Ferill 381. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 488 — 381. mál.
Fyrirspurn
til félags- og barnamálaráðherra um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í samfélaginu.
Frá Guðjóni S. Brjánssyni.
1. Er hafinn undirbúningur að mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í samfélaginu, í samræmi við ályktun Alþingis nr. 43/150?
2. Hverjar verða helstu áherslur og forgangsatriði ráðherra í málaflokknum?
3. Hvenær áætlar ráðherra að stefnan komist til framkvæmda?
Skriflegt svar óskast.