Ferill 417. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 618 — 417. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um dóma Landsréttar.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
Hver er fjöldi dóma Landsréttar í sakamálum árin 2018–2020, flokkað eftir því hvort:
a. fyrri dómur var staðfestur,
b. fyrri dómi var breytt, og þá hvort það var til þyngri eða vægari refsingar,
c. fyrri dóm var snúið, og þá hvort sakfellingu var snúið í sýknu eða sýknu snúið í sakfellingu,
d. um ómerkingu, frávísun eða niðurfellingu var að ræða?
Svar óskast einnig sundurliðað eftir árum og eftir þeim brotaflokkum sem eru tilefni dómanna.
Skriflegt svar óskast.