Ferill 257. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 277 — 257. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um vernd barna gegn ofbeldi í skólastarfi.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
1. Hvaða úrræði eru í boði til þess að tryggja að börn hljóti þá vernd gegn ofbeldi í skólastarfi sem þau eiga rétt á samkvæmt lögum? Hvaða úrræði hafa virkað best?
2. Hvaða vernd gegn ofbeldi í skólastarfi eiga börn rétt á? Ef þeirri réttindavernd er framfylgt, hve langur tími getur þá liðið frá því að ofbeldi gegn barni í skólastarfi uppgötvast og þar til tekst að stöðva það?
3. Þurfa skólayfirvöld sem vanrækja að vernda börn gegn ofbeldi að sæta viðurlögum, t.d. áminningu starfsmanna eða brottrekstur úr starfi?