Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 306. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 339  —  306. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra um stuðning við frumkvöðla- og nýsköpunarstarf.

Frá Arnbjörgu Sveinsdóttur.


     1.      Hversu háum fjárhæðum hefur verið varið til stuðnings frumkvöðla- og nýsköpunarstarfi á árunum 2010 og 2011?
     2.      Hvaða áætlanir liggja fyrir um stuðning við frumkvöðla- og nýsköpunarstarf fyrir árin 2012 og 2013?
     3.      Hvernig skiptist þessi stuðningur eftir landshlutum?
     4.      Hvernig skiptist þessi stuðningur eftir atvinnugreinum?
     5.      Hversu mikill hluti þessa stuðnings beinist að konum og fyrirtækjum þeirra?


Skriflegt svar óskast.