Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 304. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
2. uppprentun.

Þingskjal 337  —  304. mál.
Flutningsmenn.




Tillaga til þingsályktunar


um viðskiptastefnu Íslands.


Flm.: Guðlaugur Þór Þórðarson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir,
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Pétur H. Blöndal.


    Alþingi ályktar að fela ráðherra að móta viðskiptastefnu sem hafi að markmiði að jafna samkeppnisstöðu innlendrar verslunar gagnvart erlendri og lækka vöruverð til hagsbóta fyrir neytendur.

Greinargerð.

    Í þingsályktunartillögu þessari er lagt til að mótuð verði viðskiptastefna í þeim tilgangi að auka veg innlendrar verslunar og neytenda. Liður í að ná þeim markmiðum er að endurskoða fyrirkomulag skattamála, þ.m.t. tolla og vörugjalda. Ísland er ekki í tollabandalagi og hafa stjórnvöld fullt forræði á að lækka tolla. Fram til þessa hefur stefna stjórnvalda verið að lækka ekki tolla nema á grundvelli gagnkvæmra ívilnana í gegnum Alþjóðaviðskiptastofnunina, EFTA eða með tvíhliða samningum.
    Tollalöggjöf er almennt ætlað að standa undir tekjuöflun ríkissjóðs um leið og henni er beitt til verndar tilgreindum hagsmunum eins og innlendri framleiðslu. Almenn stefna stjórnvalda hefur verið að fella ekki niður tolla nema gegn opnun markaða fyrir innlendar framleiðsluvörur í landi viðsemjenda. Hafa stjórnvöld litið svo á að einhliða niðurfelling óháð uppruna vöru væri til þess fallin að veikja samningsstöðu Íslands í fríverslunarviðræðum. Eftirtektarverð eru ummæli í skýrslu Samtaka verslunar og þjónustu frá febrúar sl. að víðtæk notkun vörugjaldsins megi rekja til þess tíma er tollar voru lækkaðir vegna aðildar Íslands að EFTA og vörugjald lagt á innfluttar og innlendar vörur til þess að mæta tekjutapi ríkisins.
    Um leið og taka má undir mikilvægi þess að fjölga eigi fríverslunarsamningum og ýta undir fríverslun í heiminum á vettvangi viðeigandi alþjóðastofnana á sú viðleitni ekki að girða með öllu fyrir að íslensk stjórnvöld lækki álögur einhliða og án gagnkvæmra ívilnana.

Fátækraskattur.
    Ástandið í dag er skattur á fátækt fólk. Þeir sem ekki hafa efni á að fara til annarra landa til að versla sitja uppi með hærra vöruverð. Sem dæmi benda nýlegar kannanir Capacent Gallup til þess að stór hluti af fatakaupum Íslendinga eigi sér stað erlendis (sjá meðfylgjandi fylgiskjal). Áform ríkisstjórnarinnar um að beita skattkerfinu í þágu jafnaðar ættu að gefa tilefni til þess að lækka álögur á vöru og þjónustu innan lands sem að líkindum mundi hafa í för með sér fjölgun starfa hér á landi. Fram kemur í niðurlagi umræddrar skýrslu SVÞ að afnám vörugjaldsins á tilgreindum vöruflokkum mundi leiða til aukinnar sölu innan lands og þar af leiðandi aukinna tekna til ríkisins.
Fylgiskjal.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.