Ferill 74. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 74 — 74. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um rannsóknir á skeldýrum.
Frá Ingu Sæland.
1. Hversu miklum fjármunum varði Hafrannsóknastofnun árlega til skeldýrarannsókna á árunum 2015–2020?
2. Hvaða verkefni sem lúta að rannsóknum á skeldýrum hafa verið unnin á þessu árabili og hve miklir fjármunir voru veittir í hvert verkefni?
3. Hversu margar ritrýndar greinar um skeldýr eftir sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar hafa birst í alþjóðlegum vísindaritum á framangreindu árabili, hver er titill greinanna og hvar birtust þær?
Skriflegt svar óskast.