Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 11. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 11  —  11. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um sjóferðabækur.

Frá Kristjáni Þór Júlíussyni.


    Hver er ástæða þess að íslensk stjórnvöld sjá sér ekki fært að gefa út sjóferðabækur til handa íslenskum sjómönnum eins og þeim ber að gera samkvæmt alþjóðalögum?


Skriflegt svar óskast.