Ferill 373. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1259 — 373. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um friðlýst svæði.
1. Hver eru friðlýst svæði, friðaðar vistgerðir, vistkerfi og tegundir á Íslandi og á hvaða forsendum voru þau friðlýst og friðuð?
Á grunni náttúruverndarlaga, nr. 60/2013, hafa 118 svæði verið friðlýst á mismunandi forsendum sem koma fram í viðkomandi friðlýsingarflokki og skilmálum. Einnig hafa dropsteinar og þörungategundin kúluskítur (vatnaskúfur) verið friðuð ásamt 31 tegund plantna.
Í lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, nr. 64/1994, eru öll villt dýr friðuð, þ.m.t. þau sem koma reglulega eða kunna að berast til landsins, nema annað sé tekið fram. Í lögunum er að finna sértæk friðunarákvæði sem veita lagastoð reglugerðar nr. 250/1996 sem tekur til friðlýsingar æðarvarps, verndar arnarhreiðra og hreiðurstæða sex fuglategunda.
Fimm svæði eru friðlýst eða njóta verndar samkvæmt sérlögum frá Alþingi. Þetta eru Breiðafjörður (lög nr. 54/1995), Mývatn og Laxá (lög nr. 97/2004), Vatnajökulsþjóðgarður (lög nr. 60/2007), þjóðgarðurinn á Þingvöllum (lög nr. 47/2004) og Þingvallavatn og vatnasvið þess (lög nr. 85/2005).
Jafnframt eru allar selategundir friðaðar fyrir veiðum á grundvelli reglugerðar nr. 1100/2019 með stoð í lögum um lax- og silungsveiði nr. 61/2006. Fiskistofa getur þó veitt leyfi til takmarkaðra veiða á sel til eigin nytja innan netlaga þar sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag. Þá eru allar hvalategundir friðaðar, nema hrefna og langreyður, með stoð í lögum um hvalveiðar, nr. 26/1949.
Til eru svæði í hafi og við strendur sem njóta verndar samkvæmt náttúruverndarlögum og lögum um vernd Breiðafjarðar. Þá eru nokkur hafsvæði lokuð fyrir fiskveiðum og skilgreind sem friðuð hafverndarsvæði á grunni ákvæða í lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Hvað varðar umfjöllun um hafverndarsvæði vísast í svar ráðherra við fyrirspurn á þskj. 628 í 238. máli á 150. löggjafarþingi 2019–2020.
Í viðauka I og II eru yfirlit yfir þessi náttúrufyrirbæri og forsendur friðunar og friðlýsinga þeirra.
2. Hvaða svæði, vistkerfi, vistgerðir og tegundir eru í ferli til friðunar í ráðuneytinu, hversu langt er ferlið komið og á hvaða forsendum á að friðlýsa eða friða?
Unnið er að undirbúningi ýmissa friðana og friðlýsinga. Sá undirbúningur er ýmist á ábyrgð Umhverfisstofnunar, þegar um er að ræða friðlýsingar á grunni náttúruverndarlaga, eða á ábyrgð ráðuneytis ef um er að ræða friðlýsingar á grunni sérlaga, svo sem laga um Vatnajökulsþjóðgarð eða um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Jafnframt skipaði ráðherra árið 2018 sérstakt samstarfsteymi umhverfis- og auðlindaráðuneytis og Umhverfisstofnunar um friðlýsingar. Þá er kveðið á um það í sáttmála Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf að unnið skuli að stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu og sérstök áhersla skuli lögð á friðlýsingar kosta í verndarflokki rammaáætlunar auk verndarsvæða í samræmi við náttúruverndaráætlun.
Upplýsingar um friðlýsingar í vinnslu hjá Umhverfisstofnun og stöðu hverju sinni eru aðgengilegar á heimasíðu stofnunarinnar. 1
Skipta má þeim verkefnum sem unnið er að í eftirtalda flokka:
Hálendisþjóðgarður.
Unnið er að friðlýsingu miðhálendisins sem þjóðgarðs, en gert er ráð fyrir að hann taki að lágmarki til þjóðlendna innan miðhálendislínu. Forsendur friðlýsingar hans er að finna í skýrslu 2 nefndar sem vann að undirbúningi hans. Gert er ráð fyrir að leggja frumvarp fyrir Alþingi á 151. löggjafarþingi haustið 2020 um stofnun hálendisþjóðgarðs sem veiti heimildir til friðlýsingar hans.
Undirbúningur að framkvæmdaáætlun (B-hluta) náttúruminjaskrár.
Í lögum um náttúruvernd nr. 60/2013 er gert ráð fyrir að unnið verði að neti verndarsvæða í landinu til að tryggja verndarmarkmið laganna. Skal ráðherra undirbúa og leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun til næstu fimm ára, þ.e. skrá yfir þær náttúruminjar sem Alþingi hefur ákveðið að setja í forgang um friðlýsingu eða friðun á næstu fimm árum. Undirbúningur þessa er á ábyrgð fagstofnana ráðuneytisins og liggja núna fyrir drög að tillögum um svæði og forsendum friðunar og friðlýsinga af hálfu Náttúrufræðistofnunar Íslands. 3 Þessar tillögur byggjast meðal annars á yfirgripsmikilli vinnu við flokkun landsins í vistgerðir og greiningum á mikilvægum búsvæðum fugla sem komu út nýlega á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands í tveimur skýrslum um vistgerðir 4 og um mikilvæg fuglasvæði. 5
Undirbúningur þessa stendur yfir og er gert ráð fyrir að hægt verði að leggja þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár (B-hluta) fyrir Alþingi á 151. löggjafarþingi veturinn 2020–2021, að undangenginni kynningu og samráðsferli til samræmis við lögin.
Svæði á náttúruverndaráætlunum.
Alþingi hefur samþykkt sem þingsályktanir tvær náttúruverndaráætlanir á grunni eldri náttúruverndarlaga (nr. 44/1999). Unnið hefur verið að friðlýsingu á þeim svæðum sem þar eru tilgreind og þeim forsendum sem þar eru settar fram. Náttúruverndaráætlun 2004–2008 var samþykkt á Alþingi 28. maí 2004 6 og Náttúruverndaráætlun 2009–2013 var samþykkt 2. febrúar 2010. 7
Svæði í verndarflokki rammaáætlunar.
Unnið er að friðlýsingu svæða gegn orkuvinnslu sem eru í verndarflokki rammaáætlunar, sbr. lög um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011. Í þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, sem samþykkt var á Alþingi 14. janúar 2013 (2. áfangi rammaáætlunar), eru tilgreindir 20 orkuvinnslukostir í vatnsafli og jarðvarma á 12 svæðum sem skulu friðlýst gegn orkuvinnslu. 8
Svæði undir álagi ferðamanna.
Mörg svæði á landinu eru undir álagi ferðamanna þar sem miklu skiptir að geta sett reglur um umgengni, stundað landvörslu og skipulega uppbyggingu innviða til verndar náttúru. Sérstaklega er kveðið á um það í sáttmála ríkisstjórnarinnar að mögulegt sé að beita friðlýsingum sem stjórntæki á viðkvæmum ferðamannasvæðum. Unnið er að friðlýsingu nokkurra svæða sem eru undir álagi ferðamanna.
Friðlýsing svæða að ósk sveitarfélaga eða landeigenda.
Í nokkrum tilvikum óska sveitarfélög, landeigendur eða aðrir hagaðilar eftir samstarfi við yfirvöld um friðun og friðlýsingu svæða. Fagstofnanir leggja mat á náttúruverndargildi slíkra svæða. Unnið er að friðlýsingu nokkurra slíkra svæða.
3. Hve stór eru einstök svæði sem friðuð hafa verið og hvert er mat ráðherra á umfangi, ástandi eða viðgangi vistgerða, vistkerfa og tegunda sem friðlýst og friðuð hafa verið?
Upplýsingar um stærð einstakra friðlýstra svæða er að finna í töflu í viðauka I. Jafnframt eru ítarlegri upplýsingar um mörk og stærð svæða á heimasíðu hvers friðlýsts svæðis hjá Umhverfisstofnun. 9
Í lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, er lögð áhersla á að byggja upp skipulegt net verndarsvæða til að stuðla að því að verndarmarkmið laganna náist, sbr. 2. og 3. gr. þeirra. Núverandi umfang friðaðra og friðlýstra svæða nær því ekki og er fyrirliggjandi tillaga Náttúrufræðistofnunar Íslands, sbr. svar við 2. tölul. fyrirspurnarinnar, að framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár (B-hluti) fyrsta tillaga að svæðum sem þurfi að friða eða friðlýsa til að vinna að verndarmarkmiðum laganna og byggja upp skipulegt net verndarsvæða í landinu.
Umhverfisstofnun vinnur skipulega að mati á ástandi friðlýstra svæða á vegum stofnunarinnar og tekur það út árlega. Þær skýrslur eru gefnar út reglulega. 10 Bæði Vatnajökulsþjóðgarður og Þingvallaþjóðgarður vinna að innleiðingu svipaðrar aðferðafræði á viðkomandi svæðum.
Unnið er að eflingu vöktunar á friðlýstum svæðum. Árið 2019 hófst vöktunarverkefni á landsvísu, þar sem byggja á upp skipulega náttúrufarsvöktun á náttúruverndarsvæðum landsins, með sérstaka áherslu á þau sem eru undir álagi ferðamanna. Framkvæmd verkefnisins er á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands og allra átta náttúrustofa landsins í samstarfi við umsjónarstofnanir friðlýstra svæða. Það verkefni mun í framtíðinni afla og miðla upplýsingum um ástand og viðgang friðlýstra svæða landsins.
4. Hvaða úttektir eða rannsóknir hafa verið gerðar á framangreindum friðlýstum svæðum, friðuðum vistgerðum, vistkerfum og tegundum sem friðlýst hafa verið? Í hvaða tilfellum eru til stjórnunar- og verndaráætlanir og ef þær eru ekki til, hvernig gengur vinna við þær í einstökum tilfellum?
Ekki liggur fyrir yfirlit yfir allar þær fjöldamörgu úttektir og rannsóknir sem hafa verið gerðar á friðlýstum svæðum, friðuðum vistgerðum, vistkerfum og tegundum sem friðlýst hafa verið. Slíkar rannsóknir eru til á mörgum viðfangsefnum innan slíkra svæða svo sem á sviði ferðaþjónustu, þolmarka, öryggismála, hagrænna áhrifa, menningarminja og fornleifa, jöklafræði, líffræði, jarðfræði og stjórnkerfa svo að nokkur helstu viðfangsefni séu talin til. Hafa þær verið gefnar út á ýmsan hátt, sem bækur, vísindagreinar, námsritgerðir og ýmiss konar skýrslur. Umsjónarstofnanir friðaðra og friðlýstra svæða veita leyfi fyrir umfangsmeiri rannsóknum sem fara fram á viðkomandi svæðum.
Stjórnunar- og verndaráætlanir.
Stjórnunar- og verndaráætlanir hafa verið unnar fyrir langstærstan hluta friðaðra og friðlýstra svæða á landinu eða um 4/ 5 flatarmáls þeirra. Stjórnunar- og verndaráætlanir hafa verið unnar og gefnar út fyrir þau svæði sem friðlýst eru á grunni sérlaga, þ.e. fyrir Vatnajökulsþjóðgarð, Þingvallaþjóðgarð, Mývatn og Laxá og Breiðafjörð samkvæmt þeim ákvæðum sem um þau gilda.
Á vegum Umhverfisstofnunar hafa verið gefnar út 26 stjórnunar- og verndaráætlanir fyrir friðlýst svæði í umsjón stofnunarinnar og vinna við 12 stjórnunar- og verndaráætlanir til viðbótar hafin, en þrjár þeirra eru endurskoðun á gildandi áætlunum. Markmiðið er að gera stjórnunar- og verndaráætlanir fyrir öll friðlýst svæði í umsjón stofnunarinnar og er unnið að því eftir ákveðinni forgangsröðun. Upplýsingar um stjórnunar- og verndaráætlanir eru á heimasíðu stofnunarinnar þar sem er að finna tengla á allar útgefnar stjórnunar- og verndaráætlanir, áætlanir í vinnslu, forgangsröðun vinnunnar og þær sem eru í kynningarferli í hvert skipti. 11
Verkferil um gerð stjórnunar- og verndaráætlana hjá Umhverfisstofnun er að finna í Handbók um stjórnun friðlýstra svæða í umsjón Umhverfisstofnunar (bls. 22–29). 12
5. Í hvaða tilfellum hefur friðlýsingu og friðun verið aflétt?
Árið 2004 var lögum um verndarsvæði Mývatns og Laxár breytt (nr. 97/2004) og umfang friðlýsta svæðisins minnkað. Friðlýsingu Búrfells, Búrfellsgjár og eystri hluta Selgjár var aflétt árið 2014. Friðlýsing svæðisins er í vinnslu á ný að beiðni sveitarfélagsins Garðabæjar. Að öðru leyti hefur ekki verið um afnám friðlýsingar að ræða, en í nokkrum tilfellum hefur mörkum og/eða friðlýsingarskilmálum verið breytt.
Viðauki I.
Friðlýst svæði, flokkur friðlýsingar, stærð, staða stjórnunar- og verndaráætlunar og forsendur friðlýsingar.
| FLOKKUR FRIÐLÝSINGAR |
STÆRÐ (HA)* |
S/V ** |
FORSENDUR FRIÐLÝSINGAR | |
| Svæði á Suðvesturlandi | ||||
| Akurey | Friðland | 207,00 | X | Stuðla að vernd líffræðilegar fjölbreytni með því að vernda alþjóðlega mikilvægt fuglasvæði í Reykjavík. |
| Árnahellir | Náttúruvætti | 8,00 | Vernd einstæðra jarðmyndana. Fáir hellar hafa jafn glæsilegar og ósnortnar hraunmyndanir. Mikið af dropsteini. | |
| Álafoss | Náttúruvætti | 1,40 | / | Vernd fossins sjálfs, nánasta umhverfi hans sem og menningarminjar sem tengjast sögu og þróun Mosfellsbæjar. |
| Ástjörn | Friðland | 25,00 | Stuðla að vernd tjarnarinnar sjálfrar og svæðisins umhverfis hana sem einkennist af mjög auðugu gróður- og dýralífi, m.a. smádýra. Á svæðinu má finna flórgoða sem er alfriðuð tegund á válista. | |
| Ástjörn – Ásfjall | Fólkvangur | 56,90 | Útivistarsvæði. | |
| Bakkatjörn | Friðland | 14,90 | Vernd votlendis, gróðurs-, fugla- og smádýralífs. | |
| Bláfjöll | Fólkvangur | 9.035,00 | Útivistarsvæði með góðri aðstöðu fyrir skíðafólk. | |
| Borgir | Náttúruvætti | 4,10 | Vernd jarðminja. | |
| Bringur | Fólkvangur | 18,60 | Útivistarsvæði með áherslu á náttúruskoðun og fræðslu. Verndar auk þess sérstakar náttúru- og menningarminjar. | |
| Eldborg í Bláfjöllum | Náttúruvætti | 34,80 | Vernd jarðminja og landslags. | |
| Eldborg undir Geitahlíð | Náttúruvætti | 100,50 | Vernd jarðminja. | |
| Eldey | Friðland | 2,00 | Vernd fuglalífs, búsvæði súlu. | |
| Fjaran við Kasthúsatjörn | Fólkvangur | 17,60 | Útivist og almenningsnot. Sérstaklega áhugavert svæði til náttúru-, fugla- og fjöruskoðunar. | |
| Fossvogsbakkar | Náttúruvætti | 17,80 | X | Vernd fágætra jarðminja í jarðsögu Reykjavíkur, Fossvogslögin. |
| Garða- og Vífilsstaðahraun, Maríuhellar | Fólkvangur | 156,30 | Útivist, náttúruskoðun og fræðsla í náttúrulegu umhverfi. Verndun jarðmyndana, gróðurfars, fuglalífs og menningarminja, m.a. fornar rústir. | |
| Gálgahraun | Friðland | 108,50 | Vernd nyrsta hluta Búrfellshrauns, bæði vegna jarðmyndana og lífríkis. Jafnframt að varðveita Gálgahraun sem vettvang náttúruskoðunar og fræðslu um ókomna tíð. | |
| Grótta | Friðland | 39,60 | Vernd fuglalífs. | |
| Hamarinn | Náttúruvætti | 2,10 | Vernd jarðminja og lífríkis. | |
| Háubakkar við Elliðaárvog | Náttúruvætti | 2,10 | X | Vernd fágætra jarðminja og svæðisins í núverandi mynd. Á svæðinu er að finna þykk setlög sem bera merki um áhrif loftslagsbreytinga á ísöld. |
| Hleinar | Fólkvangur | 32,30 | Vernd fjöru og útivistarsvæðis í fögru hraunumhverfi sem vaxið er náttúrulegum gróðri. Jafnframt verndun búsetulandslags og menningarminja. | |
| Hlið | Fólkvangur | 39,60 | Útivist og almenningsnot. | |
| Hvaleyrarlón og Hvaleyrarhöfði | Fólkvangur | 39,90 | Útivistar- og fræðslusvæði til útiveru og fuglaskoðunar ásamt verndun lífríkis og leira svæðisins sem er m.a. mikilvægt búsvæði fugla. | |
| Kaldárhraun og Gjárnar | Náttúruvætti | 208,90 | Vernd helluhraunsmyndunar og fagurra klettamyndana í vestari hrauntröðinni frá Búrfelli. | |
| Kasthúsatjörn | Friðland | 4,20 | Vernd fjölskrúðugs fuglalífs og lífríkis tjarnarinnar. | |
| Laugarás | Náttúruvætti | 1,50 | X | Vernd fágætra jarðminja svæðisins og vilji til að halda opnu svæði þar sem unnt væri að skoða þær merku jarðminjar sem eru á svæðinu. |
| Litluborgir | Náttúruvætti | 10,60 | Vernd sérstæðra jarðmyndana í landi Hafnarfjarðar m.a. vegna mikils fræðslugildis. | |
| Rauðhólar | Fólkvangur | 130,20 | / | Vernd jarðminja, útivistarsvæði. |
| Reykjanesfólkvangur | Fólkvangur | 29.262,70 | Vernd jarðminja og gróðurfars, útivistarsvæði. | |
| Skerjafjörður, Garðabæ | Búsvæði | 427,50 | Vernd lífríkis á strönd, í fjöru og grunnsævi Skerjafjarðar, m.a. vegna útivistar- og fræðslugildis svæðisins sem felst í auðugu lífríki og möguleikum til útivistar við ströndina. | |
| Skerjafjörður, Kópavogi | Búsvæði | 62,60 | Vernd lífríkis við ströndina, í fjöru og á grunnsævi, m.a. vegna útivistar- og fræðslugildis svæðisins, einkum með tilliti til fugla. | |
| Steðji á Skeiðhól | Náttúruvætti | 3,20 | X | Vernd jarðfræði og menningarlegt gildi. |
| Stekkjarhraun | Fólkvangur | 15,90 | Vernd útivistarsvæðis í fögru hraunumhverfi með athyglisverðu gróðurlendi og sérstökum menningarminjum. Vernd votlendisbletta við Lækinn, þar sem m.a. vaxa horblaðka og starir. | |
| Tröllabörn | Náttúruvætti | 4,70 | Vernd jarðminja. | |
| Tungufoss | Náttúruvætti | 1,40 | / | Vernd fossins sjálfs sem og menningarminja í nágrenni hans. Svæðið hefur mikið útivistargildi. |
| Valhúsahæð | Náttúruvætti | 1,70 | Vernd minja um hærri sjávarstöðu í lok ísaldar og menningarminja sem tengjast hernámi. | |
| Varmárósar | Friðland | 9,76 | / | Vernd og viðhald fitjasefs og búsvæðis þess sem og náttúrulegs ástands votlendis Varmárósa ásamt sérstöku gróðurfari sem þar er. |
| Vífilsstaðavatn | Friðland | 188,30 | Stuðla að varðveislu og viðhaldi náttúrulegs ástands vatnsins og styrkja verndun tegunda og samfélagsgerðar með sérstæðum stofnum bleikju, urriða og hornsíla í vatninu. | |
| Víghólar | Náttúruvætti | 1,40 | Vernd jökulsorfinna grágrýtisklappa, svokölluð hvalbök. | |
| Svæði á Vesturlandi | ||||
| Andakíll | Búsvæði | 3.086,00 | X | Stuðla að varðveislu og viðhaldi náttúrulegs ástands fjölbreytts votlendis og búsvæðis fjölmargra fuglategunda. Tryggja aðgengi almennings að svæðinu og möguleika á rannsóknum. Ramsarsvæði. |
| Bárðarlaug | Náttúruvætti | 43,60 | X | Vernd jarðfræði. Fegurðar-, fræðslu- og vísindagildi er einnig mikið. |
| Blautós – Innstavogsnes | Friðland | 295,00 | Vernd landslags og lífríkis svæðisins þar sem finna má auðugt fuglalíf. | |
| Búðahraun | Friðland | 1.002,90 | Vernd úfins hrauns og fjölbreytts gróðurs. Á svæðinu má finna 11 af 16 þekktum burknategundum á landinu. Vernd gulra fjörusanda sem fátíðir eru á Íslandi. | |
| Einkunnir | Fólkvangur | 265,90 | Vernd jarðmyndana og votlendis í þágu útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu. | |
| Eldborg í Hnappadal | Náttúruvætti | 125,00 | Vernd jarðminja og gróðurs. Formfagur eldgígur. | |
| Geitland | Friðland | 12.821,70 | Vernd jarðmyndana, gróðurs og dýralífs. Víðáttumikil hraun- og sandflæmi sem eiga upptök sín í gígaþyrpingu í rótum Langjökuls. Landið víða vel gróið og þar hafa fundist stórir hellar. | |
| Grábrókargígar | Náttúruvætti | 28,70 | Vernd jarðminja og gróðurs. | |
| Grunnafjörður | Friðland | 1.393,20 | Vernd landslags og lífríkis svæðisins, sér í lagi fuglalífs sem er mjög auðugt. Ramsarsvæði. | |
| Hraunfossar – Barnafoss | Náttúruvætti | 36,10 | Vernd fossa og þeirra nánasta umhverfis, jarðminja, gróðurs og dýralífs. | |
| Húsafellsskógur | Friðland | 163,70 | Vernd birkiskógar. Fjarlægð frá sjó og nágrenni við lindir og ár gerir Húsafellsskóg að sérstæðu búsvæði. | |
| Kalmanshellir | Náttúruvætti | Vernd hellisins, einstæðra jarðmyndana og hellakerfisins alls. | ||
| Melrakkaey | Friðland | 7,30 | Vernd fuglalífs eyjarinnar. | |
| Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull | Þjóðgarður | 17.000,00 | X | Vernd bæði sérstæðrar náttúru svæðisins og merkilegra sögulegra minja. Jafnframt að auðvelda fólki að ferðast um svæðið og kynnast því. |
| Ströndin við Stapa og Hellna | Friðland | 134,40 | / | Vernd jarðminja, landmótunar og fuglalífs. Menningarminjar. |
| Vatnshornsskógur | Friðland | 247,10 | Vernd náttúrulegs, lítt snortins og hávaxins birkiskógar með gróskumiklum botngróðri, ásamt erfðaeiginleika og erfðafjölbreytileika íslenska birkisins. Fundarstaður sjaldgæfra vistgerða. Líffræðileg fjölbreytni og verndun erfðaauðlinda. | |
| Svæði á Vestfjörðum | ||||
| Dynjandi | Náttúruvætti | 644,90 | X | Vernd jarðminja og fossastigans í ánni sem hefur orðið til vegna lagskiptingar bergsins í hraunlög og lausari millilög. Auðvelda almenningi umgengni og kynni af náttúru svæðisins. Menningarminjar og ríkt fegurðargildi. |
| Flatey | Friðland | 84,50 | / | Vernd fuglalífs. |
| Hornstrandir | Friðland | 58.100,00 | X | Vernd lífríkis, jarðminja, óbyggðra víðerna og menningarminja svæðisins. |
| Hrísey | Friðland | 25,70 | Vernd fuglalífs. | |
| Surtarbrandsgil | Náttúruvætti | 272,00 | X | Vernd steingerðra leifa gróðurs sem er að finna í millilögum, einkum surtarbrandi og leirlögum. |
| Vatnsfjörður | Friðland | 20.000,00 | Vernd jarðminja, gróðurs og dýralífs. | |
| Svæði á Norðurlandi vestra | ||||
| Guðlaugstungur | Friðland | 39.820,00 | Vernd víðfeðms og gróskumikils votlendis. Stórt, fjölbreytt og mikilvægt rústasvæði. Svæðið er alþjóðlega mikilvægt fyrir heiðagæs. Ramsarsvæði. | |
| Hrútey í Blöndu | Fólkvangur | 10,70 | Vernd jarðminja og fuglalífs. Aðgengi fyrir fólk. | |
| Hveravellir á Kili | Náttúruvætti | 534,10 | Vernd einstaks hverasvæðis. Fagurlitað mynstur hveranna ásamt tæru vatni sem finna má við þá. | |
| Kattarauga | Náttúruvætti | 0,01 | X | Vernd fljótandi hólma á tjörninni og stöðugu streymi vatns um auga í botni hennar. |
| Miklavatn | Friðland | 1.484,50 | Vernd votlendis með miklu fuglalífi. | |
| Spákonufellshöfði | Fólkvangur | 22,50 | Útivistarsvæði. | |
| Svæði á Norðurlandi eystra | ||||
| Arnarnesstrýtur | Náttúruvætti | 101,00 | / | Vernd einstakra náttúrufyrirbrigða sem felast í myndun hverastrýtanna, efnasamsetningu, útliti og lögun ásamt örveruvistkerfi sem þar þrífst við óvenjulegar aðstæður. Fjölbreytileiki og sérlega mikið lífríki sem hefur hátt vísinda-, fræðslu- og verndargildi. |
| Böggvisstaðafjall | Fólkvangur | 305,90 | Útivistarsvæði. Gjöfult berjaland að sumri og skíðaaðstaða að vetri. | |
| Dettifoss, Selfoss og Hafragilsfoss | Náttúruvætti | 485,10 | Vernd fossaraðar í Jökulsár á Fjöllum og næsta umhverfi þeirra. | |
| Dimmuborgir | Náttúruvætti | 423,00 | X | Vernd sérstæðra jarðmyndana og varðveisla svæðisins vegna mikils fræðslu- og útivistargildis. |
| Friðland í Svarfaðardal | Friðland | 528,70 | / | Vernd lífríkis og landslags samhliða nýtingu. |
| Glerárdalur | Fólkvangur | 7.440,00 | X | Vernd Glerárdals og aðliggjandi fjalllendis til útivistar fyrir almenning, náttúruskoðunar og fræðslu. Vernd lands sem er að mestu ósnortið með fjölbreyttum jarðmyndunum og gróðurfari. |
| Hraun í Öxnadal | Fólkvangur | 2.286,30 | Útivist, náttúruskoðun og fræðsla. Vernd fjölbreytts landslags, náttúrufars og jarðmyndana auk mikilvægra minja um horfna búskaparhætti. | |
| Hverastrýtur í Eyjafirði | Náttúruvætti | 10,00 | X | Vernd einstakra náttúrufyrirbrigða sem felast í myndun hverastrýtanna, efnasamsetningu, útliti og lögun ásamt örveruvistkerfi sem þar þrífst við óvenjulegar aðstæður. |
| Hverfjall (Hverfell) | Náttúruvætti | 312,70 | X | Vernd sérstæðra jarðmyndana vegna mikils fræðslu- og útivistargildis. |
| Krossanesborgir | Fólkvangur | 114,80 | Útivist, náttúruskoðun og fræðsla. Vernd mikilvægs varpstaðar fjölda fuglategunda, búsvæðis sjaldgæfra plöntutegunda og sérstæðra jarðmyndana. | |
| Seljahjallagil | Náttúruvætti | 1.880,70 | Vernd sérstæðra jarðmyndana, auk þess sem svæðið hefur fræðslu- og útivistargildi. Vernd svæðisins tekur einnig til búsvæðaverndar fálka í Mývatnssveit að hluta. | |
| Skútustaðagígar | Náttúruvætti | 70,00 | Vernd útlits og aðgengis gíganna ásamt nýtingarrétti landeigenda. | |
| Vestmannsvatn | Friðland | 562,90 | Vernd votlendis og fuglalífs. | |
| Svæði á Austurlandi | ||||
| Álfaborg | Fólkvangur | 9,80 | Útivistarsvæði. Jarðminjar og menningarlegt gildi. | |
| Blábjörg | Náttúruvætti | 1,49 | Vernd sérstæðra jarðmyndana sem hafa hátt fræðslu- og vísindagildi. | |
| Díma í Lóni | Náttúruvætti | 6,40 | Vernd jarðminja og gróðurfars. | |
| Fólkvangur Neskaupstaðar | Fólkvangur | 318,40 | Útivistarsvæði. | |
| Háalda | Náttúruvætti | 4,90 | Vernd jarðminja. | |
| Hálsar | Búsvæði | 146,00 | Stuðla að varðveislu og viðhaldi náttúrulegs ástands tjarnanna á Hálsum og styrkja verndun eina þekkta búsvæðis tjarnaklukku á landi ásamt öðru lífríki svæðisins. | |
| Helgustaðanáma | Náttúruvætti | 0,90 | X | Vernd jarðminja, sérstaklega silfurbergs. Náman er ein frægasta silfurbergsnáma í heimi. |
| Hólmanes | Fólkvangur/Friðland | 318,00 | X | Auðvelda almenningi aðgang að náttúru og tengdum menningarminjum í nánd við þéttbýli til útivistar náttúruskoðunar og fræðslu. |
| Ingólfshöfði | Friðland | 120,20 | X | Vernd fuglalífs, landslags og menningarminja. |
| Kringilsárrani | Friðland | 6.372,30 | X | Vernd búsvæðis fyrir hreindýr og þar af leiðandi verndun lífríkis, vistgerða og plöntutegunda svæðisins. Jafnframt eru á svæðinu merkilegar jarðminjar sem sumar eru fágætar á heimsvísu. |
| Lónsöræfi | Friðland | 34.528,10 | Vernd jarðminja. | |
| Ósland | Fólkvangur | 16,90 | Tryggja svæði til útivistar og útikennslu í náttúrufræðum í sveitarfélaginu Hornafirði. Einnig að tryggja verndun sérstakra jarðmyndana og fjölbreytts fuglalífs. | |
| Salthöfði – Salthöfðamýrar | Friðland | 230,70 | Vernd jarðminja, fuglalífs og gróðurfars. | |
| Skrúður | Friðland | 196,60 | Vernd fjölbreytts fuglalífs. Búsvæði stormsvölu. | |
| Teigarhorn | Náttúruvætti | 200,00 | Tryggja útivistarsvæði í fögru umhverfi þar sem gestum gefst tækifæri á að kynnast sérstakri náttúru svæðisins og sögu jarðarinnar Teigarhorns. | |
| Teigarhorn | Fólkvangur | 2.010,00 | Varðveita og viðhalda náttúrulegu ástandi svæðisins með tilliti til þeirra jarðlaga sem eru rík af geislasteinum. Einn þekktasti fundarstaður geislasteina (zeólíta) í heimi. | |
| Svæði á Suðurlandi | ||||
| Álftaversgígar | Náttúruvætti | 3.436,10 | Vernd jarðminja. | |
| Dverghamrar | Náttúruvætti | 2,14 | X | Vernd jarðminjar með hátt fræðslugildi. |
| Dyrhólaey | Friðland | 147,20 | X | Vernd fuglalífs, landslags, gróðurs og jarðminja. |
| Friðland að Fjallabaki | Friðland | 47.000,00 | / | Vernd fjölbreytts landslags og landslagsheilda, breytileika jarðminja og jarðhitafyrirbæra, óbyggðra víðerna. |
| Gullfoss | Friðland | 154,90 | X | Vernd landslags, mikilfenglegra jarðminja og gróðurfars. Menningarsögulegt gildi. |
| Herdísarvík | Friðland | 4.218,00 | Vernd lífríkis og minja. | |
| Jörundur | Náttúruvætti | 0,10 | Vernd jarðminja. Dropsteinar. | |
| Kirkjugólf | Náttúruvætti | 0,20 | / | Vernd jarðminja. Stuðlaberg. |
| Oddaflóð | Friðland | 568,40 | Vernd votlendis með miklu fuglalífi. | |
| Pollengi – Tunguey | Friðland | 657,50 | Vernd votlendis og fuglalífs. | |
| Skógafoss | Náttúruvætti | 184,00 | X | Vernd jarðminja og fuglalífs. Fjölsóttur ferðamannastaður. |
| Surtsey | Friðland | 6.500,00 | X | Tryggja að þróun eyjarinnar verði eftir lögmálum náttúrunnar sjálfrar og að truflun af völdum manna verði sem minnst. Á heimsminjaskrá UNESCO. |
| Viðey í Þjórsá | Friðland | 3,37 | Vernd náttúrulegs, lítt snortins og gróskumikils birkiskógar ásamt því lífríki sem honum fylgir. Vernda erfðaeiginleika og erfðafjölbreytileika birkisins og annars gróðurs. | |
| Þjórsárver og Hofsjökull | Friðland | 156.300,00 | Tryggja víðtæka og markvissa verndun gróðurlendis í heild sinni, vistkerfa veranna, rústamýravist, varpstöðvar heiðagæsa, víðernis, sérstakrar landslagsheildar og menningarminja. Ramsarsvæði. | |
| Þjórsárdalur | Landslagsverndarsvæði, Náttúruvætti | 5.800,00 | Vernd landslagsheildar, fossa og gróðurfars. | |
| Svæði friðlýst með sérlögum | ||||
| Mývatn – Laxá | Sérlög | 15.300,00 | X | Vernd líffræðilegrar fjölbreytni á víðáttumiklu vatnasviði ásamt verndun jarðmyndana og landslags með virkri náttúruvernd, einkum með tilliti til vísindalegra, félagslegra og fagurfræðilegra sjónarmiða. Ramsarsvæði. |
| Vatnajökulsþjóðgarður | Sérlög | 1.412.100,00 | X | Vernd náttúru svæðisins, svo sem landslags, lífríkis, jarðmyndana og menningarminja; gefa almenningi kost á að kynnast og njóta náttúru og sögu svæðisins; stuðla að rannsóknum á svæðinu, fræða um það og ýta undir aukinn skilning almennings á gæðum og sérstöðu svæðisins; leitast við að styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nágrenni þjóðgarðsins, m.a. með því að hvetja til sjálfbærrar nýtingar gæða svæðisins. Hluti svæðisins er Ramsarsvæði og stærstur hluti þess á heimsminjaskrá UNESCO. |
| Breiðafjörður | Sérlög | 287.400,00 | X | Stuðla að verndun Breiðafjarðar, einkum landslags, lífríkis, jarðmyndana og menningarminja. |
| Þingvellir | Sérlög | 22.700,00 | X | Vernd náttúru, menningar og sögu. Friðlýstur helgistaður allra Íslendinga sem þjóðgarður. Á heimsminjaskrá UNESCO. |
| Samtals flatarmál friðlýstra svæða | 2.227.811,77 | |||
| Aðrar friðlýsingar | ||||
| Jökulsá á Fjöllum – vatnsafl | Verndarflokkur verndar- og orkunýtingaráætlunar | 225.759,00 | Vernd gegn orkunýtingu í vatnsafli (10MW<). Skörun við önnur friðlýst svæði. | |
| Gjástykki – jarðvarmi | Verndarflokkur verndar- og orkunýtingaráætlunar | 5.200,00 | Vernd gegn orkunýtingu í jarðvarma (50MW<). Skörun við önnur friðlýst svæði. | |
| Þingvallavatn og vatnasvið þess | Sérlög | 130.000,00 | Skörun við önnur friðlýst svæði. |
**Staða stjórnunar- og verndaráætlana: (X)=liggur fyrir, (/)=í vinnslu.
Viðauki II.
Friðlýstar plöntur, dropsteinar og þörungur.
Eftirtaldar plöntur, dropsteinar og þörungur eru friðlýst á grunni laga um náttúruvernd.
Friðaðar plöntur.
Dvergtungljurt ( Botrychium simplex).
Mosaburkni ( Hymenophyllum wilsonii).
Skeggburkni ( Aspelnium septentrionale).
Svartburkni ( Aspelnium trichomanes).
Klettaburkni ( Aspelnium viride).
Tunguskollakambur ( Blechnum spicant var. Fallax).
Hlíðarburkni ( Cryptogramma crispa).
Burstajafni ( Lycopodium clavatum).
Knjápunktur ( Sieglingia decumbens).
Heiðarstör ( Carex heleonastes).
Trjónustör ( Carex flava).
Fitjasef ( Juncus gerardi).
Villilaukur ( Allium oleraceum).
Ferlaufasmári ( Paris quadrifolia).
Eggtvíblaðka ( Listera ovata).
Tjarnblaðka ( Polygonum amphibium).
Línarfi ( Stellaria calycantha).
Flæðarbúi ( Spergularia Salina).
Melasól með hvítum og bleikum blómum ( Papaver raticatum ssp. Stefanssonii).
Vatnsögn ( Grassula aquatica).
Hreistursteinbrjótur ( Saxifraga foliolosa).
Blóðmura ( Potentilla erecta).
Þyrnirós ( Rosa pimpinellifolia).
Glitrós ( Rosa vosagiaca).
Súrsmæra ( Oxalis acetosella).
Tjarnabrúða ( Callitriche brutia).
Skógfjóla ( Viola riviniana).
Davíðslykill ( Primula egaliksensis).
Lyngbúi ( Ajuga pyramidalis).
Hveraaugnfró ( Euphrasia calida).
Mýramaðra ( Galium palustre).
Dropsteinar.
Dropsteinar eru friðlýstar sem náttúruvætti í öllum hellum landsins. Til dropsteinsmyndana teljast bæði dropsteinsdrönglar sem hanga niður úr hellisþökum og niður með hellisveggjum, svo og dropsteinskerti, sem standa á hellisgólfum og syllum hellisveggja.
Þörungur.
Vaxtarform grænþörungsins vatnaskúfs ( Aegagropila linnaei) og er hann friðaður hvar sem hann vex villtur.
1 ust.is/nattura/fridlysingar/
2 www.stjornarradid.is/gogn/rit-og-skyrslur/stakt-rit/2019/12/03/Halendisthjodgardur-skyrsla-nefndar/
3 www.ni.is/midlun/natturuminjaskra#Till%C3%B6gur
4 utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_54.pdf
5 utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_55.pdf
6 www.althingi.is/altext/130/s/1842.html
7 www.althingi.is/altext/138/s/0654.html
8 www.althingi.is/altext/141/s/0892.html
9 ust.is/nattura/natturuverndarsvaedi/fridlyst-svaedi/
10 ust.is/umhverfisstofnun/utgefid-efni/astand-fridlystra-svaeda/
11 ust.is/nattura/stjornunar-og-verndaraaetlanir/
12 ust.is/library/Skrar/utgefid-efni/Verndaraaetlanir/Handb%C3%B3kMars2019.pdf