Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 601. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1239  —  601. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit



um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu samninga um veiðar
úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2012.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Tómas Heiðar frá utanríkisráðuneytinu.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta þrjá samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2012 sem gerðir voru í London 14. október 2011. Um er að ræða sameiginlega bókun milli Evrópusambandsins, Færeyja, Íslands, Noregs og Rússneska sambandsríkisins um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2012; samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands á árinu 2012; og samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2012.
    Með þessum árlegu fimmhliða samningum um norsk-íslenska síldarstofninn skiptast veiðiheimildir í sömu hlutföllum og gilt hafa frá árinu 2007. Vegna minni árganga undanfarinna sjö ára en á tímabilinu 1998–2004 er heildarafli minnkaður verulega á milli ára og þar með veiðiheimildir allra samningsaðila. Heildaraflamark var ákveðið 833.000 lestir en var 988.000 lestir árið 2011 og 1.483.000 lestir árið 2010.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Bjarni Benediktsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ragnheiður E. Árnadóttir og Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 26. apríl 2012.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Helgi Hjörvar.


Lúðvík Geirsson.



Róbert Marshall.


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.