Ferill 200. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 306 — 200. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um hlutdeildarlán.
1. Hvað hafa verið veitt mörg hlutdeildarlán frá því að ríkisstjórnin ákvað að koma úrræðinu á fót, sundurliðað eftir mánuðum og tegundum lána, þ.e. 20% eða 30%?
Samkvæmt 2. mgr. 29. gr. a laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, geta hlutdeildarlán numið allt að 20% af kaupverði íbúðarhúsnæðis. Þó er heimilt að veita allt að 30% hlutdeildarlán til einstaklinga, hjóna og sambúðarfólks undir tilteknum tekjumörkum.
Af 301 hlutdeildarláni sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur greitt út eru 249 lán með veðhlutfalli sem er 20% eða lægra, 52 lán eru með veðhlutfalli sem er hærra en 20% og þar af eru 39 lán með veðhlutfall sem nemur 30%.
Í eftirfarandi töflu má sjá fjölda lána eftir mánuðum og árum frá því að úrræðið tók gildi ásamt heildarfjárhæðum lána viðkomandi mánaðar eða árs.
Fjárhæð á mán./ári | Fjöldi lána | |
2020 | ||
Desember | 31.415.000 | 4 |
Samtals 2020 | 31.415.000 | 4 |
2021 | ||
Janúar | 375.201.114 | 43 |
Febrúar | 152.002.000 | 17 |
Mars | 434.934.600 | 50 |
Apríl | 88.010.000 | 11 |
Maí | 209.337.500 | 24 |
Júní | 309.510.604 | 40 |
Júlí | 237.967.779 | 31 |
Ágúst | 191.431.790 | 25 |
September | 220.991.350 | 26 |
Október | 54.870.700 | 7 |
Nóvember | 148.436.400 | 18 |
Desember | 42.850.000 | 5 |
Samtals 2021 | 2.465.543.837 | 297 |
Samtals frá upphafi | 2.496.958.837 | 301 |
2. Hvernig skiptast hlutdeildarlán; sundurliðað eftir sveitarfélögum, fjölda lána og heildarupphæð?
Í eftirfarandi töflu má sjá skiptingu hlutdeildarlána eftir sveitarfélögum, fjölda lána og heildarfjárhæð lánveitinga.
Sveitarfélag | Fjöldi lána | Heildarfjárhæð lána |
Akraneskaupstaður | 11 | 72.482.700 |
Akureyrarbær | 46 | 318.087.350 |
Blönduósbær | 2 | 16.630.000 |
Bolungarvíkurkaupstaður | 1 | 8.200.000 |
Garðabær | 9 | 97.987.000 |
Grindavíkurbær | 1 | 7.600.000 |
Hafnarfjarðarkaupstaður | 11 | 110.317.000 |
Hveragerðisbær | 10 | 80.422.800 |
Hörgársveit | 2 | 15.660.000 |
Ísafjarðarbær | 2 | 14.801.400 |
Kópavogsbær | 8 | 95.232.300 |
Mosfellsbær | 18 | 174.813.900 |
Rangárþing eystra | 2 | 9.400.000 |
Rangárþing ytra | 2 | 11.020.000 |
Reykjanesbær | 65 | 516.948.914 |
Reykjavíkurborg | 80 | 693.539.673 |
Stykkishólmsbær | 1 | 5.740.000 |
Suðurnesjabær | 12 | 103.241.800 |
Sveitarfélagið Árborg | 16 | 131.259.000 |
Sveitarfélagið Ölfus | 2 | 13.575.000 |
Samtals | 301 | 2.496.958.837 |
3. Hvað hafa margir byggingaraðilar skráð sig til samstarfs við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vegna hlutdeildarlána og hvernig skiptist sú skráning eftir sveitarfélögum?
Alls hafa 172 byggingaraðilar skráð sig til samstarfs við HMS vegna hlutdeildarlána. Fjölda skráðra byggingaraðila eftir sveitarfélögum má sjá í eftirfarandi töflu:
Sveitarfélag | Fjöldi byggingaraðila |
Akraneskaupstaður | 9 |
Akureyrarbær | 10 |
Bláskógabyggð | 1 |
Blönduósbær | 1 |
Bolungarvíkurkaupstaður | 3 |
Borgarbyggð | 5 |
Dalabyggð | 1 |
Dalvíkurbyggð | 1 |
Fjarðabyggð | 1 |
Garðabær | 8 |
Grindavíkurbær | 3 |
Hafnarfjarðarkaupstaður | 6 |
Húnaþing vestra | 1 |
Hveragerðisbær | 3 |
Hörgársveit | 3 |
Ísafjarðarbær | 3 |
Kópavogsbær | 3 |
Langanesbyggð | 1 |
Mosfellsbær | 4 |
Múlaþing | 1 |
Mýrdalshreppur | 1 |
Rangárþing eystra | 1 |
Rangárþing ytra | 2 |
Reykjanesbær | 24 |
Reykjavíkurborg | 24 |
Skaftárhreppur | 2 |
Skeiða- og Gnúpverjahreppur | 2 |
Snæfellsbær | 1 |
Stykkishólmsbær | 1 |
Suðurnesjabær | 8 |
Súðavíkurhreppur | 1 |
Sveitarfélagið Árborg | 11 |
Sveitarfélagið Hornafjörður | 2 |
Sveitarfélagið Skagafjörður | 3 |
Sveitarfélagið Vogar | 7 |
Sveitarfélagið Ölfus | 10 |
Tálknafjarðarhreppur | 1 |
Vesturbyggð | 2 |
Vopnafjarðarhreppur | 1 |
Samtals | 172 |