Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 240. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 264  —  240. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um flughlað og nýja flugstöð á Akureyrarflugvelli.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.


     1.      Hvað líður uppbyggingaráformum við flughlað og nýja flugstöð á Akureyrarflugvelli?
     2.      Hefur samkomulag náðst um að nota hratið úr Vaðlaheiðargöngum í nýtt flughlað?
     3.      Hver er áætlaður kostnaður vegna vinnu við nýtt flughlað?
     4.      Ef af verður hvernig verður verkinu háttað með tilliti til samgangna?
     5.      Hvenær eru verklok áætluð við gerð nýs flughlaðs?
     6.      Hvað gildir undanþága vegna núverandi flughlaðs lengi (nálægð við flugbraut)?


Skriflegt svar óskast.