjárfestingarfyrirtækjum ber að birta samkvæmt þessari tilskipun. Lögbær yfirvöld skulu afhenda evrópsku bankaeftirlitsnefndinni þessar upplýsingar til að gera henni kleift að framkvæma svipað mat á vettvangi Evrópusambandsins.
19) Til að stuðla að samleitni eftirlits við mat á starfskjarastefnu og -venjum og til að auðvelda upplýsingasöfnun og samræmda framkvæmd meginreglnanna um starfskjör í bankageiranum, skal evrópska bankaeftirlitsnefndin útfæra viðmiðunarreglur um trausta starfskjarastefnu í bankageiranum. Samstarfsnefnd evrópskra verðbréfaeftirlitsaðila skal aðstoða við mótun slíkra viðmiðunarreglna að því marki sem þær gilda einnig um starfskjarastefnu vegna einstaklinga sem taka þátt í að veita fjárfestingarþjónustu og í framkvæmd fjárfestingastarfsemi lánastofnana og fjárfestingarfyrirtækja í skilningi tilskipunar 2004/39/EB. Evrópska bankaeftirlitsnefndin skal hafa opið samráð við almenning að því er varðar tæknistaðlana og greina mögulegan kostnað og ávinning í þessu samhengi. Framkvæmdastjórnin skal geta lagt fram tillögur að nýrri löggjöf sem felur evrópsku eftirlitsstofnuninni sem sér um bankamál og, að því marki sem það á við, evrópsku eftirlitsstofnuninni sem sér um málefni markaða og verðbréfa, sem komið var á fót samkvæmt de Larosière- ferlinu um fjármálaeftirlit, að útfæra drög að tæknilegum eftirlits- og framkvæmdastöðlum til að auðvelda söfnun upplýsinga og samræmda framkvæmd meginreglnanna um starfskjör í bankageiranum, sem framkvæmdastjórnin skal taka upp.
20) Þar sem illa útfærð starfskjarastefna og hvatakerfi getur í óviðunandi mæli aukið áhættu sem lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki eru óvarðar fyrir, skal grípa til skjótra aðgerða til úrbóta og, ef nauðsyn krefur, gera viðeigandi ráðstafanir til úrbóta. Af þessum sökum er við hæfi að tryggja að lögbær yfirvöld hafi vald til að gera megindlegar eða eigindlegar ráðstafanir varðandi viðeigandi einingar sem er ætlað að taka á vandamálum í tengslum við starfskjarastefnu og eftirlit samkvæmt stoð 2 hefur leitt í ljós. Þær eigindlegu ráðstafanir sem lögbær yfirvöld geta beitt eru m.a. að geta krafið lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki um að draga úr áhættu sem er innbyggð í starfsemi þeirra, afurðir eða kerfi, þ.m.t. að gera breytingar á uppbyggingu starfskjara eða frysta ýmsa þætti starfskjara að því marki sem þeir eru ekki í samræmi við skilvirka áhættustýringu. Megindlegar ráðstafanir eru m.a. kröfur um að eiga viðbótar eigið fé.
21) Gott eftirlits- og stjórnunarkerfi, gagnsæi og birting upplýsinga er nauðsynleg fyrir trausta starfskjarastefnu. Til að tryggja fullnægjandi gagnsæi starfskjarastefnu sinnar og tengdrar áhættu gagnvart markaðnum, skulu lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki birta nákvæmar upplýsingar um starfskjarastefnu og -venjur sínar og, vegna trúnaðarkvaðar, heildarfjárhæðir vegna þess starfsfólks sem við störf sín hefur marktæk áhrif á áhættusnið lánastofnunar eða fjárfestingarfyrirtækis. Allir hagsmunaaðilar (hluthafar, starfsmenn og almenningur) skulu hafa aðgang að þeim upplýsingum. Þessi skylda er þó með fyrirvara um tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 95/46/EB frá 24. október 1995 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga ( 1 ).
22) Til að tryggja fulla skilvirkni ákvæða þessarar tilskipunar um starfskjör og forðast að beiting þeirra ýti undir mismunun, skal beita þeim á starfskjör sem koma til á grundvelli samninga sem gerðir eru áður en ákvæðin koma til framkvæmda í hverju aðildarríki fyrir sig og eru veitt eða greidd eftir þann dag. Til að standa vörð um markmiðin sem sett eru með þessari tilskipun, einkum skilvirka áhættustýringu á tímum sem enn einkennast af miklum fjárhagslegum óstöðugleika, og til að koma í veg fyrir að ákvæðin um starfskjör, sem sett eru fram í þessari tilskipun, séu sniðgengin áður en þau koma til framkvæmda, er einnig nauðsynlegt að beita þessum ákvæðum á starfskjör sem hafa verið veitt, en ekki enn greidd út, áður en þau koma til framkvæmda í hverju aðildarríki fyrir sig, að því er varðar þjónustu sem veitt er á árinu 2010.
23) Mat á áhættu sem lánastofnun kann að vera óvarin fyrir skal leiða til skilvirkra eftirlitsráðstafana. Því er nauðsynlegt að ná fram frekari samleitni í því skyni að styðja við sameiginlegar ákvarðanir eftirlitsaðila og tryggja jöfn samkeppnisskilyrði innan Evrópusambandsins.
24) Lánastofnanir sem fjárfesta í endurverðbréfunum skulu samkvæmt tilskipun 2006/48/EB framkvæma áreiðanleikakönnun, einnig að því er varðar undirliggjandi verðbréfanir og áhættuskuldbindingar sem ekki eru verðbréfaðar og liggja til grundvallar hinum fyrrnefndu. Lánastofnanir skulu meta hvort áhættuskuldbindingar í tengslum við eignatryggðar skammtímaskuldabréfaútgáfur feli í sér endurverðbréfaðar áhættuskuldbindingar, þ.m.t. skuldbindingar í tengslum við útgáfur sem fá efri lög (e. tranches) aðgreindra safna heilla útlána ef ekkert þessara útlána er verðbréfuð eða endurverðbréfuð áhættuskuldbinding, og þar sem seljandi útlánanna veitir síðasta kröfuhafa í kröfuröðinni vörn vegna hverrar fjárfestingar. Í síðarnefnda tilvikinu telst lausafjárfyrirgreiðsla tiltekins safns almennt ekki vera endurverðbréfuð áhættuskuldbinding vegna þess að hún telst vera hluti safns með einni eign (þ.e. viðkomandi safns heilla útlána) sem ekki felur í sér verðbréfaðar áhættuskuldbindingar. Hins vegar teljast endurbætur á lánshæfi útgáfu, sem ná aðeins yfir hluta af tapi af kröfum aftar í kröfuröðinni en þær kröfur sem vörn seljanda nær yfir í mismunandi söfnum, almennt vera lagskipting (e. tranching) á áhættu safns margra eigna sem í er a.m.k. ein verðbréfuð áhættuskuldbinding og telst því endurverðbréfuð áhættuskuldbinding. Ef slík útgáfa fjármagnar sig sjálf með einum flokki viðskiptabréfa og ef endurbætur á lánshæfi útgáfu er ekki endurverðbréfun eða ef umsýslulánastofnun ábyrgist að fullu viðskiptabréfaflokkinn þannig að sá sem fjárfestir í viðskiptabréfunum ber í raun áhættu gagnvart vanskilaáhættu umsýsluaðila í stað undirliggjandi safns eða eigna, þá teljast viðskiptabréfin samt sem áður almennt ekki vera endurverðbréfuð áhættuskuldbinding.
25) Ákvæðin um varfærið mat í tilskipun 2006/49/ EB gilda um alla gerninga sem metnir eru á gangvirði, hvort sem þeir eru í veltubók eða utan veltubókar hjá stofnunum. Rétt er að gera skýra grein fyrir því að ef beiting varfærins mats hefur í för með sér lægra bókfært virði en í raun er fært í reikningana skal draga tölugildi mismunarins frá eigin fé.
26) Stofnanir skulu hafa val um að beita eiginfjárkröfu á eða draga frá eigin fé þær verðbréfuðu stöður sem fá úthlutað 1250% áhættuvægi samkvæmt þessari tilskipun, án tillits til þess hvort stöðurnar eru í veltubók eða utan veltubókar.
27) Eiginfjárkröfur vegna uppgjörsáhættu gilda einnig um stöður utan veltubókar.
28) Útgáfu- eða umsýslustofnanir skulu ekki geta sniðgengið bann við óbeinan stuðning með því að beita veltubók sinni til að veita slíkan stuðning.
29) Án þess að hafa áhrif á birtingu upplýsinga sem sérstaklega er krafist í þessari tilskipun er markmiðið með birtingarkröfunum að veita markaðsaðilum nákvæmar og víðtækar upplýsingar um áhættusnið einstakra stofnana. Þess vegna skal þess krafist að stofnanir birti viðbótarupplýsingar sem ekki eru sérstaklega nefndar í þessari tilskipun ef slík birting er nauðsynleg til að uppfylla það markmið.
30) Til að tryggja samræmda framkvæmd tilskipunar 2006/48/EB alls staðar innan Evrópusambandsins komu framkvæmdastjórnin og evrópska bankaeftirlitsnefndin á fót vinnuhópi (Hópur vegna lögleiðingar tilskipunar um eiginfjárkröfur – CRDTG) árið 2006 sem falið var það verkefni að fjalla um og leysa álitaefni í tengslum við framkvæmd tilskipunarinnar. Samkvæmt vinnuhópnum þarf að tilgreina enn frekar tiltekin tæknileg ákvæði tilskipana 2006/ 48/EB og 2006/49/EB. Af þeim sökum er rétt að tilgreina þessi ákvæði.
31) Ef utanaðkomandi lánshæfismat á verðbréfaðri stöðu tekur til áhrifa af útlánavörn sem stofnunin sem fjárfestir veitir sjálf, skal stofnunin ekki hafa hag af lægra áhættuvægi sem vörnin leiðir af sér. Ef til eru aðrar leiðir til að ákvarða áhættuvægi í samræmi við raunverulega áhættu stöðunnar, án þess að taka tillit til slíkrar útlánavarnar, skal þetta ekki valda því að verðbréfunin sé dregin frá eigin fé.
32) Það ber að herða verulega kröfur til stofnana um birtingu upplýsinga að því er varðar verðbréfanir. Þær skulu sérstaklega taka tillit til áhættu af verðbréfuðum stöðum í veltubók. Til að tryggja fullnægjandi gagnsæi að því er varðar eðli verðbréfunarstarfsemi stofnunar skal upplýsingagjöfin endurspegla umfang umsýslu stofnunarinnar með rekstrareiningum um sérverkefni á sviði verðbréfunar og þátttöku tiltekinna hlutdeildarfélaga, þar eð nátengdir aðilar geta valdið viðvarandi áhættu gagnvart hlutaðeigandi stofnun.
33) Eiginfjárkröfur vegna sérstakrar áhættu fyrir verðbréfaðar stöður skulu vera í samræmi við eiginfjárkröfur í fjárfestingarbók (e. banking book) þar eð þær tilgreina aðgreindari og áhættunæmari meðferð verðbréfaðra staðna.
34) Vegna lélegs árangurs við beitingu innri líkana sem reikna út eiginfjárkröfur með tilliti til markaðsáhættu ber að herða kröfurnar. Einkum skal bæta getu líkananna til að greina áhættu að því er varðar útlánaáhættu í veltubókinni. Auk þess skulu eiginfjárkröfur fela í sér þátt sem tekur tillit til erfiðra skilyrða til að herða eiginfjárkröfur með tilliti til versnandi markaðsaðstæðna og til að minnka líkurnar á hugsanlegri sveifluaukningu. Stofnanir skulu einnig framkvæma öfug álagspróf til að kanna hvaða sviðsmyndir gætu ógnað tilvist stofnunarinnar, nema þær geti sýnt fram á að slíkt próf sé óþarft. Vegna erfiðleika að undanförnu við að beita innri líkönum við að reikna áhættu vegna verðbréfaðra staðna, skal takmarka möguleika stofnana á að reikna áhættu vegna verðbréfana í veltubók og í staðinn krefjast staðlaðrar eiginfjárkröfu vegna verðbréfaðra staðna í veltubókinni.
35) Í þessari tilskipun er kveðið á um takmarkaðar undanþágur vegna tiltekinna fylgniviðskipta, sem stofnun getur nýtt samkvæmt heimild frá eftirlitsyfirvaldi sínu til að reikna út eiginfjárkröfu vegna viðkomandi áhættu með fyrirvara um strangar lágmarkskröfur. Í slíkum tilvikum skal þess krafist að stofnunin geri eiginfjárkröfur vegna þeirrar starfsemi, sem jafngilda hærri eiginfjárkröfunni af þeirri sem er í samræmi við aðferðina sem er þróuð innanhúss og 8% eiginfjárkröfu vegna sérstakrar áhættu í samræmi við stöðluðu matsaðferðina. Þess skal ekki krafist að gerðar séu eiginfjárkröfur að því er varðar þessar áhættuskuldbindingar vegna aukinnar áhættu, en taka skal tillit til þeirra bæði við mælingu vágildis og mælingu vágildis við erfiðar aðstæður.
36) Samkvæmt ákvæðum 152. gr. tilskipunar 2006/ 48/EB er þess krafist að tilteknar lánastofnanir leggi fram eigið fé sem er að lágmarki jafnt tilteknum lágmarksfjárhæðum vegna þriggja tólf mánaða tímabila milli 31. desember 2006 og 31. desember 2009. Í ljósi núverandi aðstæðna í bankageiranum og framlengingu á umbreytingarfyrirkomulagi að því er varðar lágmarkskröfur um eigið fé, sem Basel-nefndin um bankaeftirlit samþykkti, er viðeigandi að framlengja kröfurnar í takmarkaðan tíma til 31. desember 2011.
37) Til að koma ekki í veg fyrir að lánastofnanir fari að beita innramatsaðferðinni eða þróuðu mæliaðferðinni við útreikning á eiginfjárkröfum á umbreytingartímabilinu vegna ósanngjarns eða óhóflegs framkvæmdakostnaðar, skal vera mögulegt að heimila lánastofnunum, sem hafa tekið upp innramatsaðferðina eða þróuðu mæliaðferðina eftir 1. janúar 2010 og reiknuðu áður út eiginfjárkröfur sínar með einfaldari aðferðum, að beita einfaldari aðferðum til grundvallar útreikningum á lágmarkskröfum á umbreytingartímabilinu, með fyrirvara um samþykki eftirlitsaðila. Lögbær yfirvöld skulu hafa náið eftirlit með mörkuðum sínum og tryggja jöfn samkeppnisskilyrði á öllum mörkuðum sínum og afmörkuðum markaðssviðum og koma í veg fyrir röskun á innri markaðnum.
38) Í samræmi við 34. lið samstarfssamningsins milli stofnana um betri lagasetningu ( 1 ) eru aðildarríkin hvött til að taka saman, fyrir sig og í þágu Bandalagsins, eigin töflur sem sýna, eftir því sem við verður komið, samsvörun milli þessarar tilskipunar og ráðstafananna til að lögleiða hana og jafnframt að birta þær.
39) Í ákvæðum þessarar tilskipunar er kveðið á um áfanga við endurbótastarf vegna fjármálakreppunnar. Í samræmi við ályktanir G-20, ráðgjafanefndarinnar um fjármálastöðugleika og Basel- nefndarinnar um bankaeftirlit getur verið þörf á frekari umbótum, þ.m.t. þörf á að mynda sveiflujöfnunarsjóði (e. counter-cyclical buffers), „kvika afskriftareikninga“ (e. dynamic provisioning), grunnforsendur útreikninga á eiginfjárkröfum í tilskipun 2006/48/EB og viðbótarráðstafanir við áhættutengdar kröfur um að lánastofnanir aðstoði við að halda vogun (e. leverage) innan bankakerfisins í skefjum. Til að tryggja viðeigandi lýðræðislegt eftirlit með ferlinu skulu Evrópuþingið og ráðið taka þátt í því tímanlega og með skilvirkum hætti.
40) Framkvæmdastjórnin skal endurskoða beitingu tilskipana 2006/48/EB og 2006/49/EB til að tryggja að ákvæðum þeirra sé beitt á sanngjarnan hátt sem leiðir ekki til mismununar á lánastofnunum á grundvelli rekstrarforms þeirra að lögum eða fyrirkomulags á eignarhaldi.
41) Framkvæmdastjórnin skal hafa umboð til þess að samþykkja afleiddar gerðir í samræmi við 290. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins að því er varðar tæknilegar breytingar á tilskipun 2006/48/EB til að skýra skilgreiningar til að tryggja sams konar beitingu þeirrar tilskipunar eða til að taka tillit til þróunar á fjármálamörkuðum; til að samræma hugtakanotkun og afmarka skilgreiningar í samræmi við viðeigandi síðari gerðir; að rýmka inntak eða aðlaga hugtakanotkun í skrá yfir starfsemi sem er háð gagnkvæmri viðurkenningu samkvæmt þeirri tilskipun til að taka tillit til þróunar á fjármálamörkuðum; að aðlaga þau svið sem krafa um upplýsingaskipti lögbærra yfirvalda gildir um; að aðlaga ákvæði í þeirri tilskipun um eigið fé að teknu tilliti til þróunar reikningsskilastaðla eða löggjafar Evrópusambandsins, eða að því er varðar samleitni eftirlitsaðferða; til að útvíkka skrár yfir flokka áhættuskuldbindinga vegna staðalaðferðarinnar eða innramatsaðferðarinnar til að taka tillit til þróunar á fjármálamörkuðum; að leiðrétta tilteknar fjárhæðir í tengslum við þessa flokka áhættuskuldbindinga til að taka tillit til áhrifa verðbólgu; að leiðrétta skrá og flokkun liða utan efnahagsreiknings; og til að aðlaga sértæk ákvæði og tæknileg viðmið um meðferð á mótaðilaáhættu, skipulag og meðferð áhættu, staðalaðferðina og innramatsaðferðina, mildun útlánaáhættu, verðbréfun, rekstraráhættu, endurskoðun og mat lögbærra yfirvalda og birtingu upplýsinga til að taka tillit til þróunar á fjármálamörkuðum eða þróunar reikningsskilastaðla eða löggjafar Evrópusambandsins, eða með tilliti til samleitni eftirlitsaðferða. Framkvæmdastjórnin skal einnig hafa umboð til þess að samþykkja afleiddar gerðir í samræmi við 290. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins að því er varðar ráðstafanir til að tilgreina umfang skyndilegra og óvæntra breytinga á vaxtakjörum sem skal beita við eftirlit og mat lögbærra yfirvalda samkvæmt tilskipun 2006/48/EB á vaxtaáhættu sem verður til við viðskipti önnur en veltuviðskipti; að mæla fyrir um tímabundna lækkun á lágmarksfjárhæð eigin fjár eða áhættuvægi sem tilgreint er í þeirri tilskipun til þess að taka tillit til sérstakra aðstæðna; að skýra undanþágu frá beitingu ákvæða þeirrar tilskipunar um stórar áhættuskuldbindingar á tilteknar áhættuskuldbindingar; og að aðlaga viðmið um mat eftirlitsyfirvalda, samkvæmt þeirri tilskipun, á hæfi fyrirhugaðs yfirtökuaðila lánastofnunar og fjárhagslegu heilbrigði fyrirhugaðrar yfirtöku.
42) Framkvæmdastjórnin skal einnig hafa umboð til þess að samþykkja afleiddar gerðir í samræmi við 290. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins að því er varðar tæknilegar breytingar á tilskipun 2006/49/EB til að skýra skilgreiningar til að tryggja sams konar beitingu þeirrar tilskipunar eða til að taka tillit til þróunar á fjármálamörkuðum; til að breyta fjárhæðum stofnfjár sem kveðið er á um í tilteknum ákvæðum þeirrar tilskipunar og tilgreindum fjárhæðum sem eiga við útreikning á eiginfjárkröfum vegna veltubókar til að taka tillit til hagþróunar og þróunar á sviði peningamála; að aðlaga flokka fjárfestingarfyrirtækja sem geta nýtt tilteknar undanþágur frá kröfum um lágmark eigin fjár til að taka tillit til þróunar á fjármálamörkuðum; að skýra kröfur um að eigið fé fjárfestingarfyrirtækja jafngildi fjórðungi óbeins kostnaðar fyrra árs til að tryggja samræmda beitingu þeirrar tilskipunar; að aðlaga hugtakanotkun og skilgreiningar að viðeigandi síðari gerðum; að aðlaga tæknileg ákvæði þeirrar tilskipunar um útreikning á eiginfjárkröfum vegna mismunandi flokka áhættu og stórra áhættuskuldbindinga, um notkun innri líkana til að reikna út eiginfjárkröfur og um viðskipti til þess að taka tillit til þróunar á fjármálamörkuðum eða í áhættumati eða reikningsskilastöðlum, eða í löggjöf Evrópusambandsins, eða sem snerta samleitni eftirlitsaðferða; og til að taka tillit til niðurstöðu endurskoðunar ýmissa málefna sem tilskipun 2004/39/EB gildir um.
43) Evrópuþingið og ráðið hafa þrjá mánuði frá tilkynningardegi til að andmæla afleiddri gerð. Það skal vera mögulegt að framlengja þetta tímabil um þrjá mánuði að frumkvæði Evrópuþingsins og ráðsins. Mögulegt skal vera fyrir Evrópuþingið og ráðið að upplýsa aðrar stofnanir um fyrirætlanir sínar um að hreyfa ekki andmælum. Skjót samþykkt á afleiddum gerðum á sérstaklega við þegar um frest er að ræða, t.d. ef tímaáætlun varðandi samþykki framkvæmdastjórnarinnar á afleiddum gerðum er í grundvallargerðinni.
44) Í yfirlýsingu 39 um 290. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins, sem fylgir með í viðauka við lokagerð ríkjaráðstefnunnar sem samþykkti Lissabon-sáttmálann og var undirrituð 13. desember 2007, hafði ráðstefnan hliðsjón af fyrirætlun framkvæmdastjórnarinnar að halda áfram að hafa samráð við sérfræðinga sem tilnefndir eru af aðildarríkjunum við undirbúning að drögum að afleiddum gerðum á sviði fjármálaþjónustu, í samræmi við viðteknar venjur.
45) Þar eð aðildarríkin geta ekki fyllilega náð markmiðum þessarar tilskipunar, þ.e. að krefjast þess að lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki komi á starfskjarastefnu sem er í samræmi við skilvirka áhættustýringu og breyti tilteknum eiginfjárkröfum, og þeim verður betur náð á vettvangi Evrópusambandsins vegna umfangs og áhrifa fyrirhugaðra aðgerða, er Evrópusambandinu heimilt að samþykkja ráðstafanir í samræmi við dreifræðisregluna eins og kveðið er á um í 5. gr. sáttmálans um Evrópusambandið. Í samræmi við meðalhófsregluna, eins og hún er sett fram í þeirri grein, er ekki gengið lengra en nauðsyn krefur í þessari tilskipun til að ná þessum markmiðum.
46) Því ber að breyta tilskipunum 2006/48/ESB og 2006/49/ESB til samræmis við það.
SAMÞYKKT TILSKIPUN ÞESSA:
1. gr.
Breytingar á tilskipun 2006/48/ESB
1. Ákvæðum 4. gr. er breytt sem hér segir:
a) eftirfarandi greinar bætast við:
„40a) „endurverðbréfun“: verðbréfun þar sem áhætta tengd undirliggjandi safni áhættukrafna er lagskipt í hluta og að lágmarki ein undirliggjandi áhættukrafa er verðbréfuð staða,
40b) „endurverðbréfuð staða“: áhættukrafa á endurverðbréfun,“
b) eftirfarandi liður bætist við:
„49) „valkvæður lífeyrir“: aukinn lífeyrir sem lánastofnun veitir starfsmanni að eigin ákvörðun og er hluti af breytilegum þætti starfskjara viðkomandi starfsmanns, en tekur ekki til öflunar lífeyris sem veittur er starfsmönnum samkvæmt skilmálum sem gilda um lífeyriskerfi félagsins.“
2. Eftirfarandi undirgrein bætist við 1. mgr. 11. gr.:
„Evrópska bankaeftirlitsnefndin (CEBS) skal sjá til þess að til séu viðmiðunarreglur um mat á hæfi þeirra aðila sem í reynd stjórna starfsemi lánastofnunarinnar.“
3. Ákvæðum 22. gr. er breytt sem hér segir:
a) í stað 1. mgr. komi eftirfarandi:
„1. Lögbær yfirvöld í heimaaðildarríkinu skulu krefjast þess að sérhver lánastofnun hafi traust stjórnskipulag sem felur í sér vel skilgreinda, gagnsæja og samræmda skiptingu ábyrgðar, skilvirk vinnsluferli við að sannreyna, stjórna, fylgjast með og tilkynna um áhættu sem hún er eða kann að vera óvarin fyrir og fullnægjandi innra eftirlitskerfi, þ.m.t. traust stjórnunar- og bókhaldsfyrirkomulag og starfskjarastefnu og -venjur sem eru í samræmi við og stuðla að traustri og skilvirkri áhættustýringu.“,
b) Eftirfarandi málsgreinar bætast við:
„3. Lögbær yfirvöld í heimaaðildarríkinu skulu nota upplýsingarnar sem safnað er í samræmi við viðmiðin um upplýsingagjöf sem komið er á í f-lið 15. liðar annars hluta XII. viðauka til þess að fylgja þróun starfskjara og -venja. Lögbær yfirvöld skulu veita evrópsku bankaeftirlitsnefndinni viðkomandi upplýsingar.
4. Evrópska bankaeftirlitsnefndin skal sjá til þess að til séu viðmiðunarreglur um trausta starfskjarastefnu sem er í samræmi við meginreglurnar sem settar eru fram í 23. og 24. lið V. viðauka. Viðmiðunarreglurnar skulu taka tillit til meginreglnanna um trausta starfskjarastefnu sem settar eru fram í tilmælum framkvæmdastjórnarinnar frá 30. apríl 2009 um starfskjarastefnu á sviði fjármálaþjónustu (*).
Evrópska bankaeftirlitsnefndin skal m.a. tryggja að til séu viðmiðunarreglur um:
a) að setja tiltekin viðmið við ákvörðun á viðeigandi hlutföllum milli fasts og breytilegs þáttar heildarstarfskjara í skilningi l- liðar 23. liðar V. viðauka,
b) að tilgreina gerninga sem geta verið tækir gerningar í skilningi ii-liðar o-liðar 23. liðar V. viðauka og endurspegla á viðunandi hátt lánshæfisgæði lánastofnunar í skilningi o-liðar 23. liðar þess viðauka.
Samstarfsnefnd evrópskra verðbréfaeftirlitsaðila skal hafa náið samstarf við evrópsku bankaeftirlitsnefndina til að tryggja að til séu viðmiðunarreglur um starfskjarastefnu vegna þeirra flokka starfsfólks sem taka þátt í að veita fjárfestingarþjónustu og fjárfestingarstarfsemi í skilningi 2. liðar 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2004/39/EB.
Evrópska bankaeftirlitsnefndin skal nota upplýsingar sem hún fær frá lögbærum yfirvöldum í samræmi við 3. mgr. til að fylgja þróun starfskjara og -venja á vettvangi Evrópusambandsins.
5. Lögbær yfirvöld í heimaaðildarríki skulu safna saman upplýsingum um fjölda einstaklinga í hverri lánastofnun sem eru í launaflokki með a.m.k. 1 milljón evra, þ.m.t. um viðkomandi rekstrarsvið og helstu þætti launa, kaupauka, ávinning til langs tíma og lífeyrisiðgjald. Þær upplýsingar skal senda til evrópsku bankaeftirlitsnefndarinnar sem birtir þær, samanteknar eftir heimaaðildarríki, á sameiginlegu skýrslusniði. Evrópska bankaeftirlitsnefndin getur útfært viðmiðunarreglur til að auðvelda framkvæmd þessarar málsgreinar og tryggja samræmi þeirra upplýsinga sem safnað er.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
( *) Stjtíð. ESB L 120, 15.5.2009, bls. 22.“.
4. Í 54. gr. bætist eftirfarandi málsgrein við:
„Aðildarríki skulu sjá til þess, að því er varðar fyrstu málsgrein, að viðkomandi lögbær yfirvöld hafi vald til að leggja á eða beita fjárhagslegum viðurlögum eða viðurlögum sem ekki eru fjárhagsleg eða grípa til annarra ráðstafana. Þessi viðurlög eða ráðstafanir skulu vera skilvirk, í réttu hlutfalli við brot og letjandi.“
5. Í fyrstu málsgrein 57. gr. komi eftirfarandi í stað r-liðar:
„r) fjárhæð áhættuskuldbindingar verðbréfaðra staðna sem fá áhættuvægi 1250% samkvæmt þessari tilskipun og fjárhæð áhættuskuldbindingar verðbréfaðra staðna í veltubókinni sem fengju áhættuvægi 1250% ef þær væru utan veltubókar hjá sömu lánastofnun.“
6. Í 64. gr. bætist eftirfarandi málsgrein við:
„5. Við útreikning á eigin fé skulu lánastofnanir beita kröfunum í B-hluta VII. viðauka við tilskipun 2006/49/EB á allar eignir sínar sem metnar eru á gangvirði og skulu draga fjárhæð nauðsynlegra viðbótarvirðisleiðréttinga frá heildarsummu a- til ac-liðar að frádregnum liðum i- til k í 57. gr. Evrópska bankaeftirlitsnefndin skal koma á viðmiðunarreglum sem fjalla nánar um beitingu þessara ákvæða.“
7. Í stað 2. mgr. 66. gr. komi eftirfarandi:
„2. Helmingur heildarfjárhæðar liða sem um getur í l- til r-lið 57. gr. skal dreginn frá heildarfjárhæð liða í a- til ca-lið, að frádregnum liðunum i- til k-lið í þeirri grein og helmingur frá heildarfjárhæð liða í d- til h-lið í þeirri grein, eftir beitingu takmarkana sem mælt er fyrir um í 1. mgr. þessarar greinar. Ef helmingur heildarfjárhæðar liðanna í l- til r-lið er hærri en heildarfjárhæð liðanna í d- til h-lið 57. gr. skal draga umframfjárhæðina frá heildarfjárhæð liðanna í a- til ca-lið, að frádregnum liðunum í i- til k-lið þeirrar greinar.
Ekki skal draga liði í r-lið 57. gr. frá ef þeir eru með í útreikningi á fjárhæðum áhættuveginna áhættuskuldbindinga að því er varðar 75. gr. eins og tilgreint er í þessari tilskipun eða í útreikningi á eiginfjárkröfum eins og tilgreint er í I. eða V. viðauka við tilskipun 2006/49/EB.“
8. Eftirfarandi komi í stað b- og c-liðar 75. gr.:
„b) eiginfjárkrafna sem eru ákvarðaðar í samræmi við 18. gr. og 28. til 32. gr. í tilskipun 2006/49/EB, að því er varðar starfsemi veltubókar, vegna stöðuáhættu og mótaðilaáhættu og, að því marki sem heimilt er að fara yfir mörkin sem mælt er fyrir um í 111. til 117. gr., vegna stórra áhættuskuldbindinga sem fara yfir slík mörk,
c) eiginfjárkrafna sem skilgreindar eru í samræmi við 18. gr. í tilskipun 2006/49/EB, að því er varðar alla starfsemi þeirra, vegna gengisáhættu, uppgjörsáhættu og hrávöruáhættu,“.
9. Í stað 1. mgr. 101. gr. komi eftirfarandi:
„1. Umsýslulánastofnun, eða útgáfulánastofnun sem hefur beitt 95. gr. við útreikning á fjárhæðum áhættuveginna áhættuskuldbindinga að því er varðar verðbréfun eða hefur selt gerninga úr veltubók sinni til rekstrareiningar um sérverkefni á sviði verðbréfunar þannig að hún er ekki skuldbundin til að hafa eigið fé til að mæta áhættu vegna þessara gerninga, skal ekki, með það fyrir augum að draga úr mögulegu eða raunverulegu tapi fjárfesta, ábyrgjast verðbréfunina umfram samningsbundna skyldu sína.“.
10. Ákvæðum 136. gr. er breytt sem hér segir:
a) eftirfarandi liðir bætast við annan undirlið 1. mgr.:
„f) að krefjast þess að lánastofnanir takmarki breytileg starfskjör við hlutfall af hreinum heildartekjum ef þau samræmast ekki því að viðhalda traustum eiginfjárgrunni,
g) að krefjast þess að lánastofnanir noti hreinan hagnað til að styrkja eiginfjárgrunninn.“,
b) eftirfarandi undirgrein bætist við 2. mgr.:
„Í þeim tilgangi að ákvarða viðeigandi fjárhæð eigin fjár á grundvelli endurskoðunar og mats sem er framkvæmt í samræmi við 124. gr., skulu lögbær yfirvöld meta hvort álagning tiltekinna krafna um eigið fé umfram lágmarksfjárhæð sé nauðsynleg til að ná yfir áhættu sem lánastofnun er eða kann að verða óvarin fyrir, með tilliti til eftirfarandi:
a) megindlegra og eigindlegra þátta í matsferli lánastofnunar sem um getur í 123. gr.,
b) fyrirkomulags, ferla og aðferða lánastofnunar sem um getur í 22. gr.,
c) niðurstöðu endurskoðunar og mats sem er framkvæmt í samræmi við 124. gr.“
11. Í stað 3. mgr. 145. gr. komi eftirfarandi:
„3. Lánastofnanir skulu samþykkja formlega stefnu til að fara að kröfunum um upplýsingagjöf sem mælt er fyrir um í 1. og 2. mgr. og hafa markað stefnu um mat á því hvort upplýsingagjöfin, að meðtalinni sannprófun og tíðni birtinga, sé viðeigandi. Lánastofnanir skulu einnig marka stefnu um mat á því hvort upplýsingagjöfin gefi markaðsaðilum ítarlega mynd af áhættusniði þeirra.
Ef upplýsingarnar gefa markaðsaðilum ekki ítarlega mynd af áhættusniðinu, skulu lánastofnanir birta opinberlega nauðsynlegar upplýsingar til viðbótar við þær sem krafist er samkvæmt 1. mgr. Þess skal þó aðeins krafist að þær birti upplýsingar sem skipta máli og teljast ekki vera eign lánastofnunar eða trúnaðarmál í samræmi við tæknilegu viðmiðin sem sett eru fram í 1. hluta XII. viðauka.“
12. Í stað fyrirsagnar VI. bálks komi eftirfarandi:
„AFLEIDDAR GERÐIR OG FRAMKVÆMDAVALD“
13. Ákvæðum 150. gr. er breytt sem hér segir:
a) í stað 1. mgr. komi eftirfarandi:
„1. Með fyrirvara um tillöguna sem framkvæmdastjórnin á að leggja fram skv. 62. gr., að því er varðar eigið fé, skal samþykkja tæknilegar breytingar á eftirfarandi sviðum með afleiddum gerðum í samræmi við 151. gr. a og með fyrirvara um skilyrðin í 151. gr. b og 151. gr. c:
a) þegar nánari útlistun er gerð á skilgreiningum til að tryggja sams konar beitingu tilskipunar þessarar,
b) þegar nánari útlistun er gerð á skilgreiningum svo að taka megi tillit til þróunar á fjármálamörkuðum við beitingu þessarar tilskipunar,
c) samræming hugtaka og afmörkun skilgreininga í samræmi við síðari lagasetningu um lánastofnanir og skyld mál,
d) þegar aukið er við efnið í upptalningunni sem um getur í 23. og 24. grein og birt er í I. viðauka eða breytingar verða á orðalagi í henni vegna þróunar á fjármálamörkuðum,
e) þegar lögbær yfirvöld skulu skiptast á upplýsingum á tilteknum sviðum sem mælt er fyrir um í 42. gr.,
f) tæknilegar breytingar í 56. til 67. gr. og 74. gr. vegna þróunar í reikningsskilastöðlum eða -kröfum sem taka mið af löggjöf Evrópusambandsins eða með tilliti til samleitni eftirlitsaðferða,
g) breyting á skránni yfir flokka áhættuskuldbindinga í 79. og 86. gr. til að taka megi tillit til þróunar á fjármálamörkuðum,
h) fjárhæð sem er tilgreind í c-lið 2. mgr. 79. gr., a-lið 4. mgr. 86. gr., 5. lið í 1. hluta VII. viðauka og 15. lið 2. hluta VII. viðauka til að taka tillit til áhrifa verðbólgu,
i) skrár og flokkanir á liðum utan efnahagsreiknings í II. og IV. viðauka,
j) breytingar á ákvæðunum í III. og V.–XII. viðauka til að taka tillit til þróunar á fjármálamörkuðum (einkum nýrra fjármálaafurða) eða í reikningsskilastöðlum eða til krafna, sem taka mið af löggjöf Evrópusambandsins, eða með tilliti til samleitni eftirlitsaðferða.
1a. Samþykkja skal eftirfarandi ráðstafanir í samræmi við reglunefndarmeðferðina sem um getur í 2. mgr. a í 151. gr.:
a) tæknilegar breytingar á skránni í 2. gr.,
b) breytingar á upphæð stofnfjár, eins og mælt er fyrir um í 9. grein, vegna þróunar í efnahags- og peningamálum.“,
b) ákvæðum 2. mgr. er breytt sem hér segir:
i. í stað inngangshlutans í fyrstu undirgrein komi eftirfarandi:
„Framkvæmdastjórnin getur samþykkt eftirfarandi ráðstafanir:“,
ii. í stað annarrar undirgreinar komi eftirfarandi:
„Ráðstafanir sem um getur í a-, b-, c- og f- lið fyrstu undirgreinar skulu samþykktar með afleiddum gerðum í samræmi við 151. gr. a og með fyrirvara um skilyrðin í 151. gr. b og 151. gr. c. Þær ráðstafanir sem um getur í d- og e-lið fyrstu undirgreinar skulu samþykktar í samræmi við stjórnsýslumálsmeðferðina sem um getur í 2. mgr. a í 151. gr.“
14. Í 151. gr. falli 2. og 3. mgr. brott.
15. Eftirfarandi greinar bætast við:
„151. gr. a
Beiting afleiddra gerða
1. Vald til að samþykkja afleiddar gerðir sem um getur í 1. mgr. 150. gr. og fyrsta málslið annarrar undirgreinar 2. mgr. 150. gr. skal falið framkvæmdastjórninni í fjögur ár á tímabili sem hefst 15. desember 2010. Framkvæmdastjórnin skal taka saman skýrslu að því er varðar framsal valds eigi síðar en sex mánuðum fyrir lok fjögurra ára tímabilsins. Framsal valds skal sjálfkrafa framlengt um jafn langan tíma, nema Evrópuþingið eða ráðið afturkalli það í samræmi við 151. gr. b.
2. Um leið og framkvæmdastjórnin samþykkir afleidda gerð skal hún samtímis tilkynna það Evrópuþinginu og ráðinu.
3. Framkvæmdastjórnin skal hafa vald til að samþykkja afleiddar gerðir með fyrirvara um skilyrðin sem mælt er fyrir um í 151. gr b og 151. gr. c.
151. gr. b
Afturköllun framsals
1. Evrópuþingið og ráðið mega hvenær sem er afturkalla framsal valds sem um getur í 1. mgr. 151. gr. og fyrsta málslið annarrar undirgreinar 2. mgr. 150. gr.
2. Sú stofnun sem hefur hafið innri málsmeðferð til að skera úr um hvort afturkalla eigi framsal valds skal leitast við að upplýsa hina stofnunina og framkvæmdastjórnina með hæfilegum fyrirvara áður en endanleg ákvörðun er tekin og tilgreina hvaða vald, sem hefur verið framselt, gæti verið afturkallað.
3. Með ákvörðun um afturköllun skal bundinn endir á framsal þess valds sem tilgreint er í ákvörðuninni. Skal hún öðlast gildi tafarlaust, eða síðar, eftir því sem tilgreint er í ákvörðuninni. Hún skal ekki hafa áhrif á gildi afleiddra gerða sem þegar eru í gildi. Hún skal birt í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
151. gr. c
Andmæli við afleiddar gerðir
1. Evrópuþingið eða ráðið geta andmælt afleiddri gerð innan þriggja mánaða frá tilkynningardegi. Þetta tímabil skal framlengt um þrjá mánuði að frumkvæði Evrópuþingsins eða ráðsins.
2. Ef hvorki Evrópuþingið né ráðið hafa andmælt afleiddri gerð þegar tímabilið sem um getur í 1. mgr. rennur út, skal hún birt í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og öðlast gildi á þeim degi sem þar er tilgreindur. Áður en þetta tímabil rennur út má birta afleiddu gerðina í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og hún öðlast gildi ef Evrópuþingið og ráðið hafa bæði upplýst framkvæmdastjórnina um þá fyrirætlan sína að hreyfa ekki andmælum.
3. Ef annaðhvort Evrópuþingið eða ráðið andmæla afleiddri gerð innan þess tímabils sem um getur í 1. mgr. öðlast hún ekki gildi. Í samræmi við 296. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins skal sú stofnun sem andmælir afleiddu gerðinni gefa upp ástæðurnar fyrir því.“
16. Eftirfarandi málsgreinar bætast við 152. gr.:
„5a. Lánastofnanir sem reikna út fjárhæðir áhættuveginna áhættuskuldbindinga í samræmi við 84. til 89. gr. skulu fram til 31. desember 2011 vera með eigið fé sem er ætíð meira en eða jafnt og fjárhæðin sem er tilgreind í 5. mgr. c eða 5. mgr. d ef við á.
5b. Lánastofnanir sem nota þróaðar mæliaðferðir eins og tilgreint er í 105. gr. við útreikning á eiginfjárkröfum sínum vegna rekstraráhættu skulu til 31. desember 2011 hafa eigið fé sem er ætíð meira en eða jafnt og fjárhæðin sem er tilgreind í 5. mgr. c eða 5. mgr. d ef við á.
5c. Fjárhæðin sem um getur í 5. mgr. a og 5. mgr. b skal vera 80% af lágmarks heildarfjárhæð eigin fjár sem krafist er að lánastofnun hafi samkvæmt 4. gr. tilskipunar 93/6/EBE og tilskipun 2000/12/EB, eftir því sem við á, fyrir 1. janúar 2007.
5d. Að því er varðar lánastofnanir sem um getur í 5. mgr. e má fjárhæðin sem um getur í 5. mgr. a og 5. mgr. b, að fengnu samþykki lögbærra yfirvalda, vera allt að 80% af lágmarks heildarfjárhæð eigin fjár sem krafist er að viðkomandi lánastofnanir hafi samkvæmt 78. til 83. gr., 103. eða 104. gr. og tilskipun 2006/49/EB, eftir því sem við á, fyrir 1. janúar 2011.
5e. Lánastofnun má aðeins beita 5. mgr. d ef hún byrjaði að beita innramatsaðferð eða þróuðu aðferðinni við útreikning á eiginfjárkröfum sínum þann 1. janúar 2010 eða síðar.
17. Í stað 5. mgr. 154. gr. komi eftirfarandi:
„5. Fram til 31. desember 2012 skal áhættuvegið meðaltal taps að gefnum vanefndum vegna allra áhættukrafna á einstaklinga og smærri fyrirtæki, sem eru tryggðar með íbúðarhúsnæði og njóta ekki góðs af ábyrgðum ríkisstjórna, ekki vera lægra en 10%.“
18. Í 156. gr. bætist eftirfarandi málsgrein við á eftir þriðju málsgrein:
„Framkvæmdastjórnin skal fyrir 1. apríl 2013 endurskoða og skila skýrslu um ákvæðin varðandi starfskjör, þ.m.t. þau sem sett eru fram í V. og XII. viðauka, sérstaklega að því er varðar skilvirkni, framkvæmd og framfylgd þeirra, með tilliti til þróunar á alþjóðavettvangi. Við endurskoðunina skal tilgreina glufur sem geta myndast við beitingu meðalhófsreglunnar á þessi ákvæði. Framkvæmdastjórnin skal leggja skýrsluna fyrir Evrópuþingið og ráðið, ásamt tillögum, eftir því sem við á.
Til að tryggja samræmi og jöfn samkeppnisskilyrði, skal framkvæmdastjórnin endurskoða framkvæmd 54. gr. með tilliti til samræmi viðurlaga og annarra ráðstafana sem unnt er að leggja á og beita innan Evrópusambandsins og, ef við á, leggja fram tillögur.
Reglubundin endurskoðun framkvæmdastjórnarinnar á beitingu þessarar tilskipunar skal tryggja að beiting hennar valdi ekki greinilegri mismunun lánastofnana á grundvelli rekstrarforms þeirra að lögum eða fyrirkomulagi eignarhalds.
Til að tryggja samræmi við varfærna nálgun varðandi eigið fé, skal framkvæmdastjórnin endurskoða gildi viðmiðunar við gerninga í skilningi a-liðar 1. mgr. a í 66. gr í ii-lið o-liðar 23. liðar V. viðauka um leið og hún hefur frumkvæði að endurskoðun á skilgreiningu á eiginfjárgerningum sem kveðið er á um í 56. til 67. gr.“
19. Eftirfarandi grein bætist við:
„156. gr. a
Eigi síðar en 31. desember 2011 skal framkvæmdastjórnin endurskoða og gefa skýrslu um æskilegar breytingar á IX. viðauka þessarar tilskipunar til samræmis við milliríkjasamninga að því er varðar eiginfjárkröfur lánastofnana vegna verðbréfaðra staðna. Framkvæmdastjórnin skal leggja þá skýrslu fyrir Evrópuþingið og ráðið, ásamt viðeigandi tillögum að nýrri löggjöf, eftir því sem við á.“
20. Hér með er viðaukunum breytt í samræmi við I. viðauka við þessa tilskipun.
2. gr.
Breytingar á tilskipun 2006/49/EB
1. Í fyrsta undirlið 1. mgr. 3. gr. bætist eftirfarandi liður við:
„t) „verðbréfuð staða“ og „endurverðbréfuð staða“: verðbréfuð staða og endurverðbréfuð staða eins og skilgreint er í tilskipun 2006/ 48/EB.“
2. Í stað inngangshlutans í fyrstu undirgrein 1. mgr. 17. gr. komi eftirfarandi:
„Ef stofnun reiknar fjárhæðir áhættuveginna áhættuskuldbindinga að því er varðar II. viðauka við þessa tilskipun, í samræmi við 84. til 89. gr. tilskipunar 2006/48/EB, skal eftirfarandi gilda að því er varðar útreikning þann sem kveðið er á um í 36. lið 1. hluta VII. viðauka við tilskipun 2006/ 48/EB:“
3. Í stað a-liðar 1. mgr. 18. gr. komi eftirfarandi:
„a) eiginfjárkrafna sem reiknaðar eru í samræmi við aðferðir og valkosti sem mælt er fyrir um í 28. til 32. gr. og I., II. og VI. viðauka og, ef við á, V. viðauka, að því er varðar veltubókarviðskipti og 1. til 4. lið II. viðauka að því er varðar viðskipti utan veltubókar,“.
4. Í stað fyrirsagnar 2. hluta í VIII. kafla komi eftirfarandi:
„Afleiddar gerðir og framkvæmdavald“.
5. Í stað 2. mgr. 41. gr. komi eftirfarandi:
„2. Ráðstafanir sem um getur í 1. mgr. skulu samþykktar með afleiddum gerðum í samræmi við 42. gr. a og með fyrirvara um skilyrðin í 42. gr. b og 42. gr. c.“
6. Í 42. gr. falli 2. mgr. brott.
7. Eftirfarandi greinar bætast við:
„42. gr. a
Beiting afleiddra gerða
1. Framkvæmdastjórninni skal falið vald til að samþykkja afleiddar gerðir, sem um getur í 41. gr., í fjögur ár á tímabili sem hefst 15. desember 2010. Framkvæmdastjórnin skal taka saman skýrslu að því er varðar framsal valds eigi síðar en sex mánuðum fyrir lok fjögurra ára tímabilsins. Framsal valds skal sjálfkrafa framlengt um jafn langan tíma, nema Evrópuþingið eða ráðið afturkalli það í samræmi við 42. gr. b.
2. Um leið og framkvæmdastjórnin samþykkir afleidda gerð skal hún samtímis tilkynna það Evrópuþinginu og ráðinu.
3. Framkvæmdastjórnin skal hafa vald til að samþykkja afleiddar gerðir með fyrirvara um skilyrðin sem mælt er fyrir um í 42. gr b og 42. gr. c.
42. gr. b
Afturköllun framsals
1. Evrópuþinginu eða ráðinu er hvenær sem er heimilt að afturkalla framsal valds sem um getur í 41. gr.
2. Sú stofnun sem hafið hefur innri málsmeðferð til að skera úr um hvort afturkalla eigi framsal valds skal leitast við að upplýsa hina stofnunina og framkvæmdastjórnina með hæfilegum fyrirvara áður en endanleg ákvörðun er tekin og tilgreina hvaða vald, sem hefur verið framselt, gæti verið afturkallað.
3. Með ákvörðun um afturköllun skal bundinn endir á framsal þess valds sem tilgreint er í ákvörðuninni. Skal hún öðlast gildi tafarlaust, eða síðar, eftir því sem tilgreint er í ákvörðuninni. Hún skal ekki hafa áhrif á gildi afleiddra gerða sem þegar eru í gildi. Hún skal birt í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
42. gr. c
Andmæli við afleiddar gerðir
1. Evrópuþingið eða ráðið geta andmælt afleiddri gerð innan þriggja mánaða frá tilkynningardegi. Þetta tímabil skal framlengt um þrjá mánuði að frumkvæði Evrópuþingsins eða ráðsins.
2. Ef hvorki Evrópuþingið né ráðið hafa andmælt afleiddri gerð þegar tímabilið sem um getur í 1. mgr. rennur út, skal hún birt í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og öðlast gildi á þeim degi sem þar er tilgreindur. Áður en þetta tímabil rennur út má birta afleiddu gerðina í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og hún öðlast gildi ef Evrópuþingið og ráðið hafa bæði upplýst framkvæmdastjórnina um þá fyrirætlan sína að hreyfa ekki andmælum.
3. Ef annaðhvort Evrópuþingið eða ráðið andmæla afleiddri gerð innan þess tímabils sem um getur í 1. mgr. öðlast hún ekki gildi. Í samræmi við 296. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins skal sú stofnun sem andmælir afleiddu gerðinni gefa upp ástæðurnar fyrir því.
8. Í stað 47. gr. komi eftirfarandi:
„Fram til 30. desember 2011 eða hvaða fyrri dagsetningar sem lögbær yfirvöld tilgreina í hverju tilviki fyrir sig geta stofnanir, sem hafa fengið viðurkennt líkan fyrir sérstaka áhættu fyrir 1. janúar 2007, í samræmi við 1. lið V. viðauka, að því er varðar þá viðurkenningu sem fyrir hendi er, beitt 4. og 8. lið VIII. viðauka við tilskipun 93/6/EBE eins og gert var fyrir 1. janúar 2007.“
9. Hér með er viðaukunum breytt í samræmi við II. viðauka við þessa tilskipun.
3. gr.
Lögleiðing
a) ákvæðum 3., 4., 16. og 17. liðar 1. gr. og 1. liðar, 2. liðar c, 3. liðar og iii-liðar b-liðar 5. liðar í I. viðauka eigi síðar en 1. janúar 2011, og
b) öðrum ákvæðum þessarar tilskipunar en þeim sem tilgreind eru í a-lið, eigi síðar en 31. desember 2011.
Þegar aðildarríkin samþykkja ráðstafanirnar sem um getur í þessari málsgrein, skal vera í þeim tilvísun í þessa tilskipun eða þeim fylgja slík tilvísun þegar þær eru birtar opinberlega. Aðildarríkin skulu setja nánari reglur um slíka tilvísun.
2. Lög og stjórnsýslufyrirmæli til að fara að 1. lið I. viðauka skulu mæla fyrir um að lánastofnanir beiti meginreglunum sem þar er kveðið á um á:
i. starfskjör á grundvelli samninga sem eru gerðir áður en reglunum er hrundið í framkvæmd í hverju aðildarríki fyrir sig og veitt eða greidd eftir þann dag, og
ii. að því er varðar þjónustu sem veitt er á árinu 2010, starfskjör sem hafa verið veitt, en ekki verið greidd út, áður en reglunum er hrundið í framkvæmd í hverju aðildarríki fyrir sig.
3. Aðildarríkin skulu senda framkvæmdastjórninni helstu ákvæði úr landslögum sem þau taka upp um málefni sem tilskipun þessi nær til.
4. gr.
Skýrsla
5. gr.
Gildistaka
6. gr.
Viðtakendur
Gjört í Strassborg 24. nóvember 2010.
| Fyrir hönd Evrópuþingsins, | Fyrir hönd ráðsins, |
| J. BUZEK | O. Chastel |
| forseti. | forseti. |
I. VIÐAUKI
1) Eftirfarandi þáttur bætist við í V. viðauka:
„11. STARFSKJARASTEFNA
23. Þegar heildarstarfskjarastefnu er komið á og henni beitt, þ.m.t. laun og valkvæður lífeyrir, vegna flokka starfsfólks, þ.m.t. yfirstjórn, þeir sem taka áhættu, starfsfólk við eftirlitsstörf og aðrir starfsmenn ef starfskjör þeirra skipa þeim í sama flokk og yfirstjórn og þeirra sem taka áhættu, sem við störf sín hafa marktæk áhrif á áhættusnið lánastofnunar, skulu lánastofnanir fara að eftirfarandi meginreglum með þeim hætti og að því marki sem á við stærð þeirra, innra skipulag og það hvers eðlis starfsemi þeirra er, umfangi hennar og hversu flókin hún er:
a) starfskjarastefna er í samræmi við og stuðlar að traustri og skilvirkri áhættustýringu og hvetur ekki til áhættusækni umfram áhættuþol lánastofnunarinnar,
b) starfskjarastefna er í samræmi við starfsstefnu, markmið, gildi og langtímahagsmuni lánastofnunarinnar, og felur í sér ráðstafanir til að forðast hagsmunaárekstra,
c) framkvæmdastjórn lánastofnunar samþykkir og endurskoðar reglulega, í eftirlitshlutverki sínu, almennar meginreglur um starfskjarastefnu og ber ábyrgð á framkvæmd hennar,
d) að lágmarki árlega skal fara fram miðlægt og óháð innra eftirlit með því hvort framkvæmd starfskjarastefnu sé í samræmi við stefnu og verklagsreglur sem framkvæmdastjórn hefur samþykkt í eftirlitshlutverki sínu,
e) starfsfólk, sem hefur eftirlit með höndum, skal vera óháð rekstrareiningunum, sem það hefur eftirlit með, hafa viðeigandi heimildir og starfskjör þess vera í samræmi við þau markmið sem það nær, óháð árangri þeirra rekstrarsviða sem það hefur eftirlit með,
f) starfskjaranefnd sem um getur í 24. lið eða, ef slíkri nefnd hefur ekki verið komið á, framkvæmdastjórn í eftirlitshlutverki sínu, skal hafa umsjón með starfskjörum yfirmanna áhættustýringar og eftirlits,
g) séu starfskjör árangurstengd skal heildarfjárhæð þeirra byggð á samsettu mati á árangri einstaklingsins, viðkomandi rekstrareiningar og heildarárangri fjármálafyrirtækisins, og við mat á árangri einstaklings skal taka tillit til fjárhagslegra viðmiðana og viðmiðana sem ekki eru fjárhagslegar,
h) árangursmatið skal ná yfir nokkurra ára tímabil til að tryggja að það sé byggt á árangri til lengri tíma litið og að útgreiðslum á árangurstengdum þáttum starfskjara sé dreift yfir tímabil sem tekur mið af undirliggjandi viðskiptasveiflu og viðskiptaáhættu lánastofnunar,
i) breytileg starfskjör í heild sinni skulu ekki takmarka möguleika lánastofnunar til að styrkja eiginfjárgrunn sinn,
j) tryggð breytileg starfskjör eru undantekning og eiga aðeins við þegar nýtt starfsfólk er ráðið og takmarkast við fyrsta ár þess í starfi,
k) ef um er að ræða lánastofnun sem nýtur góðs af sérstöku inngripi ríkisstjórnar:
i. skulu breytileg starfskjör takmarkast skýrt og ótvírætt við hlutfall af hreinum tekjum ef þau eru ekki í samræmi við það að viðhalda traustum eiginfjárgrunni og að stuðningi ríkisstjórnar ljúki tímanlega,
ii. skulu viðeigandi lögbær yfirvöld krefjast þess að lánastofnanir endurskipuleggi starfskjör þannig að þau séu í samræmi við trausta áhættustýringu og langtímavöxt, þ.m.t., eftir því sem við á, að takmarka starfskjör þeirra einstaklinga sem í reynd fara með stjórn lánastofnunar í skilningi 1. mgr. 11. gr.,
iii. skal ekki greiða út nein breytileg starfskjör til þeirra einstaklinga sem í reynd fara með stjórn lánastofnunar í skilningi 1. mgr. 11. gr. nema það sé réttlætanlegt,
l) viðeigandi jafnvægi skal vera á milli fastra og breytilegra þátta heildarstarfskjara og föstu þættirnir skulu vera nægilega stór hluti af heildarstarfskjörum til þess að hægt sé að starfrækja sveigjanlega stefnu varðandi breytilega þætti starfskjara, þ.m.t. möguleika á að greiða ekki út neina breytilega þætti starfskjara.
Lánastofnanir skulu ákvarða viðeigandi hlutfall fasts og breytilegs þáttar heildarstarfskjara,
m) greiðslur í tengslum við riftun samnings fyrir lok samningstíma skulu miðast við árangur sem náðst hefur á tilteknu tímabili og útfærðar þannig að þær séu ekki umbun fyrir misbrest,
n) við árangursmat sem beitt er við útreikning á breytilegum þáttum starfskjara, eða safni af breytilegum þáttum starfskjara, skal taka tillit til hvers konar núverandi áhættu eða áhættu í framtíðinni auk nauðsynlegs fjármagnskostnaðar og greiðsluhæfis.
Ráðstöfun breytilegra þátta starfskjara innan lánastofnunar skal einnig taka tillit til hvers konar núverandi áhættu og áhættu í framtíðinni,
o) verulegur hluti, og að lágmarki 50%, af breytilegum starfskjörum skal vera viðeigandi blanda af:
i. hlutabréfum eða hlutum sem jafngilda hlutabréfum, með fyrirvara um rekstrarform viðkomandi lánastofnunar að lögum, eða hlutabréfatengdum gerningum eða jafngildum gerningum sem ekki eru ígildi reiðufjár, í tilviki óskráðrar lánastofnunar og
ii. eftir því sem við á, öðrum gerningum í skilningi a-liðar 1. mgr. a í 66. gr., sem endurspegla lánshæfisgæði lánastofnunar nægilega vel miðað við áframhaldandi rekstrarhæfi hennar.
Viðeigandi varðveislustefna, sem ætlað er að samræma hvata við langtímahagsmuni lánastofnunar, skal gilda um gerningana sem um getur í þessum lið. Aðildarríkin eða lögbær yfirvöld þeirra geta sett takmarkanir á gerð og skipulag þessara gerninga eða bannað tiltekna gerninga, eins og við á. Þessum lið má bæði beita á þann hluta af breytilegum þætti starfskjara sem er frestað í samræmi við p-lið og á þann hluta breytilegs þáttar starfskjara sem er ekki frestað,
p) verulegum hluta, og að lágmarki 40%, af breytilegum þætti starfskjara skal fresta um tímabil sem er eigi skemmra en þrjú til fimm ár og er í samræmi við viðskipti og áhættu lánastofnunar og viðfangsefni viðkomandi starfsmanns.
Starfskjör sem koma til greiðslu eftir frestun skulu ekki ávinnast hraðar en hlutfallslega. Ef breytilegi þáttur starfskjara er sérstaklega há fjárhæð skal fresta að lágmarki 60% hennar. Tímabil frestunarinnar skal vera í samræmi við viðskiptasveiflu, eðli starfseminnar og áhættu og viðfangsefni viðkomandi starfsfólks.
q) breytilegu starfskjörin, þ.m.t. sá hluti sem frestað er, greiðast út eða ávinnast aðeins ef þau eru sjálfbær samkvæmt fjárhagsstöðu lánastofnunar í heild sinni, og réttlætanleg samkvæmt árangri lánastofnunar, rekstrareiningar og viðkomandi starfsmanns.
Án þess að hafa áhrif á almennar meginreglur landsbundinnar samnings- og vinnulöggjafar, skulu breytileg heildarstarfskjör almennt dragast saman ef dregur úr rekstrarárangri lánastofnunar eða ef hann er neikvæður, að teknu tilliti til bæði núverandi starfskjara og lækkunar á útgreiðslu á áunnum fjárhæðum, þ.m.t. frádráttar- eða endurgreiðslufyrirkomulag,
r) lífeyrisstefna sé í samræmi við starfsstefnu, markmið, gildi og langtímahagsmuni lánastofnunarinnar.
Ef starfsmaður lætur af störfum hjá lánastofnun áður en hann nær eftirlaunaaldri, skal lánastofnunin varðveita valkvæðan lífeyri í fimm ár og varðveita hann í þeim tegundum gerninga sem um getur í o-lið. Ef um er að ræða starfsmann sem nær eftirlaunaaldri, skal greiða valkvæðan lífeyri út til starfsmannsins í formi gerninga sem um getur í o-lið með fyrirvara um fimm ára frestunartímabil,
s) starfsfólk skal skuldbinda sig til að beita ekki persónulegum áhættuvarnaráætlunum eða tryggingum í tengslum við starfskjör eða bótaábyrgð til að grafa undan áhættusamræmingu sem felst í starfskjarafyrirkomulagi þess,
t) ekki skal greiða út breytileg starfskjör með leiðum eða aðferðum sem auðvelda það að komast hjá kröfum þessarar tilskipunar.
Lánastofnanir skulu beita meginreglunum sem settar eru fram í þessum lið á vettvangi samstæðu, móðurfélags og dótturfyrirtækja, þ.m.t. þau sem eru stofnuð í aflandsfjármálamiðstöðvum.
24. Lánastofnanir sem eru mikilvægar með tilliti til stærðar, innra skipulags og þess hvers eðlis starfsemi þeirra er, umfangi hennar og hversu flókin hún er skulu koma á fót starfskjaranefnd. Starfskjaranefndina skal stofna með þeim hætti að hún geti lagt tilhlýðilegt og óháð mat á starfskjarastefnu og -venjur og hvata til að stýra áhættu, fjármagni og greiðsluhæfi.
Starfskjaranefndin skal bera ábyrgð á undirbúningi ákvarðana um starfskjör, þ.m.t. þær sem hafa áhrif á áhættu og áhættustýringu hlutaðeigandi lánastofnunar og sem framkvæmdastjórnin tekur í eftirlitshlutverki sínu. Formaður og aðilar starfskjaranefndarinnar skulu vera aðilar framkvæmdastjórnarinnar sem ekki taka þátt í daglegri stjórn hlutaðeigandi lánastofnunar. Við undirbúning slíkra ákvarðana skal starfskjaranefndin taka tillit til langtímahagsmuna hluthafa, fjárfesta og annarra hagsmunaaðila lánastofnunarinnar.“
2) Eftirfarandi breyting er gerð á 1. hluta VI. viðauka:
a) í stað 8. liðar komi eftirfarandi:
„8. Með fyrirvara um 9., 10. og 11. lið skulu áhættukröfur á héraðsstjórnir og staðaryfirvöld fá úthlutað áhættuvægi líkt og áhættukröfur á stofnanir, með fyrirvara um 11. lið a. Slík meðferð er óháð notkun heimildarinnar eins og hún er tilgreind í 3. mgr. 80. gr. Ekki skal beita fríðindameðferðinni vegna áhættuskuldbindinga til skamms tíma sem tilgreindar eru í 31., 32. og 37. lið.“,
b) eftirfarandi liður bætist við:
„11a. Án þess að hafa áhrif á 9., 10. og 11. lið skal úthluta áhættuskuldbindingum héraðsstjórna og staðaryfirvalda aðildarríkjanna sem eru tilgreindar og fjármagnaðar í gjaldmiðli viðkomandi héraðsstjórnar og staðaryfirvalds 20% áhættuvægi.“
c) eftirfarandi breytingar eru gerðar á 68. lið:
i. í stað d- og e-liðar 1. mgr. komi eftirfarandi:
„d) lánum sem eru tryggð með íbúðarhúsnæði eða hlutabréfum í finnskum húsnæðisfélögum eins og um getur í 46. lið, upp að nafnverðsfjárhæð veða sem haldast í hendur við fyrri veð eða 80% af verðmæti veðsettu eignanna, eftir því hvort er lægra, eða með hlutum sem njóta forréttinda og sem gefnir eru út af frönskum Fonds Communs de Créances eða samsvarandi verðbréfunarstofnun, sem falla undir lög aðildarríkis, sem verðbréfar áhættuskuldbindingar með veði í íbúðarhúsnæði. Ef slíkir hlutir sem njóta forréttinda eru lagðir fram til tryggingar, skal sérstakt opinbert eftirlit sem er til þess ætlað að vernda eigendur skuldabréfa og kveðið er á um í 4. mgr. 54. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB frá 13. júlí 2009 um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum að því er varðar verðbréfasjóði (UCITS) (*) tryggja að undirliggjandi eignir slíkra hluta skuli, á meðan þær eru í tryggingasafninu, samanstanda að lágmarki 90% af veðum í íbúðarhúsnæði, sem haldast í hendur við fyrri veð upp að því sem lægra er af nafnverðsfjárhæðum sem falla í gjalddaga samkvæmt hlutnum, nafnverðsfjárhæðum veðanna og 80% af virði veðsettu eignanna, að hlutirnir uppfylli skilyrði fyrsta lánshæfisgæðaþreps eins og það er sett fram í þessum viðauka og að slíkir hlutir séu ekki umfram 10% af nafnverðsfjárhæð útistandandi útgáfu.
Áhættuskuldbindingar sem verða til við að afhenda og annast greiðslur loforðsgjafans af eða afraksturs uppgjörs vegna lána, sem eru tryggð með veðsettum eignum hluta sem njóta forréttinda, eða skuldabréfum, skulu ekki taldar með við útreikning á 90% markinu,
e) lánum sem eru tryggð með viðskiptahúsnæði eða hlutabréfum í finnskum húsnæðisfélögum eins og um getur í 52. lið, upp að nafnverðsfjárhæð veða sem haldast í hendur við fyrri veð eða 60% af verðmæti veðsettu eignanna, eftir því hvort er lægra, eða með hlutum sem njóta forréttinda og sem gefnir eru út af frönskum Fonds Communs de Créances eða samsvarandi verðbréfunarstofnun, sem fellur undir lög aðildarríkis sem verðbréfar áhættuskuldbindingar með veði í viðskiptahúsnæði. Ef slíkir hlutir sem njóta forréttinda eru lagðir fram til tryggingar, skal sérstakt opinbert eftirlit sem er til þess ætlað að vernda eigendur skuldabréfa og kveðið er á um í 4. mgr. 54. gr. tilskipunar 2009/65/EB tryggja að undirliggjandi eignir slíkra hluta, á meðan þær eru í tryggingasafninu, samanstandi að lágmarki 90% af veðum í viðskiptahúsnæði, sem haldast í hendur við fyrri veð upp að því sem lægra er af nafnverðsfjárhæðum sem falla í gjalddaga samkvæmt hlutnum, nafnverðsfjárhæðum veðanna og 60% af virði veðsettu eignanna, að hlutirnir uppfylli skilyrði fyrsta lánshæfisgæðaþreps eins og það er sett fram í þessum viðauka og að slíkir hlutir séu ekki umfram 10% af nafnverðsfjárhæð útistandandi útgáfu.
Lögbærum yfirvöldum er heimilt að telja til hæfra eigna lán sem eru tryggð með viðskiptahúsnæði þegar veðhlutfall er yfir 60% en að hámarki 70% ef heildarvirði eigna sem lagðar eru fram til tryggingar sértryggðu skuldabréfunum er hærra en nafnverð útistandandi fjárhæðar sértryggða skuldabréfsins sem nemur a.m.k. 10% og krafa handhafa skuldabréfsins uppfyllir kröfurnar um réttarvissu sem settar eru fram í VIII. viðauka. Krafa handhafa skuldabréfsins skal hafa forgang umfram allar aðrar kröfur gagnvart veðinu. Áhættuskuldbindingar sem verða til við að afhenda og annast greiðslur loforðsgjafans af eða afraksturs uppgjörs vegna lána, sem eru tryggð með veðsettum eignum hluta sem njóta forréttinda, eða skuldabréfum, skulu ekki taldar með við útreikning á 90% markinu,
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
( *) Stjtíð. ESB L 302, 17.11.2009, bls. 32.“;
ii. í stað 3. mgr. komi eftirfarandi:
„Til 31. desember 2013 skulu 10% mörkin um hluti sem njóta forréttinda og gefnir eru út af frönskum Fonds Communs de Créances eða jafngildri verðbréfunarstofnun eins og tilgreint er í d- og e-lið ekki gilda, að því tilskildu:
i. að verðbréfaðar áhættuskuldbindingar með veði í íbúðar- eða viðskiptahúsnæði séu útgefnar af aðila innan sömu samstæðu og útgefandi sértryggða skuldabréfsins er aðili að, eða af einingu sem tengist sömu miðlægu stofnun og útgefandi sértryggða skuldabréfsins tengist (sameiginleg aðild að samstæðu eða tengsl skulu ákvörðuð á sama tíma og hlutir sem njóta forréttinda eru gerðir að tryggingu fyrir sértryggðum skuldabréfum), og
ii. að aðili innan sömu samstæðu og útgefandi sértryggða skuldabréfsins er aðili að, eða eining sem tengist sömu miðlægu stofnun og útgefandi sértryggða skuldabréfsins, haldi einn stöðu síðasta kröfuhafa í kröfuröðinni að því er varðar þessa hluti sem njóta forréttinda.
Framkvæmdastjórnin skal eigi síðar en 31. desember 2012 endurskoða hvort undanþágurnar sem settar eru fram í þriðju málsgrein séu viðeigandi og, ef við á, hvort viðeigandi sé að rýmka sambærilega meðferð þannig að hún nái yfir aðrar tegundir sértryggðra skuldabréfa. Í ljósi þeirrar endurskoðunar getur framkvæmdastjórnin, ef við á, samþykkt afleiddar gerðir í samræmi við 151. gr. a og með fyrirvara um skilyrði 151. gr. b og 151. gr. c, til að framlengja undanþáguna eða gera hana varanlega eða rýmkað hana þannig að hún taki til annarra tegunda sértryggðra skuldabréfa.“
3) Í VII. viðauka komi eftirfarandi í stað d-liðar 8. liðar 1. þáttar 2. hluta:
„d) Heimilt er að úthluta sértryggðum skuldabréfum, eins og þau eru skilgreind í 68. til 70. lið í 1. hluta VI. viðauka, gildinu 11,25% vegna taps að gefnum vanefndum,“.
4) Ákvæðum IX. viðauka er breytt sem hér segir:
a) í 1. lið 3. hluta bætist eftirfarandi liður við:
„c) Lánshæfismatið skal ekki byggt, að hluta til eða að öllu leyti, á stuðningi, án tryggingar, frá lánastofnuninni sjálfri. Í slíku tilviki skal lánastofnunin líta á viðkomandi stöður sem þær væru ómetnar og fara með þær eins og ómetnar stöður eins og kveðið er á um í 4. hluta.“,
b) ákvæðum 4. hluta er breytt sem hér segir:
i. í stað 5. liðar komi eftirfarandi:
„5. Þegar lánastofnun hefur tvær eða fleiri stöður, sem skarast, í verðbréfun, er þess krafist að hún taki aðeins til greina þá stöðu eða hluta af stöðu sem hefur hærri fjárhæð áhættuveginnar áhættuskuldbindingar við útreikning á fjárhæðum áhættuveginna áhættuskuldbindinga, að því marki sem þær skarast. Lánastofnun getur einnig viðurkennt slíka skörun eiginfjárkrafna vegna sérstakrar áhættu staðna í veltubókinni og eiginfjárkrafna staðna í fjárfestingarbókinni, að því tilskildu að lánastofnun geti reiknað út og borið saman eiginfjárkröfur vegna viðkomandi staðna. Að því er þetta varðar á „skörun“ sér stað þegar stöður, að hluta til eða að öllu leyti, standa fyrir áhættu gagnvart sama áhættuþætti þannig að, að því marki sem skörun á sér stað, er aðeins um að ræða eina áhættuskuldbindingu.
Ef c-liður 1. liðar 3. hluta gildir um stöður í eignatryggðum skammtímaskuldabréfum (ABCP), getur lánastofnunin, að fengnu samþykki lögbærra yfirvalda, notað áhættuvægi sem lausafjárfyrirgreiðslu er úthlutað til þess að reikna út fjárhæð áhættuveginnar áhættuskuldbindingar vegna eignatryggðra skammtímaskuldabréfa, ef lausafjárfyrirgreiðslan er jafngild eignatryggðu skammtímaskuldabréfunum þannig að stöðurnar skarist og 100% af eignatryggðu skammtímaskuldabréfunum séu varin með lausafjárfyrirgreiðslu.“,
ii. í stað 6. liðar komi eftirfarandi:
„6. Með fyrirvara um 8. lið, skal reikna fjárhæð áhættuveginnar áhættuskuldbindingar metinnar verðbréfaðrar stöðu eða endurverðbréfaðrar stöðu með því að fá virði áhættuskuldbindingarinnar það áhættuvægi sem tengist því lánshæfisgæðaþrepi sem lögbær yfirvöld hafa ákvarðað að lánshæfismatið tengist, í samræmi við 98. gr., eins og sett er fram í töflu 1.“,
iii. í stað töflu 1 komi eftirfarandi:
„Tafla 1
| Lánshæfisgæðaþrep | 1 | 2 | 3 | 4 (aðeins lánshæfismat annað en skammtíma- lánshæfismat) | öll önnur lánshæfis- gæðaþrep |
| Verðbréfaðar stöður | 20% | 50% | 100% | 350% | 1250% |
| Endurverðbréfaðar stöður | 40% | 100% | 225% | 650% | 1250%“ |
v. í stað 46. liðar komi eftirfarandi:
„46. Samkvæmt matsaðferðinni skal reikna fjárhæðir áhættuveginna áhættuskuldbindinga metinnar verðbréfaðrar stöðu eða endurverðbréfaðrar stöðu með því að fá virði áhættuskuldbindingarinnar það áhættuvægi sem tengist því lánshæfisgæðaþrepi sem lögbær yfirvöld hafa ákvarðað að lánshæfismatið tengist, í samræmi við 98. gr., eins og sett er fram í töflu 4.,margfaldað með 1,06.“,
vi. í stað töflu 4 komi eftirfarandi:
„Tafla 4
| Lánshæfisgæðaþrep | Verðbréfaðar stöður | Endurverðbréfaðar stöður | ||||
| Lánshæfismat annað en skammtíma- lánshæfismat | Skammtíma- lánshæfismat | A | B | C | D | E |
| 1 | 1 | 7% | 12% | 20% | 20% | 30% |
| 2 | 8% | 15% | 25% | 25% | 40% | |
| 3 | 10% | 18% | 35% | 35% | 50% | |
| 4 | 2 | 12% | 20% | 40% | 65% | |
| 5 | 20% | 35% | 60% | 100% | ||
| 6 | 35% | 50% | 100% | 150% | ||
| 7 | 3 | 60% | 75% | 150% | 225% | |
| 8 | 100% | 200% | 350% | |||
| 9 | 250% | 300% | 500% | |||
| 10 | 425% | 500% | 650% | |||
| 11 | 650% | 750% | 850% | |||
| allar aðrar og ómetnar | 1250% | |||||
viii. í stað 47. liðar komi eftirfarandi:
„47. Vogir í dálki C í töflu 4 skal nota þegar verðbréfuð staða er ekki endurverðbréfuð staða og þegar virkur fjöldi verðbréfaðra áhættuskuldbindinga er minni en sex. Að því er varðar aðrar verðbréfaðar stöður sem ekki eru endurverðbréfaðar stöður, skal nota vogir í dálki B nema staðan sé í efsta lagi verðbréfunar, en þá skal nota vogir í dálki A. Að því er varðar endurverðbréfaðar stöður skal nota vogina í dálki E, nema endurverðbréfaða staðan sé í efsta lagi endurverðbréfunar og engin undirliggjandi áhættuskuldbindinga hafi sjálf verið endurverðbréfuð áhættuskuldbinding, en í því tilviki skal nota vogina í dálki D. Við ákvörðun á því hvort lag (e. tranche) er efsta lag, er þess ekki krafist að gjaldfallnar fjárhæðir vegna vaxta- eða gjaldmiðlaafleiða, gjaldfallnar þóknanir, eða aðrar álíka greiðslur, séu teknar til greina.“,
ix. ákvæði 48. liðar falli brott,
x. í stað 49. liðar komi eftirfarandi:
„49. Við útreikning á virkum fjölda verðbréfaðra áhættuskuldbindinga skulu margar áhættukröfur á einn loforðsgjafa teljast sem ein áhættuskuldbinding. Virkur fjöldi áhættuskuldbindinga er reiknaður út sem hér segir:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
þar sem EADi táknar samanlagt virði áhættuskuldbindinga allra áhættukrafna á i-ta loforðsgjafa. Ef sá hluti safns sem tengist stærstu áhættunni, C1, er aðgengilegur, getur lánastofnun reiknað N sem 1/C1.“,
xi. ákvæði 50. liðar falli brott,
xii. í stað 52. liðar komi eftirfarandi:
„52. Með fyrirvara um 58. og 59. lið skal áhættuvog fyrir verðbréfaða stöðu samkvæmt eftirlitsaðferðinni (e. Supervisory Formula Method) vera sú áhættuvog sem nota skal skv. 53. lið. Áhættuvogin skal þó ekki vera lægri en 20% fyrir endurverðbréfaðar stöður og ekki lægri en 7% fyrir allar aðrar verðbréfaðar stöður.“,
xiii. í stað sjöttu málsgreinar í 53. lið komi eftirfarandi:
„N er virkur fjöldi áhættuskuldbindinga, reiknaður út í samræmi við 49. lið. Ef um er að ræða endurverðbréfun skal lánastofnun líta á fjölda verðbréfaðra áhættuskuldbindinga í safninu en ekki fjölda undirliggjandi áhættuskuldbindinga í upphaflegu söfnunum þar sem undirliggjandi verðbréfaðar áhættuskuldbindingar eru upprunnar.“
5) Ákvæðum XII. viðauka er breytt sem hér segir:
a) í stað fyrirsagnarinnar komi eftirfarandi:
„TÆKNILEGAR VIÐMIÐANIR VARÐANDI GAGNSÆI OG BIRTINGU UPPLÝSINGA“
b) Ákvæðum 2. hluta er breytt sem hér segir:
i. eftirfarandi komi í stað 9. og 10. liðar:
„9. Lánastofnanir sem reikna út eiginfjárkröfur í samræmi við b- og c-lið 75. gr. skulu birta þær kröfur sérstaklega fyrir hverja áhættu sem um getur í þeim ákvæðum. Auk þess skal birta sérstaklega eiginfjárkröfur vegna sérstakrar vaxtaáhættu verðbréfaðra staðna.
10. Hver lánastofnun skal birta eftirfarandi upplýsingar ef hún reiknar út kröfur um eigið fé í samræmi við V. viðauka við tilskipun 2006/49/EB:
a) fyrir hvert undirsafn sem fellur undir tilskipunina:
i. einkenni líkananna sem eru notuð,
ii. hvort í sínu lagi, að því er varðar eiginfjárkröfur í samræmi við 5. lið a og 5. lið l í V. viðauka við tilskipun 2006/49/EB, þær aðferðir sem hún beitir og þær áhættur sem hún mælir með innra líkani, þ.m.t. lýsing á aðferð lánastofnunar við að ákvarða seljanleikatímabil (e. liquidity horizons), aðferðir sem notaðar eru til að ná fram eiginfjárgreiningu sem er í samræmi við kröfur um fjárhagslegt heilbrigði og aðferðir við fullgildingu líkansins,
iii. lýsingu á álagsprófunum sem beitt er á undirsafnið,
iv. lýsingu á aðferðunum sem notaðar eru við afturvirkt eftirlit og staðfestingu á nákvæmni og samkvæmni innri líkananna og ferlanna við gerð líkananna,
b) gildissvið viðurkenningar lögbærra yfirvalda,
c) lýsingu á umfangi og aðferðum við að fara að kröfunum sem settar eru fram í B-hluta VII. viðauka við tilskipun 2006/49/EB,
d) hæsta, lægsta og meðaltal eftirfarandi:
i. daglegt mat á vágildi á skýrslutímabilinu og við lok tímabilsins,
ii. daglegt mat á vágildi við erfiðar aðstæður á skýrslutímabilinu og við lok tímabilsins,
iii. eiginfjárkröfur í samræmi við 5. lið a og 5. lið l í V. viðauka við tilskipun 2006/49/EB bæði á skýrslutímabilinu og við lok tímabilsins,
e) eiginfjárupphæð í samræmi við bæði 5. lið a og 5. lið l í V. viðauka við tilskipun 2006/ 49/EB, ásamt vegnu meðaltali seljanleikatímabils fyrir hvert undirsafn sem um ræðir,
f) samanburð daglegra mælinga vágildis í dagslok við eins dags breytingar á verðgildi verðbréfasafnsins við lok næsta viðskiptadags ásamt greiningu mikilvægra yfirskota á skýrslutímabilinu.“,
ii. í stað 14. liðar komi eftirfarandi:
„14. Lánastofnanir sem reikna út fjárhæðir áhættuveginna áhættuskuldbindinga í samræmi við 94. til 101. gr. eða eiginfjárkröfur í samræmi við 16. lið a í I. viðauka við tilskipun 2006/ 49/EB skulu birta eftirfarandi upplýsingar, ef við á, bæði vegna staðna í veltubók og utan veltubókar:
a) lýsingu á markmiðum lánastofnunarinnar vegna verðbréfunarstarfsemi,
b) eðli annars konar áhættu þ.m.t. lausafjáráhætta sem er innbyggð í verðbréfuðum eignum,
c) tegundir áhættu að því er varðar forgang undirliggjandi verðbréfaðra staðna og að því er varðar eignir sem liggja til grundvallar þessum síðari verðbréfuðu stöðum sem lánastofnunin eignast og heldur við endurverðbréfunarstarfsemi sína,
d) mismunandi hlutverk sem lánastofnun hefur í verðbréfunarferlinu,
e) upplýsingar um umfang þátttöku lánastofnunar í hlutverkunum sem um getur í d-lið,
f) lýsingu á ferlum sem eru til staðar til að fylgjast með breytingum á útlána- og markaðsáhættu verðbréfaðra áhættuskuldbindinga, þ.m.t. hvernig hegðun undirliggjandi eigna hefur áhrif á verðbréfaðar áhættuskuldbindingar, og lýsingu á því hvernig þessi ferli eru frábrugðin ferlum fyrir endurverðbréfaðar áhættuskuldbindingar,
g) lýsingu á stefnu lánastofnunar sem gildir um notkun áhættuvarnar og ófjármagnaðrar varnar til þess að milda áhættu vegna verðbréfaðra og endurverðbréfaðra áhættuskuldbindinga sem lánastofnun heldur eftir, þ.m.t. tilgreining á helstu mótaðilum í áhættuvörn eftir viðkomandi gerð áhættugrunns,
h) aðferðir við útreikning á fjárhæðum áhættuveginna áhættuskuldbindinga sem lánastofnun beitir í verðbréfunarstarfsemi sinni, þ.m.t. þær tegundir verðbréfaðra áhættuskuldbindinga sem hver aðferð á við,
i) tegundir eininga um sérverkefni á sviði verðbréfunar sem lánastofnun, sem umsýsluaðili, notar til að verðbréfa áhættuskuldbindingar þriðja aðila, þ.m.t. hvort og með hvaða hætti og að hvaða marki stofnunin ber áhættu gagnvart rekstrareiningum um sérverkefni á sviði verðbréfunar, aðgreindar fyrir áhættuskuldbindingar sem eru í efnahagsreikningi og utan hans, auk skrár yfir einingar sem lánastofnunin stjórnar eða ráðleggur og sem fjárfesta annaðhvort í verðbréfuðum stöðum sem lánastofnunin hefur verðbréfað eða í einingum um sérverkefni á sviði verðbréfunar í umsýslu lánastofnunar,
j) samantekt á reikningsskilaaðferðum lánastofnunarinnar vegna verðbréfunarviðskipta, þ.m.t.:
i. hvort farið sé með viðskiptin sem sölu eða fjármögnun,
ii. færslur vegna söluágóða,
iii. aðferðir, helstu forsendur, ílag og breytingar frá fyrra tímabili við mat á verðbréfuðum stöðum,
iv. hvernig farið er með gerviverðbréfun ef hún fellur ekki undir aðrar reikningsskilaaðferðir,
v. hvernig eignir sem bíða verðbréfunar eru metnar og hvort þær séu færðar í veltubók lánastofnunar eða utan veltubókar hennar,
vi. stefnu við færslu á skuldbindingum í efnahagsreikninginn vegna skuldbindinga sem gætu valdið því að lánastofnun þurfi að leggja fram fjárstuðning vegna verðbréfaðrar eignar,
k) nöfn utanaðkomandi lánshæfismatsstofnana sem notaðar eru við verðbréfanir og þær tegundir áhættuskuldbindinga sem hver stofnun er notuð fyrir,
l) eftir atvikum, lýsingu á innramatsaðferðinni eins og sett er fram í 4. hluta IX. viðauka, þ.m.t. uppbygging á ferli við innra mat og tengsl milli innra mats og utanaðkomandi mats, notkun innra mats í öðrum tilgangi en vegna eiginfjárkrafna, eftirlitskerfi vegna innri matsferla að meðtaldri umfjöllun um óhæði, ábyrgð og endurskoðun á innri matsferlum, tegundir áhættuskuldbindinga sem innra mati er beitt á og álagsþættir sem eru notaðir til að ákvarða að hvaða marki lánskjör skuli bætt, eftir tegund áhættuskuldbindingar,
m) útskýringu á umtalsverðum breytingum á birtingu tölulegra upplýsinga í n- til q-lið frá síðasta skýrslutímabili,
n) eftirfarandi upplýsingar sundurliðaðar eftir tegund áhættuskuldbindingar og aðgreindar eftir því hvort þær eru í veltubók eða utan:
i. heildarfjárhæð útistandandi áhættuskuldbindinga sem lánastofnun hefur verðbréfað, aðgreind í hefðbundnar verðbréfanir og gerviverðbréfanir og verðbréfanir þar sem lánastofnun er aðeins umsýsluaðili,
ii. samanlögð fjárhæð verðbréfaðra staðna í efnahagsreikningi sem lánastofnun heldur eða hefur keypt og verðbréfaðra áhættuskuldbindinga utan efnahagsreiknings,
iii. samanlögð fjárhæð eigna sem bíða verðbréfunar,
iv. að því er varðar verðbréfaða fyrirgreiðslu sem fellur undir meðferð sem leyfir greiðslu afborgana fyrir gjalddaga, samtölu ádreginna áhættuskuldbindinga sem tengjast hagsmunum útgefanda og fjárfesta eftir því sem við á, samtölu eiginfjárkrafna lánastofnunar vegna hagsmuna útgefanda og samtölu eiginfjárkrafna lánastofnunar vegna hluta fjárfesta í ádregnum fjárhæðum og óádregnum lánalínum,
v. fjárhæð verðbréfaðra staðna sem eru dregnar frá eigin fé eða fá áhættuvog 1250%,
vi. samantekt á verðbréfunarstarfsemi á yfirstandandi tímabili, þ.m.t. fjárhæð þeirra áhættuskuldbindinga sem voru verðbréfaðar og hagnaður eða tap sem fært er á sölu,
o) eftirfarandi upplýsingar, aðgreindar að því er varðar áhættuskuldbindingar í veltubók og utan veltubókar:
i. samanlögð fjárhæð verðbréfaðra staðna sem er haldið eða hafa verið keyptar og tengdar eiginfjárkröfur, flokkuð eftir verðbréfuðum og endurverðbréfuðum áhættuskuldbindingum og sundurliðuð enn frekar í markvissan fjölda flokka áhættuvoga eða eiginfjárkrafna, fyrir hverja aðferð sem beitt er við útreikning á eiginfjárkröfum,
ii. samanlögð fjárhæð endurverðbréfaðra áhættuskuldbindinga sem er haldið eða hafa verið keyptar, flokkuð eftir áhættu fyrir og eftir áhættuvörn/tryggingu og áhættu gagnvart fjárhagslegum tryggingaraðilum, flokkuð eftir lánshæfisflokki eða nafni tryggingaraðila,
p) að því er varðar áhættuskuldbindingar utan veltubókar og áhættuskuldbindingar sem lánastofnun hefur verðbréfað, fjárhæð verðbréfaðra eigna sem hafa rýrnað eða eru gjaldfallnar og tap sem lánastofnun hefur fært á yfirstandandi tímabili, í báðum tilvikum flokkað eftir tegund áhættuskuldbindingar,
q) vegna veltubókar, samtölu útistandandi áhættuskuldbindinga sem lánastofnun hefur verðbréfað og eru með fyrirvara um eiginfjárkröfu vegna markaðsáhættu, flokkaðar í hefðbundna/gerviverðbréfun og eftir tegund áhættuskuldbindingar.“,
iii. eftirfarandi liður bætist við:
„15. Eftirfarandi upplýsingar, þ.m.t. reglulegar, að lágmarki árlegar, uppfærslur, skulu birtar opinberlega að því er varðar starfskjarastefnu og -venjur lánastofnunar vegna þeirra flokka starfsfólks sem við störf sín hefur marktæk áhrif á áhættusnið lánastofnunarinnar:
a) upplýsingar um ákvarðanatökuferlið sem fylgt er þegar starfskjarastefnan er mótuð, þ.m.t., ef við á, upplýsingar um samsetningu og umboð starfskjaranefndar, utanaðkomandi ráðgjafa sem veitt hefur þjónustu við mótun starfskjarastefnunnar og hlutverk hlutaðeigandi hagsmunaaðila,
b) upplýsingar um tengsl milli launa og árangurs,
c) mikilvægustu einkenni á fyrirkomulagi starfskjarakerfis, þ.m.t. upplýsingar um viðmiðanir sem notaðar eru við mat á frammistöðu og áhættuleiðréttingu, stefnu varðandi frestun og forsendur ávinnslu,
d) upplýsingar um árangursviðmiðanir sem réttur til hlutabréfa, valréttar eða breytilegra þátta starfskjara byggist á,
e) helstu breytur og rökstuðningur fyrir breytilegu kerfi og annarri umbun í fríðu,
f) samanlagðar tölulegar upplýsingar um starfskjör, flokkaðar eftir rekstrarsviði,
g) samanlagðar tölulegar upplýsingar um starfskjör, flokkaðar eftir yfirstjórn og starfsfólki sem við störf sín hefur marktæk áhrif á áhættusnið lánastofnunar, þar sem eftirfarandi er tilgreint:
i. fjárhæð starfskjara á viðkomandi fjárhagsári, skipt í föst og breytileg starfskjör, og fjölda viðtakenda,
ii. fjárhæð og tegund breytilegra starfskjara, skipt í reiðufé, hlutabréf, hlutabréfatengda gerninga og aðrar tegundir,
iii. fjárhæð útistandandi frestaðra starfskjara, skipt í hluta sem er áunninn og hluta sem er ekki áunninn,
iv. fjárhæðir frestaðra starfskjara sem veittar eru á fjárhagsárinu, greiddar út og lækkaðar í samræmi við mat á frammistöðu,
v. greiðslur vegna nýráðninga og samningsrofs á fjárhagsárinu, og fjöldi viðtakenda slíkra greiðslna og vi. fjárhæðir greiðslna vegna samningsrofs sem veittar eru á fjárhagsárinu, fjöldi viðtakenda og hæsta einstaka úthlutun til eins aðila.
Vegna lánastofnana sem eru mikilvægar með tilliti til stærðar, innra skipulags og þess hvers eðlis starfsemi þeirra er, umfangi hennar og hversu flókin hún er, skulu tölulegar upplýsingar sem um getur í þessum lið enn fremur vera aðgengilegar almenningi vegna einstaklinga sem í reynd stýra starfsemi lánastofnunarinnar í skilningi 1. mgr. 11. mgr.
Lánastofnanir skulu fara að kröfunum sem settar eru fram í þessum lið með hætti sem á við stærð þeirra, innra skipulag og þess hvers eðlis starfsemi þeirra er, umfangi hennar og hversu flókin hún er og án þess að hafa áhrif á tilskipun 95/46/EB.“
II. VIÐAUKI
1) Ákvæðum I. viðauka er breytt sem hér segir:
a) eftirfarandi breytingar eru gerðar á 8. lið:
i. í stað inngangshlutans í fyrstu málsgrein komi eftirfarandi:
„8. Við útreikning á eiginfjárkröfu vegna markaðsáhættu aðilans sem tekur á sig útlánaáhættuna („seljandi varnarinnar“), skal nota grundvallarfjárhæð lánaafleiðunnar, nema annað sé tilgreint. Þrátt fyrir fyrsta málslið getur stofnunin valið að nota, í stað grundvallarfjárhæðar, grundvallarfjárhæð að frádregnum breytingum á markaðsvirði lánaafleiðunnar frá upphafi viðskiptanna. Við útreikning á álagi vegna sérstakrar áhættu, annarri en vegna heildarskiptasamninga (e. total return swaps), gildir binditími lánaafleiðunnar í stað binditíma skuldbindingarinnar. Stöður eru ákvarðaðar sem hér segir:“,
ii. í stað þriðju málsgreinar í v-lið komi eftirfarandi:
„Ef lánaafleiða sem byggist á n-ta vanskilaaðila hefur verið metin af óháðum aðila, skal seljandi varnarinnar reikna út álag vegna sérstakrar áhættu með hliðsjón af matinu á afleiðunni og beita viðkomandi áhættuvogum verðbréfunar, eftir því sem við á.
b) í stað fyrstu málsgreinar í 14. lið komi eftirfarandi:
„14. Stofnunin skal færa hreinar stöður sínar í veltubókinni í gerningum sem eru ekki verðbréfaðar stöður eins og þær eru reiknaðar í samræmi við 1. lið, í viðeigandi flokka í töflu 1 á grundvelli útgefanda/loforðsgjafa þeirra, ytra eða innra lánshæfismats og þess sem eftir lifir af binditíma og síðan margfalda þær með gefnu vægi í þeirri töflu. Hún skal leggja saman vegnar stöður sínar, sem leiða af beitingu þessa liðar, (óháð því hvort þær eru gnótt- eða skortstöður) til þess að reikna eiginfjárkröfu sína vegna sérstakrar áhættu. Hún skal reikna út eiginfjárkröfur sínar á móti sérstakri áhættu vegna staðna sem eru verðbréfaðar stöður í samræmi við 16. lið a
Að því er varðar þennan lið og 14. lið a og 16. lið a getur stofnunin sett hámark á margfeldi áhættuvogar og hreinnar stöðu sem er jafnt mögulegu hámarkstapi vegna vanskila. Að því er varðar skortstöður má reikna þetta hámark út sem breytingu á virði sökum þess að undirliggjandi aðilar verði skyndilega án vanskilaáhættu.“,
c) eftirfarandi liðir bætast við:
„14a. Þrátt fyrir 14. lið getur stofnun ákvarðað að eiginfjárkrafa vegna sérstakrar áhættu vegna fylgniviðskiptasafns sé sú sem er hærri af eftirfarandi fjárhæðum:
a) samtala eiginfjárkrafna vegna sérstakrar áhættu sem myndi aðeins gilda um hreinar gnóttstöður í fylgniviðskiptasafni,
b) samtala eiginfjárkrafna vegna sérstakrar áhættu sem myndi aðeins gilda um hreinar skortstöður í fylgniviðskiptasafni.
14b. Fylgniviðskiptasafn samanstendur af verðbréfuðum stöðum og lánaafleiðum sem byggjast á n-ta vanskilaaðila, sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a) stöðurnar eru hvorki endurverðbréfaðar stöður né valréttir á lagskiptan hluta verðbréfunar, né annars konar verðbréfaðar áhættuskuldbindingar sem ekki veita hlutfallslegan ágóða af ávinningi af lagskiptum hluta verðbréfunar, og
b) allir viðmiðunargerningar eru annaðhvort gerningar gagnvart einum aðila, þ.m.t. lánaafleiður, gagnvart einum aðila, sem bæði eiga sér stað kaup- og söluviðskipti með á virkum markaði, eða vísitölur sem átt eru viðskipti með og sem byggja á viðkomandi tilgreindum aðilum. Litið er svo á að markaður fyrir kaup og sölu sé fyrir hendi ef fyrir liggja óháð kaup- og sölutilboð, sem lögð eru fram í góðri trú, svo að unnt sé að ákvarða sanngjarnt verð miðað við síðasta söluverð, eða gildandi, samkeppnishæfa verðskrá, innan eins dags og gera upp á verði, sem þannig er myndað, innan tiltölulega skamms tíma í samræmi við viðskiptavenjur.
14c. Stöður sem miða við annað hvort af eftirfarandi skulu ekki vera hluti af fylgniviðskiptasafni:
a) undirliggjandi gerninga sem mögulegt er að setja í flokk áhættuskuldbindinga sem um getur í h- og i-lið 1. mgr. 79. gr. tilskipunar 2006/48/EB utan veltubókar stofnunar, eða
b) kröfur á rekstrareiningu um sérverkefni.
Stofnun getur talið með í fylgniviðskiptasafni stöður sem hvorki eru verðbréfaðar stöður né lánaafleiður sem byggjast á n-ta vanskilaaðila heldur stöður sem verja aðrar stöður í safninu, að því tilskildu að virkur kaup- og sölumarkaður eins og lýst er í b-lið 14. liðar b sé til staðar fyrir gerninginn eða undirliggjandi gerninga.“,
d) eftirfarandi liður bætist við:
„16a. Að því er varðar gerninga í veltubókinni, sem eru verðbréfaðar stöður, skal stofnunin vega hreinar stöður sínar, eins og þær eru reiknaðar út í samræmi við 1. lið, með eftirfarandi:
a) að því er varðar verðbréfaðar stöður sem myndu falla undir staðalaðferðina við mat á útlánaáhættu utan veltubókar sömu stofnunar, 8% af áhættuvog samkvæmt staðalaðferðinni eins og hún er sett fram í 4. hluta IX. viðauka við tilskipun 2006/48/EB,
b) að því er varðar verðbréfaðar stöður sem myndu falla undir innramatsaðferðina við mat á útlánaáhættu utan veltubókar sömu stofnunar, 8% af áhættuvog samkvæmt innramatsaðferðinni eins og hún er sett fram í 4. hluta IX. viðauka við tilskipun 2006/48/EB.
Að því er varðar a- og b-lið mega aðrar stofnanir en útgefandi stofnun sem geta beitt eftirlitsaðferðinni á sömu verðbréfaðar stöður utan veltubókar, aðeins beita henni með samþykki eftirlitsaðila. Þar sem við á, skal mat á líkum á vanefndum og tapi að gefnum vanefndum, sem notað er í eftirlitsaðferðinni, ákvarðað í samræmi við 84. til 89. gr. tilskipunar 2006/48/EB eða, með fyrirvara um sérstakt samþykki eftirlitsaðila, á grundvelli mats sem leiðir af aðferð sem sett er fram í 5. lið a í V. viðauka og er í samræmi við megindlega staðla innramatsaðferðarinnar. Evrópska bankaeftirlitsnefndin skal mæla fyrir um viðmiðunarreglur til að tryggja samleitna beitingu mats á líkum á vanefndum og tapi að gefnum vanefndum sem ílags ef slíkt mat byggir á aðferðinni sem sett er fram í 5. lið a í V. viðauka.
Þrátt fyrir a- og b-lið skal, að því er varðar verðbréfaðar stöður sem myndu falla undir áhættuvog í samræmi við 122. gr. a í tilskipun 2006/48/EB, ef þær væru utan veltubókar hjá sömu stofnun, beita 8% af áhættuvog í samræmi við þá grein.
Stofnunin skal leggja saman vegnar stöður sínar, sem leiða af beitingu þessa liðar, (óháð því hvort þær eru gnótt- eða skortstöður) til þess að reikna eiginfjárkröfu sína vegna sérstakrar áhættu.
Þrátt fyrir fjórðu málsgrein, skal stofnunin leggja saman hreinar vegnar gnóttstöður annars vegar og hreinar vegnar skortstöður hins vegar, fyrir umbreytingartímabil sem lýkur 31. desember 2013. Sú sem hærri er af þessum fjárhæðum segir til um eiginfjárkröfur vegna sérstakrar áhættu. Stofnunin skal þó skýra lögbærum yfirvöldum heimaaðildarríkis frá heildarsummu hreinna veginna gnótt- og skortstaðna, flokkaðri eftir tegundum undirliggjandi eigna.“,
e) í stað 34. liðar komi eftirfarandi:
„34. Stofnunin skal leggja saman allar hreinar gnóttstöður sínar og allar hreinar skortstöður sínar í samræmi við 1. lið. Hún skal margfalda verga heildarstöðu sína með 8% til að reikna út eiginfjárkröfu vegna sérstakrar áhættu.
f) 35. liður falli brott.
2) Í stað annarrar málsgreinar 7. liðar í II. viðauka komi eftirfarandi:
„Þegar er um að ræða skuldatryggingu skal hins vegar stofnun sem ber áhættu sem stafar af skiptasamningnum og myndar gnóttstöðu í undirliggjandi gerningi vera heimilt að nota töluna 0% að því er varðar hugsanlega framtíðarlánaáhættu, nema skuldatryggingin sé með fyrirvara um uppgjör við ógjaldfærni þess aðila sem ber áhættu sem stafar af skiptasamningnum og myndar skortstöðu í undirliggjandi gerningi, jafnvel þótt undirliggjandi gerningur sé ekki í vanskilum, en í því tilviki skal takmarka hugsanlega framtíðarlánaáhættu stofnunarinnar við fjárhæð gjalda sem aðilinn hefur enn ekki greitt stofnuninni.“.
3) Ákvæðum V. viðauka er breytt sem hér segir:
a) Í stað 1. liðar komi eftirfarandi:
„1. Lögbær yfirvöld skulu, að uppfylltum skilyrðunum sem mælt er fyrir um í þessum viðauka, leyfa stofnunum að reikna eiginfjárkröfur sínar vegna stöðuáhættu, gengisáhættu og/eða hrávöruáhættu samkvæmt eigin, innri áhættustýringarlíkönum í stað aðferðanna, sem lýst er í I., III. og IV. viðauka, eða ásamt þeim. Í hverju tilviki skal krafist ótvíræðrar viðurkenningar af hálfu lögbærra yfirvalda á notkun líkana til eftirlits með eiginfjárstöðu.“,
b) í stað annarrar málsgreinar 4. liðar komi eftirfarandi:
„Lögbær yfirvöld skulu athuga getu stofnunar til að framkvæma afturvirkt eftirlit bæði á raunverulegum og hugsanlegum breytingum á verðgildi verðbréfasafnsins. Afturvirkt eftirlit með hugsanlegum breytingum á verðgildi verðbréfasafnsins byggir á samanburði á verðgildi verðbréfasafnsins í dagslok og verðgildi þess í lok næsta dags, miðað við óbreyttar stöður. Lögbær yfirvöld skulu krefjast þess að stofnanirnar geri viðeigandi ráðstafanir til að bæta áætlun sína um afturvirkt eftirlit ef hún þykir ófullnægjandi. Lögbær yfirvöld skulu a.m.k. krefjast þess að stofnanir framkvæmi afturvirkt eftirlit á hugsanlegar (með notkun breytinga á virði eignasafns sem myndu eiga sér stað ef stöður í lok dags væru óbreyttar) niðurstöður.“,
c) í stað 5. liðar komi eftirfarandi:
„5. Að því er varðar útreikning á eiginfjárkröfum vegna sérstakrar áhættu sem tengist stöðum í skuldabréfum og hlutabréfum, sem verslað er með, skulu lögbær yfirvöld viðurkenna notkun stofnunar á innra líkani sínu ef það fullnægir skilyrðunum sem um getur síðar í þessum viðauka og uppfyllir auk þess eftirfarandi skilyrði:
a) það skýrir sögulegar verðbreytingar í verðbréfasafninu,
b) það greinir samþjöppun að því er varðar umfang og breytingar á samsetningu verðbréfasafnsins,
c) það getur tekið á óhagstæðu umhverfi,
d) það er fullgilt með afturvirku eftirliti sem miðar að því að meta hvort sérstök áhætta greinist nægilega vel. Ef lögbær yfirvöld heimila að slíkt afturvirkt eftirlit fari fram á grundvelli viðeigandi undirsafna verðbréfa skulu þau valin með samræmdum hætti,
e) það greinir grunnáhættu í tengslum við aðila, þ.e. að stofnanir skuli sýna fram á að innra líkanið sé næmt fyrir verulegum, sérkennandi mun á stöðum sem eru sambærilegar en ekki alveg eins, og
f) það greinir áhættu vegna ófyrirsjáanlegra atburða.
Innra líkan stofnunarinnar skal meta á varfærinn hátt áhættuna sem verður til af stöðum sem eru ekki mjög seljanlegar og stöðum með takmarkað verðgagnsæi samkvæmt raunhæfum markaðssviðsmyndum. Að auki skal innra líkanið uppfylla lágmarks gagnastaðla. Hæfilegrar varfærni skal gætt í áætlun gilda og aðeins má nota þau ef tiltæk gögn eru ófullnægjandi eða ef þau endurspegla ekki raunverulegan óstöðugleika stöðu eða verðbréfasafns.
Stofnun getur við útreikning á eiginfjárkröfum vegna sérstakrar áhættu með notkun innra líkans valið að undanskilja stöður í verðbréfunum eða lánaafleiðum sem byggjast á n-ta vanskilaaðila, ef hún uppfyllir eiginfjárkröfur vegna stöðuáhættu í samræmi við I. viðauka vegna þeirra, að undanskildum þeim stöðum sem falla undir aðferðina sem sett er fram í 5. lið l.
Stofnanir skulu hagnýta framfarir í tækni og bestu starfsvenjum eftir því sem þær þróast.
Þess skal ekki krafist að stofnun greini vanskila- og tilfærsluáhættu (e. migration risk) skuldagerninga, sem verslað er með, í innra líkani sínu ef hún greinir þá áhættu samkvæmt kröfunum sem settar eru fram í 5. lið a til 5. liðar k.“,
d) Eftirfarandi liðir bætast við:
„5a. Stofnanir, sem falla undir 5. lið að því er varðar skuldagerninga sem verslað er með, skulu búa yfir aðferð, við útreikning á eiginfjárkröfum, til að greina vanskila- og tilfærsluáhættu staðna í veltubók, sem skal bæta við áhættu sem greinist með mælingu vágildis, eins og tilgreint er í 5. lið. Stofnunin skal sýna fram á að aðferð hennar uppfylli kröfur um fjarhagslegt heilbrigði sem samrýmast aðferðinni sem er sett fram í 84. til 89. gr. tilskipunar 2006/48/EB, að því gefnu að áhættustigið sé stöðugt, og sé leiðrétt, eftir því sem við á, til að endurspegla áhrif greiðsluhæfis, samþjöppunar, áhættuvarna og verðs valréttar.
Gildissvið
5b. Aðferðin við að greina aukna vanskila- og tilfærsluáhættu skal ná yfir allar stöður sem falla undir eiginfjárkröfur vegna sérstakrar vaxtaáhættu en skal ekki ná yfir verðbréfaðar stöður og lánaafleiður sem byggjast á n-ta vanskilaaðila. Með fyrirvara um samþykki eftirlitsaðila getur stofnunin kosið að láta aðferðina ná með samræmdum hætti yfir allar stöður í skráðum hlutabréfum og afleiðum sem byggja á skráðum hlutabréfum ef það er í samræmi við innri aðferð stofnunar við að mæla og stýra áhættu. Aðferðin skal endurspegla áhrif fylgni milli vanskila- og tilfærsluatburða. Ekki skal endurspegla áhrif af blöndun milli vanskila- og tilfærsluatburða annars vegar og annarra markaðsáhættuþátta hins vegar.
Breytur
5c. Aðferðin við að greina viðbótaráhættu (e. incremental risk) skal mæla tap vegna vanskila og tilfærslu innra eða ytra mats við 99,9% öryggisbil á eins árs tímabili.
Fylgniforsendur skulu studdar greiningu á hlutlægum gögnum innan hugtakslega trausts ramma. Aðferðin við að greina viðbótaráhættu skal endurspegla samþjöppun útgefenda með viðeigandi hætti. Endurspegla skal einnig samþjöppun sem getur orðið innan og þvert á afurðaflokka við erfiðar aðstæður.Aðferðin skal byggja á þeirri forsendu að áhættustig á viðkomandi eins árs tímabili haldist stöðugt, en það felur í sér að einstakar stöður eða hópar staðna í veltubókinni, sem hafa lent í vanskilum eða breytingu á lánshæfismati innan seljanleikatímabils síns, séu endurstilltir í lok seljanleikatímabilsins til þess að ná aftur upphaflega áhættustiginu. Stofnun getur hins vegar valið að nota með samræmdum hætti forsendu um stöðuga áhættu til eins árs.
5d. Ákvarða skal seljanleikatímabilið í samræmi við þann tíma sem þarf til að selja stöðuna eða áhættuverja alla verulega viðeigandi verðáhættu við erfiðar markaðsaðstæður, sérstaklega að teknu tilliti til stærðar stöðunnar. Seljanleikatímabilið skal endurspegla raunverulega starfsvenju og reynslu bæði á tímum kerfisbundinna og sérstakra erfiðleika. Meta skal seljanleikatímabilið samkvæmt varfærnum forsendum og það skal vera nægilega langt til þess að sala eða áhættuvörn hafi í sjálfu sér ekki veruleg áhrif á verðið sem salan eða vörnin færi fram á.
Við ákvörðun viðeigandi seljanleikatímabils vegna stöðu eða samstæðu staðna skal lágmarkstímabilið vera þrír mánuðir.
Við ákvörðun viðeigandi seljanleikatímabils fyrir stöðu eða samstæðu staðna skal taka tillit til innri stefnu stofnunar í tengslum við virðisleiðréttingar og meðferð staðnaðra staðna. Ef stofnun ákvarðar seljanleikatímabil fyrir samstæður staðna frekar en einstakar stöður, skal skilgreina viðmiðanir fyrir skilgreiningu á samstæður staðna með þeim hætti að þær endurspegli á markvissan hátt mismunandi seljanleika. Seljanleikatímabil skulu vera lengri fyrir stöður sem eru samþjappaðar, til samræmis við að lengri tíma tekur að losa slíkar stöður. Seljanleikatímabil fyrir vöruhús verðbréfana (e. securitisation warehouse) skal endurspegla tímann sem það tekur að byggja upp, selja og verðbréfa eignirnar, eða tímann sem tekur að áhættuverja verulega áhættuþætti, við erfiðar markaðsaðstæður.
5e. Fella má áhættuvörn inn í aðferð stofnunar við að greina aukna vanskila- og tilfærsluáhættu. Heimilt er að skuldajafna stöður ef gnótt- og skortstöður vísa til sama fjármálagernings. Áhrif áhættuvarnar eða áhættudreifingar í tengslum við gnótt- og skortstöður í mismunandi gerningum eða mismunandi verðbréfum sama loforðsgjafa, auk gnótt- og skortstaðna í mismunandi útgefendum, má aðeins færa með því að gera ítarlega grein fyrir vergum gnótt- og skortstöðum í mismunandi gerningum. Stofnanir skulu endurspegla áhrif verulegrar áhættu sem gæti komið til á tímabilinu milli gildisstíma áhættuvarnarinnar og seljanleikatímabilsins auk mögulegrar mikilvægrar grunnáhættu áhættuvarnaráætlana eftir afurð, forgangsröð í fjármagnsuppbyggingu, innra eða ytra mati, gildistíma, útgáfualdri (e. vintage) og öðrum mismun á gerningunum. Stofnun skal aðeins endurspegla áhættuvörn að því marki sem unnt er að viðhalda henni jafnvel þótt loforðsgjafi nálgist lánshæfisatburð eða annan atburð.
Að því er varðar stöður í veltubók sem eru áhættuvarðar með öflugri áhættuvarnaráætlun, má skrá endurstillingu áhættuvarnar innan seljanleikatímabils vörðu stöðunnar að því tilskildu að stofnunin:
i. kjósi að setja endurstillingu áhættuvarnarinnar fram með samræmdum hætti að því er varðar viðkomandi samstæðu staðna í veltubókinni,
ii. sýni fram á að endurstillingin leiði til betra áhættumats, og iii. sýni fram á að markaðir fyrir gerningana sem notaðir eru til áhættuvarnar séu nægilega virkir til þess að hægt sé að framkvæma slíka endurstillingu, jafnvel á erfiðum tímum. Eiginfjárkörfurnar skulu endurspegla aðra eftirstæða áhættu vegna öflugra áhættuvarnaráætlana.
5f. Aðferðin við að greina aukna vanskila- og tilfærsluáhættu skal endurspegla ólínuleg áhrif valrétta, samsettra lánaafleiða og annarra staðna sem hegða sér marktækt með ólínulegum hætti með tilliti til verðbreytinga. Stofnunin skal einnig taka tilhlýðilegt tillit til umfangs líkanaáhættu sem er innbyggð í verðmat og mat á verðlagsáhættu í tengslum við slíkar afurðir.
5g. Aðferðin við að greina aukna vanskila- og tilfærsluáhættu skal byggjast á gögnum sem eru hlutlæg og dagrétt.
Fullgilding
5h. Við óháða endurskoðun á áhættumatskerfi sínu og fullgildingu innri líkana sinna, eins og krafist er í þessum viðauka , skulu stofnanir, með tilliti til aðferðarinnar við að greina aukna vanskila- og tilfærsluáhættu, einkum:
i. staðfesta að aðferð við líkanasmíðina að því er varðar fylgni og verðbreytingar sé viðeigandi með tilliti til eignasafns stofnunarinnar, þ.m.t. val á vægi kerfisbundinna áhættuþátta,
ii. framkvæma fjölbreytt álagspróf, þ.m.t. næmisgreiningu og sviðsmyndagreiningu, til þess að meta eigindlegt og megindlegt réttmæti aðferðarinnar, einkum með tilliti til þess hvernig samþjöppun er meðhöndluð. Slík próf skulu ekki takmarkast við atburði sem hafa átt sér stað,
iii. beita viðeigandi megindlegri fullgildingu, þ.m.t. viðeigandi innri viðmiðunum líkana.
Aðferðin við að greina aukna áhættu skal vera í samræmi við áhættustýringaraðferðir stofnunar við að greina, mæla og stýra viðskiptaáhættu.
Skjalfesting
5i. Stofnun skal skjalfesta aðferð sína við að greina aukna vanskila- og tilfærsluáhættu þannig að fylgniforsendur og aðrar forsendur líkansins séu gagnsæjar lögbærum yfirvöldum.
Innri aðferðir sem byggja á öðrum breytum
5j. Ef stofnunin notar aðferð til að fanga aukna vanskila- og tilfærsluáhættu sem ekki uppfyllir allar kröfurnar í þessum lið en er í samræmi við innri aðferðafræði stofnunarinnar við að greina, mæla og stýra áhættu, skal hún geta sýnt fram á að aðferð hennar leiði til eiginfjárkröfu sem er að lágmarki jafn há og ef hún byggði á aðferð sem uppfyllir allar kröfurnar í þessum lið. Lögbær yfirvöld skulu, að lágmarki árlega, hafa eftirlit með því hvort farið sé að undanfarandi málslið. Evrópska bankaeftirlitsnefndin skal fylgjast með mismunandi starfsvenjum á þessu sviði og semja viðmiðunarreglur til þess að tryggja jöfn samkeppnisskilyrði.
Tíðni útreikninga
5k. Stofnun skal framkvæma þá útreikninga, sem krafist er samkvæmt þeirri aðferð sem hún beitir til að greina aukna áhættu, a.m.k. vikulega.
5l. Lögbær yfirvöld skulu viðurkenna notkun innri aðferðar við útreikning á viðbótareiginfjárkröfu í stað eiginfjárkröfu vegna fylgniviðskiptasafns í samræmi við 14. lið a í I. viðauka að því tilskildu að öll skilyrði í þessum lið séu uppfyllt.
Slík innri aðferð skal greina með viðunandi hætti alla verðáhættu miðað við 99,9% öryggisbil fyrir eins árs tímabil, að gefnum forsendum um stöðugt áhættustig, og leiðrétt eftir því sem við á til að endurspegla áhrif seljanleika, samþjöppunar, áhættuvarna og verð valréttar. Þegar aðferðinni er beitt getur stofnunin talið með allar þær stöður sem um getur í þessum lið og er stýrt ásamt stöðum í fylgniviðskiptasafni og getur síðan undanskilið þær stöður frá beitingu aðferðarinnar sem krafist er í 5. lið a.
Fjárhæð eiginfjárkröfu vegna allrar verðáhættu skal ekki vera lægri en 8% af eiginfjárkröfu sem yrði reiknuð út í samræmi við 14. lið a í I. viðauka fyrir allar stöður sem teknar eru með við útreikning á kröfu vegna allrar verðáhættu.
Einkum skal greina eftirfarandi áhættu með fullnægjandi hætti:
a) uppsafnaða áhættu vegna vanskila, þ.m.t. röðun vanskila í lagskiptum afurðum,
b) áhættu vegna áhættuálags, þ.m.t. gamma og kross-gamma áhrif,
c) flökt áætlaðrar fylgni, þ.m.t. víxlverkun milli álags og fylgni,
d) grunnáhættu, þ.m.t. bæði:
i. mismuninn á álagi á vísitölu og álagi á einstaka aðila í vísitölunni, og
ii. mismuninn á álagi á milli áætlaðrar fylgni vísitölu og sérsniðinna verðbréfasafna,
e) flökt endurheimtarhlutfalls, þar sem endurheimtarhlutfallið hefur tilhneigingu til að hafa áhrif á verð lagskiptra hluta verðbréfana, og
f) að því marki sem heildaráhættumat tekur til ávinnings af öflugri áhættuvörn, hættu á að áhættuvörn sígi og mögulegs kostnaðar við að endurstilla slíka áhættuvörn,
Að því er varðar þennan lið skal stofnun hafa yfir að ráða fullnægjandi markaðsgögnum til að tryggja að hún greini megináhættur þessara áhættuskuldbindinga í innri aðferðum sínum í samræmi við staðlana sem settir eru fram í þessum lið, að hún við afturvirkt eftirlit eða með öðrum viðeigandi aðferðum sýni fram á að áhættumat þess geti skýrt sögulegar verðbreytingar þessara afurða og geti aðskilið þær stöður, sem hún hefur samþykki fyrir að telja með í eiginfjárkröfum í samræmi við þennan lið, frá stöðum sem hún hefur ekki slíkt samþykki fyrir.
Að því er varðar eignasöfn sem falla undir þennan lið skal stofnunin reglulega beita fyrirfram ákveðinni hermun álagsaðstæðna á þau. Við slíka hermun álagsaðstæðna skal athuga áhrif álags á vanskilahlutfall, endurheimtarhlutfall, áhættuálag og fylgni hagnaðar og taps á fylgniviðskiptaborði. Stofnunin skal beita slíkri hermun álagsaðstæðna að lágmarki vikulega og gefa lögbærum yfirvöldum skýrslu um niðurstöðurnar eigi sjaldnar en ársfjórðungslega, þ.m.t. samanburð við eiginfjárkröfur stofnunar í samræmi við þennan lið. Ef álagspróf gefur til kynna að verulega skorti upp á þessar eiginfjárkröfur skal tilkynna það tímanlega þar til bærum yfirvöldum. Á grundvelli niðurstaðna álagsprófunar skulu lögbær yfirvöld taka til athugunar viðbótareiginfjárkröfur vegna fylgniviðskiptasafns eins og sett er fram í 2. mgr. 136. gr. tilskipunar 2006/48/EB.
Stofnun skal reikna út eiginfjárkröfur í því skyni að greina alla verðáhættu að lágmarki vikulega.“,
e) í stað 6. liðar komi eftirfarandi:
„6. Stofnanir sem nota innri líkön, sem eru ekki viðurkennd skv. 5. lið., skulu fullnægja sérstökum eiginfjárkröfum vegna sérstakrar áhættu sem er reiknuð skv. I. viðauka.“,
f) í stað 7. liðar komi eftirfarandi:
„7. Að því er varðar a- og b-lið 10. liðar b skulu niðurstöður útreikninga stofnunarinnar margfaldaðar með margföldunarstuðlunum (mc) og (ms). Þessir stuðlar skulu ekki vera lægri en 3.“,
g) í stað fyrstu málsgreinar í 8. lið komi eftirfarandi:
„Að því er varðar a- og b-lið 10. liðar b, skal hækka margföldunarstuðlana (mc) og (ms) um upphækkunarstuðul sem er á bilinu 0 til 1 í samræmi við töflu 1, miðað við fjölda yfirskota á næstliðnum 250 viðskiptadögum samkvæmt afturvirku eftirliti stofnunarinnar með mati á vágildi sem sett er fram í 10. lið. Lögbær yfirvöld skulu krefjast þess að stofnanir reikni yfirskot út með samræmdum hætti á grundvelli afturvirks eftirlits með tilliti til raunverulegra eða hugsanlegra breytinga á verðgildi verðbréfasafnsins. Yfirskot er eins dags breyting á verðgildi verðbréfasafnsins sem fer fram úr viðkomandi mati á vágildi fyrir einn dag samkvæmt líkani stofnunarinnar. Í þeim tilgangi að ákvarða upphækkunarstuðul skal mæla fjölda yfirskota að lágmarki ársfjórðungslega og skal fjöldinn jafngilda hærra gildinu af yfirskotum samkvæmt hugsanlegum eða raunverulegum breytingum á verðgildi verðbréfasafnsins.“,
h) ákvæði 9. liðar falli brott,
i) eftirfarandi breytingar eru gerðar á 10. lið:
i. í stað c-liðar komi eftirfarandi:
„c) eignartímabil sem samsvarar tíu dögum (stofnanir geta notað vágildistölur sem reiknaðar eru út samkvæmt skemmra eignartímabili og kvarðaðar upp í tíu daga, t.d. með kvaðratrót af tíma. Stofnun sem notar þá aðferð skal reglulega rökstyðja réttmæti aðferðarinnar á fullnægjandi hátt að dómi lögbærra yfirvalda),“,
ii. í stað e-liðar komi eftirfarandi:
„e) gögn séu uppfærð á eins mánaðar fresti.“,
j) eftirfarandi liðir bætast við:
„10a. Auk þess skal hver stofnun reikna út „vágildi við erfiðar aðstæður“ á grundvelli vágildis núverandi verðbréfasafns miðað við tíu daga eignartímabil og einhliða 99% öryggisbil, þar sem ílög í vágildislíkan eru kvörðuð við söguleg gögn frá samfelldu tólf mánaða tímabili verulegra fjárhagserfiðleika sem á við verðbréfasafn stofnunarinnar. Val á slíkum sögulegum gögnum skal vera með fyrirvara um samþykki lögbærra yfirvalda og árlega endurskoðun stofnunarinnar. Evrópska bankaeftirlitsnefndin skal hafa eftirlit með mismunandi starfsvenjum á þessu sviði og semja viðmiðunarreglur til þess að tryggja samleitni. Stofnanir skulu reikna út vágildi við erfiðar aðstæður a.m.k. vikulega.
10b. Hver stofnun skal uppfylla daglega þá eiginfjárkröfu sem sett er fram sem summa a- og b-liðar og stofnun sem notar innra líkan við útreikning á eiginfjárkröfu vegna tiltekinnar stöðuáhættu skal uppfylla eiginfjárkröfu sem sett er fram sem summa c- og d-liðar, sem hér segir:
a) þá sem hærri er af:
i. vágildistölu frá fyrri degi, reiknaða út í samræmi við 10. lið (VaRt-1), og
ii. meðaltal daglegs mats á vágildi í samræmi við 10. lið á hverjum undanfarinna sextíu viðskiptadaga (VaRavg), margfaldað með margfeldisstuðlinum (mc),
b) þá sem hærri er af:
i. síðustu tiltæku vágildistölu við erfiðar aðstæður í samræmi við 10. lið a (sVaRt-1), og
ii. meðaltali vágildistalna við erfiðar aðstæður sem reiknaðar eru út með þeim hætti og eins oft og tilgreint er í 10. lið a á næstliðnum sextíu viðskiptadögum (sVaRavg), margfaldað með margfeldisstuðlinum (ms),
c) eiginfjárkröfu sem reiknuð er út í samræmi við I. viðauka vegna stöðuáhættu verðbréfaðra staðna og lánaafleiða sem byggjast á n-ta vanskilaaðila í veltubók að undanskildum þeim sem falla undir eiginfjárkröfur í samræmi við 5. lið l,
d) því hærra af nýjasta og tólf vikna meðaltali aukinnar vanskila- og tilfærsluáhættu stofnunar í samræmi við 5. lið a og, eftir atvikum, því hærra af nýjasta og tólf vikna meðaltali allrar verðáhættu stofnunar í samræmi við 5. lið l.
10c. Stofnanir skulu einnig framkvæma öfug álagspróf.“,
k) í stað fyrstu málsgreinar í 12. lið komi eftirfarandi:
„12. Áhættumatslíkanið skal greina nógu marga áhættuþætti, eftir umsvifum stofnunarinnar á viðkomandi mörkuðum. Ef áhættuþáttur er tekinn með í verðmatslíkani stofnunar en ekki í áhættumatslíkanið skal stofnunin geta réttlætt, á fullnægjandi hátt að mati lögbærs yfirvalds, að sá þáttur sé undanskilinn. Auk þess skal áhættumatslíkanið greina ólínuleg einkenni valrétta og annarra afurða auk fylgniáhættu og grunnáhættu. Ef notaðir eru áætlaðir áhættuþættir skal sýnt fram á góðan fyrri árangur staðna sem haldið er í raun. Auk þess gildir eftirfarandi fyrir einstakar tegundir áhættu:“.
4) Ákvæðum B-hluta VII. viðauka er breytt sem hér segir:
a) í stað a-liðar í 2. lið komi eftirfarandi:
„a) skjalfesta stefnu og verklagsreglur fyrir matsferlið, þ.m.t. skýrt skilgreind ábyrgð mismunandi sviða sem koma að ákvörðun matsins, markaðsupplýsingabrunnar og mat á því hvort þeir séu viðeigandi, viðmiðunarreglur um notkun ósannreynanlegs ílags sem endurspeglar forsendur stofnunar varðandi hvað markaðsaðilar myndu nota við verðlagningu á stöðu, tíðni óháðs mats, tímasetningu lokaverðs, verklagsreglur um leiðréttingu á mati, um sannprófun við mánaðarlok og verklagsreglur við sérstakar aðstæður, “,
b) í stað 3. liðar komi eftirfarandi:
„3. Stofnanir skulu færa stöður sínar á markaðsvirði þegar því verður við komið. Færsla á markaðsvirði er minnst daglegt mat á stöðum á lokaverði sem auðvelt er að nálgast hjá óháðum aðilum. Dæmi um þetta er m.a. verð á verðbréfamörkuðum, skjáverð eða markaðsverð frá nokkrum óháðum og virtum miðlurum.“,
c) í stað 5. liðar komi eftirfarandi:
„5. Ef ekki er unnt að færa stöður á markaðsvirði verða stofnanir að færa stöður sínar/verðbréfasafn á útreiknuðu virði áður en þær reikna eiginfjárkröfur með aðferðum sem gilda um veltubók. Útreiknað virði er skilgreint sem hvert það mat sem þarf að setja sem viðmiðun, framreikna eða á annan hátt reikna út frá markaðsgögnum.
d) í stað a-liðar í 6. lið komi eftirfarandi:
„a) yfirstjórn skal hafa vitneskju um þá þætti veltubókarinnar, eða annarra staðna á gangvirði, sem eru háðir útreiknuðu virði og hún verður að gera sér ljóst mikilvægi þeirrar óvissu sem þetta skapar í reikningsskilum að því er varðar áhættu/rekstrarárangur fyrirtækisins,“,
e) eftirfarandi komi í stað 8. og 9. liðar:
„Virðisleiðréttingar
8. Stofnanir skulu koma á og viðhalda verklagsreglum um hvernig beri að taka tillit til virðisleiðréttinga.
Almennir staðlar
9. Lögbær yfirvöld skulu krefjast þess að formlega verði tekið tillit til eftirfarandi virðisleiðréttinga: óinnleysts áhættuálags, uppgjörskostnaðar, rekstraráhættu, slita fyrir lok samningstíma, fjárfestingar- og fjármögnunarkostnaðar, væntanlegs stjórnunarkostnaðar og, ef við á, líkansáhættu.“,
f) í stað 11. til 15. liðar komi eftirfarandi:
„11. Stofnanir skulu koma á og viðhalda verklagsreglum við að reikna út leiðréttingu á gildandi verðmati á stöðum sem eru ekki mjög seljanlegar. Slík leiðrétting skal, ef nauðsyn krefur, vera til viðbótar við breytingar á virði stöðu sem krafist er vegna reikningsskila og skulu gerðar til að endurspegla illseljanleika stöðunnar. Samkvæmt þessum verklagsreglum skulu stofnanir taka til athugunar nokkra þætti þegar þær ákvarða hvort virðisleiðrétting sé nauðsynleg vegna staðna sem eru ekki mjög seljanlegar. Þeir þættir eru m.a. sá tími sem það tæki að áhættuverja stöðu eða gegn áhættu innan stöðunnar, flökt og meðaltal mismunar á kaup-/sölutilboðum, hvort markaðsverð liggur fyrir (fjöldi og auðkenni viðskiptavaka) og flökt og meðaltal veltu skráðra verðbréfa, þ.m.t. veltu við erfiðar markaðsaðstæður, markaðssamþjöppun, aldursgreining staðna, að hve miklu leyti verðmat byggist á útreiknuðu virði og áhrif annarrar líkansáhættu.
12. Þegar notast er við mat frá þriðja aðila eða útreiknað virði skulu stofnanir taka til athugunar hvort þær eigi að beita virðisleiðréttingu. Að auki skulu stofnanir taka til athugunar hvort þörf sé á að gera leiðréttingar vegna staðna sem eru ekki mjög seljanlegar og endurskoða á áframhaldandi grundvelli hvort þær séu hæfilegar.
13. Að því er varðar flóknar afurðir þ.m.t., en ekki einskorðað við, verðbréfaðar áhættuskuldbindingar og lánaafleiður sem byggjast á n-ta vanskilaaðila, skulu stofnanir meta þörf á virðisleiðréttingum til að endurspegla líkansáhættu í tengslum við beitingu matsaðferðar sem mögulega er röng og líkansáhættu í tengslum við ósannreynanlegar (og mögulega rangar) kvörðunarbreytur í virðislíkaninu.“.
- Neðanmálsgrein: 1
- (1) Stjtíð. ESB L 341, 22.12.2011, bls. 81, og EES-viðbætir við Stjtíð. ESB nr. 70, 22.12.2011, bls. 17.
- Neðanmálsgrein: 2
- (2) Stjtíð. ESB L 329, 14.12.2010, bls. 3.
- Neðanmálsgrein: 3
- (*) Stjórnskipuleg skilyrði gefin til kynna.
- Neðanmálsgrein: 4
- (1) Stjtíð. ESB C 291, 1.12.2009, bls. 1.
- Neðanmálsgrein: 5
- (2) Álit frá 20. janúar 2010 (hefur enn ekki verið birt í Stjórnartíðindum ESB).
- Neðanmálsgrein: 6
- (3) Afstaða Evrópuþingsins frá 7. júlí 2010 (hefur enn ekki verið birt í Stjórnartíðindum ESB) og ákvörðun ráðsins frá 11. október 2010.
- Neðanmálsgrein: 7
- (4) Stjtíð. ESB L 177, 30.6.2006, bls. 1.
- Neðanmálsgrein: 8
- (5) Stjtíð. ESB L 177, 30.6.2006, bls. 201.
- Neðanmálsgrein: 9
- (6) Stjtíð. ESB L 145, 30.4.2004, bls. 1.
- Neðanmálsgrein: 10
- (1) Stjtíð. ESB L 120, 15.5.2009, bls. 22.
- Neðanmálsgrein: 11
- (1) Stjtíð. EB L 281, 23.11.1995, bls. 31.
- Neðanmálsgrein: 12
- (1) Stjtíð. ESB C 321, 31.12.2003, bls. 1.