Ferill 314. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 572  —  314. mál.
2. umræða.



Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tryggingagjald o.fl.).

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ingibjörgu Helgu Helgadóttur, Guðrúnu Ingu Torfadóttur, Hlyn Ingason og Steinar Örn Steinarsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Róbert Farestveit frá Alþýðusambandi Íslands, Bryndísi Gunnlaugsdóttur og Sigurð Ármann Snævarr frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Ernu Bjarnadóttur og Bjarna R. Brynjólfsson frá Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði, Gunnar Val Sveinsson og Bergþór Karlsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Hjalta Brynjar Árnason frá Skattinum, Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur frá BSRB og Jón Þór Þorvaldsson, Sonju Bjarnadóttur, Söru Hlín Sigurðardóttur og Guðmund Þorvarðarson frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna.
    Umsagnir bárust frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, Bandalagi íslenskra leigubifreiðastjóra, BSRB, Félagi íslenskra atvinnuflugmanna, Grænu orkunni, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði, Samtökum ferðaþjónustunnar, Seðlabanka Íslands og Skattinum.

Umfjöllun nefndarinnar.
Aðgengi sveitarfélaga að álagningarskrá.
    Samband íslenskra sveitarfélaga sendi umsögn til nefndarinnar þar sem óskað var eftir því að sveitarfélögum yrði tryggður rafrænn aðgangur að álagningarskrám, annars vegar vegna þess að sveitarfélög þurfi að meta hvort kæra skuli álagningu útsvars og hins vegar til þess að geta fylgst með tekjustofnum og sinnt sinni áætlanagerð.
    Álagningarskrár og skattskrár hafa að geyma persónugreinanlegar upplýsingar um einstaklinga og lögaðila og fjárhagsmálefni þeirra sem njóta verndar 117. gr. laga um tekjuskatt og eftir atvikum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018. Meiri hlutinn telur þarft að sveitarfélög geti fylgst með tekjustofnum sínum. Þó verður að gæta að hagsmunum skattaðila og að miðlunin gangi ekki lengra en nauðsyn krefur. Telur meiri hlutinn vandséð að hagsmunir sveitarfélaga af varanlegri miðlun persónugreinanlegra upplýsinga um fjárhagsmálefni skattaðila til sveitarfélaga geti vegið þyngra en hagsmunir þeirra sem gögnin fjalla um.
    Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að Skatturinn geti miðlað mánaðarlega og endurgjaldslaust til sveitarfélaga upplýsingum um samtímastaðgreiðsluskil með greiningu niður á flokkun atvinnugreina sem útfærð verði með sérstakar þarfir sveitarfélaga í huga og í samræmi við skilyrði 2. mgr. 43. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Meiri hlutinn telur þess háttar miðlun betur til þess fallna að ná framangreindum markmiðum án þess að gengið sé með íþyngjandi hætti á hagsmuni skattaðila.

Breytingartillögur meiri hlutans.
Hækkun á skerðingarmörkum barnabóta (ný grein).
    Meiri hlutinn leggur til í samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið hækkun á neðri skerðingarmörkum tekna vegna barnabóta sem koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda á árinu 2021. Við það munu tekjuskerðingarmörk einstæðs foreldris fara úr 3,9 millj. kr. í 4,2 millj. kr. og hjá hjónum úr 7,8 millj. kr. í 8,4 millj. kr. Efri skerðingarmörk tekna haldast óbreytt, eða 5,5 millj. kr. hjá einstæðu foreldri og 11 millj. kr. hjá hjónum.
    Heildarútgjöld barnabóta árið 2021 eru áætluð 13,3 milljarðar kr. á verðlagi ársins. Gert er ráð fyrir að þær hækkanir sem lagðar eru til á skerðingarmörkum tekjustofns barnabóta leiði til 865 millj. kr. hækkunar á þeim útgjöldum.

Álagningarskrá (brottfall 8. og 9. gr.).
    Með lögum nr. 37/2020 var bætt við lög um tekjuskatt, nr. 90/2003, ákvæði til bráðabirgða þess efnis að Skattinum væri, þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 98. gr., ekki skylt að leggja fram álagningarskrá fyrir hvert sveitarfélag að lokinni álagningu skattaðila á árinu 2020 vegna tekna ársins 2019. Í 8. gr. frumvarpsins er lagt til að ákvæðið verði framlengt og taki til álagningarskrár að lokinni álagningu skattaðila á árinu 2021 vegna tekna ársins 2020. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að mikilvægi ákvæðisins megi rekja til þess fjölda sem gerir sér ferð í afgreiðslu Skattsins við framlagningu álagningarskrár. Tryggja þurfti að Skatturinn geti uppfyllt lögbundnar skyldur sínar en þó tekið tillit til reglna um takmarkanir á samkomum sem og gætt að almennum sóttvarnasjónamiðum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Með sömu rökum er í 9. gr. frumvarpsins lögð til sambærileg undanþága um framlagningu virðisaukaskattsskrár.
    Meiri hlutinn telur ótímabært að slá því föstu að sömu sjónarmið um samkomutakmarkanir og sóttvarnir muni eiga við þegar kemur að framlagningu skránna á árinu 2021. Leggur meiri hlutinn því til að 8. og 9. gr. falli brott en lýsir sig reiðubúinn til þess að taka framangreindar undanþágur til skoðunar gerist þess þörf.

Framlenging bráðabirgðaákvæða samkvæmt lögum nr. 33/2020 (nýjar greinar).
    Með ákvæðum 13., 18. og 26. gr. laga um breytingu á lögum um skatta og gjöld, nr. 33/2020, var bætt við lög um tekjuskatt, lög um staðgreiðslu opinberra gjalda og lög um virðisaukaskatt ákvæðum til bráðabirgða um að álag verði ekki lagt á samhliða sektum í skattamálum á árinu 2020. Ákvæðunum er ætlað að koma í veg fyrir að ágalli geti orðið á málsmeðferð skattrannsóknarstjóra vegna tvíhliða viðurlaga. Fyrir nefndinni liggur frumvarp frá fjármála- og efnahagsráðherra um breytingu á lögum er varða rannsókn og saksókn skattalagabrota (tvöföld refsing, málsmeðferð). Með frumvarpinu er lagt til að ákvæðin verði fest í sessi, þó með nokkrum breytingum sem leiðir af tillögum frumvarpsins. Þar sem ljóst má telja að frumvarpið verði ekki orðið að lögum 1. janúar 2021 er nauðsynlegt að framlengja gildistíma framangreindra ákvæða til bráðabirgða. Leggur meiri hlutinn því til í samráði við ráðuneytið að ákvæðin gildi til 1. maí 2021.

Tímabundnar ívilnanir á vörugjöldum ökutækjaleiga (ný grein).
    Í umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021 (5. mál á yfirstandandi þingi) var gerð grein fyrir vanda ökutækjaleiga vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Lögðu samtökin til að heimilt yrði að lækka skráða losun ökutækja sem ökutækjaleigur flyttu inn um tiltekið hlutfall við útreikning vörugjalds. Í útfærslu Samtaka ferðaþjónustunnar er gert ráð fyrir því að lækkun skráðrar losunar verði ekki háð skilyrðum fyrir árið 2021, en að heimildin framlengist um allt að tvö ár uppfylli ökutækjaleigan skilyrði um að tiltekið hlutfall nýskráðra bifreiða séu vistvænar.
    Meiri hlutinn telur eðlilegt að skapaðir verði tímabundnir hvatar fyrir ökutækjaleigurnar til þess að fjárfesta í vistvænum ökutækjum með það að markmiði að hraða orkuskiptunum. Leggur meiri hlutinn til að við lög um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993, bætist ákvæði til bráðabirgða sem kveði á um að lækka skuli skráða losun koltvísýrings ökutækja sem falla undir 1. mgr. 3. gr. laganna um 30% áður en til álagningar vörugjalds kemur vegna ökutækja sem ætluð eru til útleigu hjá ökutækjaleigum. Lækkunin geti aldrei numið hærri fjárhæð en 400.000 kr. á hvert ökutæki. Lækkunin er háð því skilyrði að ökutækjaleiga skuldbindi sig til þess að kaupa inn vistvænar rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiðar, sem falla undir gildissvið ákvæðis til bráðabirgða XXIV í lögum um virðisaukaskatt, á árunum 2021–2022 sem nemi tilteknu hlutfalli heildarinnkaupa ökutækja, eða 15% árið 2021 og 25% árið 2022.
    Til þess að tryggja skilvirkni úrræðisins og hagsmuni ríkissjóðs er lagt til að ívilnunin verði bundin sambærilegum skilyrðum og kveðið er á um í ákvæði til bráðabirgða XVI í lögunum um sams konar ívilnun sem var í gildi árin 2016, 2017 og 2018. Er því lagt til að ökutæki sem viðkomandi nýtur ívilnunar vegna verði næstu 15 mánuði eftir kaup þessi bundið tilteknum kvöðum er varða notkun og endursölu. Er því lagt til að ökutækin skuli eingöngu nýtt til útleigu hjá ökutækjaleigu sem er skráð fyrir þeim, sé ökutæki notað til annars sé tollyfirvöldum heimilt að innheimta fullt vörugjald samkvæmt aðalflokki 3. gr. með 50% álagi. Ökutækjaleiga getur hins vegar ákveðið að selja ökutæki eða taka það til annarrar notkunar innan 15 mánaða tímabilsins enda greiði hún hluta eftirgefins vörugjalds í réttu hlutfalli við þann tíma sem er eftir af tímabilinu. Þá er lagt til að skilyrði skv. 1. mgr. gildi einnig um ökutæki sem fjallað er um í ákvæði til bráðabirgða XXIV í lögum um virðisaukaskatt í 15 mánuði frá skráningardegi. Því skilyrði er ætlað að tryggja að þau ökutæki sem mynda hlutfall vistvænna ökutækja í innkaupum ökutækjaleigu og eru skilyrði ívilnunar samkvæmt ákvæðinu séu í reynd ætluð til notkunar um einhvern tíma hjá ökutækjaleigu sem nýtur ívilnunarinnar.
    Markmið ákvæðisins er líkt og að framan greinir að hraða orkuskiptum með því að skapa jákvæða hvata fyrir ökutækjaleigur til þess að fjárfesta í vistvænum ökutækjum. Með það markmið í huga og til þess að koma í veg fyrir misnotkun úrræðisins er lagt til að þeim ökutækjaleigum sem ekki standa við skuldbindingu sína um lágmarkshlutfall vistvænna ökutækja verði gert að endurgreiða mismun á vörugjaldi samkvæmt ákvæðinu og fullu vörugjaldi að viðbættu 10% álagi.
    Rétt er að veita tollyfirvöldum ákveðið svigrúm til þess að undirbúa framkvæmd ákvæðisins. Er því lagt til að ákvæðið komi til framkvæmda eigi síðar en 1. febrúar 2021. Ívilnanir samkvæmt því skulu þó gilda þegar frá áramótum.
    Meiri hlutinn bendir á að ráðast þarf í gagngera endurskoðun á laga- og regluumhverfi ökutækjaleiga hér á landi þar sem m.a. verði hugað að kröfum um gerð ökutækja hjá ökutækjaleigum, hagrænum hvötum til að stuðla að vistvænum bílaflota og reglum um hámarksnotkun og lágmarksendurnýjun ökutækja. Hvetur meiri hlutinn til að ráðist verði í heildarendurskoðun á reglum um bílaleigur samhliða gildistöku þess tímabundna úrræðis sem hér er lagt til.

Framhald á stuðningslánum (ný grein).
    Meiri hlutinn leggur til í samráði við ráðuneytið að frestur til að veita stuðningslán samkvæmt lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, verði framlengdur þannig að unnt verði að veita lánin út maí 2021. Einnig verði viðmiðunartímabil vegna tekjufalls framlengt þannig að það geti náð allt að umsóknardegi. Ætla má að umfang aðgerðarinnar samkvæmt útreikningum ráðuneytisins geti numið um 11 milljörðum kr.
    Aðrar breytingar sem meiri hlutinn leggur til eru tæknilegs eðlis og er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.
    Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 10. desember 2020.

Óli Björn Kárason,
form., frsm.
Brynjar Níelsson. Bryndís Haraldsdóttir.
Ólafur Þór Gunnarsson. Willum Þór Þórsson.