Ferill 337. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 656  —  337. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um samskipti við hagsmunaverði og skráningu þeirra.


     1.      Hafa öll samskipti ráðherra og ráðuneytisins við hagsmunaverði frá 1. janúar 2021 verið skráð eins og kveðið er á um í 2. mgr. 4. gr. laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, nr. 64/2020?
    Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, nr. 64/2020, er stjórnvöldum skylt að skrá upplýsingar um samskipti þeirra og hagsmunavarða í samræmi við ákvæði upplýsingalaga, laga um opinber skjalasöfn og laga um Stjórnarráð Íslands. Upplýsingar um aðkomu hagsmunavarða og annarra einkaaðila að samningu stjórnarfrumvarpa skal tilgreina í greinargerð með þeim. Í 3. mgr. 1. gr. laganna er hugtakið hagsmunavörður skilgreint. Með hugtakinu er átt við einstaklinga sem tala máli einkaaðila gagnvart stjórnvöldum og leitast við að hafa áhrif á störf þeirra í atvinnuskyni. Með því að afmarka hugtakið við einstaklinga eru ýmis félagasamtök og fyrirtæki, sem í daglegu tali eru nefnd hagsmunasamtök, strangt til tekið undanskilin reglum 4. gr. en einstakir starfsmenn þeirra geta hins vegar borið skyldur samkvæmt ákvæðinu. Í skýringum við 4. gr. í greinargerð sem fylgdi frumvarpi því sem varð að lögum nr. 64/2020 segir eftirfarandi:
    „Markmið ákvæðisins er fyrst og fremst að í samskiptum hagsmunavarða annars vegar og handhafa framkvæmdarvalds hins vegar liggi fyrir að þeir fyrrnefndu séu að gæta ákveðinna einkahagsmuna, fyrir hönd annarra, gagnvart þeim síðarnefndu. Ákvæðið á því ekki við þegar einstaklingar gæta opinberra hagsmuna í samskiptum við aðra opinbera aðila, svo sem í samskiptum forstöðumanna ríkisstofnana við fagráðuneyti. Þá á ákvæðið heldur ekki við þegar einstaklingar gæta eigin hagsmuna gagnvart hinu opinbera. Til að mynda þarf fyrirsvarsmaður lögaðila, t.d. framkvæmdastjóri fyrirtækis, ekki að senda sérstaka tilkynningu um að hann gæti hagsmuna þess í samskiptum sínum við stjórnvöld. Annað gildir ef fyrirtækið ræður til sín á eigin kostnað einstakling sem hefur það hlutverk að hafa áhrif á störf stjórnvalda í þágu fyrirtækisins, hvort sem um er að ræða störf samkvæmt verksamningi eða ráðningarsamningi. Samkvæmt framangreindu er ljóst að tilkynningarskyldan mun einkum ná til svonefndra almannatengla, upplýsingafulltrúa einkaaðila og lögmanna, sbr. þó 4. mgr., og til einstakra starfsmanna lögaðila og fulltrúa hagsmunasamtaka sem hafa slíka og sambærilega starfsemi með höndum.“
    Í 2. mgr. 27. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, kemur fram að stjórnvöld skulu gæta þess að haldið sé til haga mikilvægum upplýsingum, m.a. um samskipti við almenning og önnur stjórnvöld, svo sem með skráningu fundargerða eða minnisblaða. Í lögum um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014, kemur enn fremur fram að afhendingarskyldum aðilum samkvæmt lögunum er skylt að skrá mál sem koma til meðferðar hjá þeim á kerfisbundinn hátt og varðveita málsgögn þannig að þau séu aðgengileg í samræmi við reglur sem Þjóðskjalasafni Íslands er falið að setja. Hvað Stjórnarráð Íslands varðar leiðir af 11. gr. laga nr. 115/2011 að ráðuneytum í Stjórnarráði Íslands er skylt að færa skrá um formleg samskipti og fundi, sem og óformleg samskipti ef þau teljast mikilvæg, milli ráðuneytanna sem og við aðila utan þess. Á grundvelli ákvæðisins hafa verið settar reglur um skráningu samskipta í Stjórnarráði Íslands, sbr. reglur nr. 320/2016, en þar segir að með óformlegum samskiptum sé átt við munnleg samskipti, þar á meðal símtöl og fundi, þar sem lýst er afstöðu eða veittar upplýsingar sem teljast hafa þýðingu fyrir mál sem er til meðferðar í ráðuneyti eða teljast mikilvægar upplýsingar vegna málefna sem heyra undir ráðuneytið, enda komi afstaðan ekki fram í öðrum skráðum gögnum. Skrá skal hvenær samskiptin fóru fram, milli hverra og efni upplýsinga sem um ræðir.
    Ekki liggja fyrir upplýsingar um annað en að samskipti forsætisráðherra og forsætisráðuneytis við hagsmunaverði hafi verið skráð í málaskrá ráðuneytisins í samræmi við ákvæði framangreindra laga. Þá má finna upplýsingar um fundi forsætisráðherra með hagsmunavörðum í yfirliti yfir fundi ráðherra í opnum dagbókum.

     2.      Hefur ráðuneytið ávallt gætt þess að kanna hvort hagsmunaverðir, sem ráðuneytið eða ráðherra á hverjum tíma hafa átt samskipti við frá 1. janúar 2021, hafi verið tilkynntir og skráðir skv. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 64/2020 áður en þeir leituðust við að hafa áhrif á störf stjórnvalda?
    Í 3. mgr. 4. gr. laga nr. 64/2020 er mælt fyrir um tilkynningarskyldu hagsmunavarða. Samkvæmt ákvæðinu er hagsmunavörðum skylt að tilkynna um sig og hlutverk sitt áður en hann leitast við að hafa áhrif á störf stjórnvalda fyrir hönd einkaaðila. Áður en hagsmunavörður hefur störf fyrir einkaaðila, þ.e. áður en hann setur sig í samband við stjórnvöld og reynir að hafa áhrif á störf þeirra, ber honum því að tilkynna um sig og hlutverk sitt. Af 7. gr. laganna leiðir að tilkynningu er rétt að beina til forsætisráðuneytisins sem heldur skrá yfir þær en berist tilkynning til annars opinbers aðila, t.d. þess sem ætlunin er að hafa áhrif á, er rétt að framsenda hana til forsætisráðuneytis. Tilkynningin getur bæði lotið að því að hagsmunavörður gæti hagsmuna tiltekins einkaaðila í tilteknu, afmörkuðu og fyrirliggjandi máli og að því að stöðu sinnar vegna gæti hagsmunavörður hagsmuna einkaaðilans í samskiptum sínum við stjórnvöld.
    Þá er lögaðilum og félagasamtökum, samkvæmt sömu málsgrein, heimilt að senda tilkynningu um einstaklinga sem sinna hagsmunagæslu í umboði þeirra. Í tilkynningu skal greina:
     a.      nafn og kennitölu hagsmunavarðar,
     b.      vinnuveitanda og starfsstöð,
     c.      hlutverk, þ.e. fyrir hönd hvaða aðila hagsmunavörður kemur fram og helstu hagsmuni þeirra; taka skal fram hvort hlutverkið er viðvarandi eða tilfallandi og hvenær gert er ráð fyrir að því ljúki.
    Samkvæmt 4. mgr. 4. gr. skal hagsmunavörður tilkynna um þegar hann sinnir ekki lengur hagsmunagæslu. Þá er kveðið á um það í 5. mgr. greinarinnar að þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. sé hagsmunavörðum ekki skylt að tilkynna um sig og hlutverk sitt vegna meðferðar mála á grundvelli stjórnsýslulaga. Samkvæmt framangreindu er það í höndum hagsmunavarða að tilkynna um hlutverk sitt áður en þeir leitast við að hafa áhrif á störf stjórnvalda.
    Í lögum nr. 64/2020 er ekki gert ráð fyrir því að það hafi afleiðingar fyrir þá sem sinna hagsmunagæslu tilkynni þeir sig ekki sem hagsmunaverði. Markmið ákvæða laganna um tilkynningarskyldu hagsmunavarða og skráningu samskipta við þá er fyrst og fremst að auka gagnsæi um samskiptin. Komi einstaklingur fram sem hagsmunavörður gagnvart stjórnvöldum án þess að hafa tilkynnt um hlutverk sitt væri hins vegar rétt af stjórnvaldi að benda á tilkynningaskyldu þar um, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Ekki hefur hingað til verið kannað kerfisbundið hvort þeir sem ráðherra eða ráðuneyti eiga í samskiptum við hafi verið tilkynntir eða skráðir samkvæmt lögum nr. 64/2020.

     3.      Hefur ráðherra eða ráðuneytið í einhverjum tilfellum frá 1. janúar 2021 átt samskipti við aðila sem sinna hagsmunagæslu en höfðu ekki verið tilkynntir og skráðir sem hagsmunaverðir skv. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 64/2020 þegar samskiptin fóru fram? Ef svo er, í hvaða tilfellum og hvers vegna?
    Á degi hverjum á forsætisráðherra og starfsfólk forsætisráðuneytis samskipti við aðila sem sinna hagsmunagæslu af einhverju tagi. Opin dagbók ráðherra ber til dæmis vott um það. Við vinnslu þessa svars var tekið saman hvaða samskipti hafa átt sér stað við hagsmunaverði sem hafa tilkynnt um það hlutverk sitt. Ekki liggja fyrir samanteknar upplýsingar um samskipti við aðila sem sinna hagsmunagæslu en höfðu ekki verið tilkynntir og skráðir sem hagsmunaverðir skv. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 64/2020, þegar samskiptin fóru fram, jafnvel þótt þeim kunni að vera það skylt. Sömu reglur gilda eftir sem áður um skráningu samskipta við slíka aðila óháð því hvort þeir hafi tilkynnt um sig og sitt hlutverk. Þannig var það ekki tilgangur laga nr. 64/2020 að leggja aukna skráningarskyldu á stjórnvöld um samskipti við skráða hagsmunaaðila miðað við það sem almennt gildir um skráningu samskipta. Til stendur að senda bréf til aðila sem sinna hagsmunagæslu í skilningi laganna og árétta tilkynningarskyldu þeirra, en forsætisráðuneytið sendi síðast bréf þar um 23. febrúar 2021. Ef þörf verður talin á verða sett frekari viðmið í reglugerð um það hvenær hagsmunavörðum er skylt að tilkynna um sig og hlutverk sitt skv. 4. gr., sbr. 1. mgr. 8. gr. laganna.

     4.      Hvaða hagsmunaverði í skilningi laga nr. 64/2020 hefur ráðherra eða ráðuneytið átt samskipti við frá gildistöku laganna, hvenær, af hálfu hvaða aðila og um hvaða málefni?

Dags. móttöku erindis/fundar Hagsmunasamtök Hagsmunavörður Efni
4. jan. 2021 Viðskiptaráð Íslands Ari Fenger og Svanhildur Hólm Viðtalsbeiðni til ráðherra – betra regluverk og samráðsvettvangur
7. jan. 2021 Samtök ferðaþjónustunnar Jóhannes Þór Skúlason Áhrif COVID á ferðaþjónustu
12. jan. 2021 Viðskiptaráð Íslands Ari Fenger og Svanhildur Hólm Fundur um hugmyndir um betra regluverk, samráðsvettvang o.fl.
19. jan. 2021 Samtök ferðaþjónustunnar Ágúst Elvar Bjarnason Upplýsingabeiðni – fylgiskjal varðandi fyrirkomulag sóttvarna á landamærum
19. jan. 2021 Samtök fjármálafyrirtækja Katrín Júlíusdóttir Viðtalsbeiðni til ráðherra
15. feb. 2021 Samtök iðnaðarins Sigurður Hannesson og Árni Sigurjónsson Viðtalsbeiðni og fundur um uppbyggingu efnahagslífs eftir heimsfaraldur
17. feb. 2021 Samtök fjármálafyrirtækja Katrín Júlíusdóttir Fundur um málefni SFF
24. feb. 2021 Samtök iðnaðarins Sigurður Hannesson Viðtalsbeiðni til ráðherra
1. mars 2021 Bændasamtök Íslands Vigdís Häsler Beiðni um ávarp á Búnaðarþingi 22. mars 2021
7. apríl 2021 Öryrkjabandalag Íslands Þuríður Harpa Sigurðardóttir Málefni öryrkja og áherslur ÖBÍ
5. maí 2021 Hagsmunasamtök heimilanna Guðmundur Ásgeirsson Þak á verðtryggingu lána heimilanna
17. maí 2021 Hagsmunasamtök heimilanna Guðmundur Ásgeirsson Ályktanir sem má draga af hagnaðartölum bankanna
19. maí 2021 Hagsmunasamtök heimilanna Ásthildur Lóa Þórsdóttir Staða heimilanna á fjármálamarkaði – verðtrygging
25. maí 2021 Bændasamtök Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins Gunnar Þorgeirsson, Halldór Benjamín Þorbergsson og Árni Sigurjónsson Fundur um landbúnaðarkerfið til framtíðar
27. maí 2021 Bændasamtök Íslands Gunnar Þorgeirsson Viðskiptasamningur við Bretland
31. maí 2021 Samtök atvinnulífsins Halldór Benjamín Þorbergsson Ráðningarstyrkir og starfsmannaleigur
8. júní 2021 Hagsmunasamtök heimilanna Ásthildur Lóa Þórsdóttir Fundur um stöðu heimilanna á fjármálamarkaði – verðtrygging
10. júní 2021 Þroskahjálp Árni Múli Jónasson Frumvörp til laga um vernd mannréttinda fatlaðs fólks
28. júní 2021 Samtök ferðaþjónustunnar Skapti Örn Ólafsson Boð til pallborðsumræðna á Ferðaþjónustudeginum 16. september 2021
2. júlí 2021 Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi Heiðrún Lind Marteinsdóttir Fundur um málefni sjávarútvegs
27. okt. 2021 Samtök iðnaðarins Sigurður Hannesson Staða hugverkaiðnaðar og nýsköpunar
27. okt. 2021 Hagsmunasamtök heimilanna Ásthildur Lóa Þórsdóttir Áskorun til ríkisstjórnar og lánveitenda um að halda aftur af vaxtahækkunum
3. nóv. 2021 Samtök iðnaðarins Sigurður Hannesson og Halldór Benjamín Þorbergsson Mótun langtímasýnar Íslands í átt að kolefnishlutleysi
15. nóv. 2021 Öryrkjabandalag Íslands Þuríður Harpa Sigurðardóttir Vegna beiðni Tryggingastofnunar um leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í máli 536/2020 til Hæstaréttar Íslands
6. des. 2021 Viðskiptaráð Íslands Ari Fenger og Svanhildur Hólm Hátíðarfundur
25. jan. 2022 Þroskahjálp Árni Múli Jónasson Langtíma þjónustusamningar við félagasamtök sem sinna mannréttindamálum
2. feb. 2022 Þroskahjálp Árni Múli Jónasson Starfshópur um sjálfstæða innlenda mannréttindastofnun (FOR22010189)
4. feb. 2022 Þroskahjálp Árni Múli Jónasson Þingsályktun um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks – þingmál 21
16. feb. 2022 Samtök atvinnulífsins Eyjólfur Árni Rafnsson Starfshópur um húsnæðismál – skipunarbréf

     5.      Hverjir eru skráðir hagsmunaverðir skv. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 64/2020, hvenær tilkynntu þeir um sig sem hagsmunaverði og fyrir hvaða lögaðila eða samtök sinna þeir hagsmunagæslu?
    Upplýsingar um skráða hagsmunaverði eru birtar á vef Stjórnarráðs Íslands í samræmi við ákvæði 1. mgr. 7. gr. laga nr. 64/2020. Eftirfarandi hafa skráð sig sem hagsmunaverði:
     1.      Gunnar Þorgeirsson, 3. mars 2021, Bændasamtök Íslands.
     2.      Vigdís Häsler, 3. mars 2021, Bændasamtök Íslands.
     3.      Guðrún Vaka Steingrímsdóttir, 3. mars 2021, Bændasamtök Íslands.
     4.      María Jóna Magnúsdóttir, 3. mars 2021, Bílgreinasambandið.
     5.      Ólafur Stephensen, 23. febrúar 2021, Félag atvinnurekenda.
     6.      Guðný Hjaltadóttir, 23. febrúar 2021, Félag atvinnurekenda.
     7.      Páll Rúnar M. Kristjánsson, 23. febrúar 2021, Félag atvinnurekenda.
     8.      Jakob Falur Garðarsson, 25. febrúar 2021, Frumtök, samtök frumlyfjaframleiðenda á Íslandi.
     9.      Kristófer Oliversson, 22. mars 2021, Fyrirtæki í hótel- og gistiþjónustu (FHG).
     10.      Gyða Árný Helgadóttir, 22. mars 2021, Fyrirtæki í hótel- og gistiþjónustu (FHG).
     11.      Ásthildur Lóa Þórsdóttir, 1. janúar 2021, Hagsmunasamtök heimilanna.
     12.      Vilhjálmur Bjarnason, 1. janúar 2021, Hagsmunasamtök heimilanna.
     13.      Guðmundur Ásgeirsson, 1. janúar 2021, Hagsmunasamtök heimilanna.
     14.      Arthur Bogason, 7. apríl 2021, Landssamband smábátaeigenda (LS).
     15.      Örn Pálsson, 7. apríl 2021, Landssamband smábátaeigenda (LS).
     16.      Jóhann Gísli Jóhannsson, 3. mars 2021, Landssamtök skógareigenda.
     17.      Sigrún Hrönn Þorsteinsdóttir, 3. mars 2021, Landssamtök skógareigenda.
     18.      Guðmundur Rúnar Vífilsson, 3. mars 2021, Landssamtök skógareigenda.
     19.      Björn Bjarndal Jónsson, 3. mars 2021, Landssamtök skógareigenda.
     20.      Naomi Bos, 3. mars 2021, Landssamtök skógareigenda.
     21.      Hlynur Gauti Sigurðsson, 3. mars 2021, Landssamtök skógareigenda.
     22.      Ingrid Kuhlman, 18. ágúst 2021, Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð.
     23.      Bjarni Jónsson, 18. ágúst 2021, Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð.
     24.      Hrefna Guðmundsdóttir, 18. ágúst 2021, Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð.
     25.      Steinar Harðarson, 18. ágúst 2021, Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð.
     26.      Sylviane Lecoultre, 18. ágúst 2021, Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð.
     27.      Breki Karlsson, 2. mars 2021, Neytendasamtökin.
     28.      Brynhildur Pétursdóttir, 2. mars 2021, Neytendasamtökin.
     29.      Kristján Þórður Snæbjarnarson, 5. október 2021, Rafiðnaðarsamband Íslands (RSÍ).
     30.      Margrét Halldóra Arnarsdóttir, 5. október 2021, Rafiðnaðarsamband Íslands (RSÍ).
     31.      Axel Sæland, 3. mars 2021, Samband garðyrkjubænda.
     32.      Helga Ragna Pálsdóttir, 3. mars 2021, Samband garðyrkjubænda.
     33.      Óskar Kristinsson, 3. mars 2021, Samband garðyrkjubænda.
     34.      Sigrún Hrafnhildur Pálsdóttir, 3. mars 2021, Samband garðyrkjubænda.
     35.      Þórhallur Bjarnason, 15. september 2021, Samband garðyrkjubænda.
     36.      Óli Björn Finnsson, 15. september 2021, Samband garðyrkjubænda.
     37.      Ragna Sigurðardóttir, 3. mars 2021, Samband garðyrkjubænda.
     38.      Katrín María Andrésdóttir, 3. mars 2021, Samband garðyrkjubænda.
     39.      Hilmar Harðarson, 11. mars 2021, Samiðn.
     40.      Elmar Hallgríms Hallgrímsson, 11. mars 2021, Samiðn.
     41.      Berglind Rán Ólafsdóttir, 3. maí 2021, Samorka.
     42.      Páll Erland, 25. febrúar 2021, Samorka.
     43.      Eyjólfur Árni Rafnsson, 25. febrúar 2021, Samtök atvinnulífsins (SA).
     44.      Halldór Benjamín Þorbergsson, 25. febrúar 2021, Samtök atvinnulífsins (SA).
     45.      Ágúst Elvar Bjarnason, 25. febrúar 2021, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF).
     46.      Baldur Arnar Sigmundsson, 25. febrúar 2021, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF).
     47.      Gunnar Valur Sveinsson, 25. febrúar 2021, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF).
     48.      Jóhannes Þór Skúlason, 25. febrúar 2021, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF).
     49.      Skapti Örn Ólafsson, 25. febrúar 2021, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF).
     50.      Vilborg Helga Júlíusdóttir, 25. febrúar 2021, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF).
     51.      Katrín Júlíusdóttir, 25. febrúar 2021, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF).
     52.      Elvar Orri Hreinsson, 17. mars 2021, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF).
     53.      Jóna Björk Guðnadóttir, 17. mars 2021, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF).
     54.      Kristín Lúðvíksdóttir, 17. mars 2021, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF).
     55.      Margrét Arnheiður Jónsdóttir, 17. mars 2021, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF).
     56.      Yngvi Örn Kristinsson, 17. mars 2021, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF).
     57.      Ólafur Marteinsson, 25. febrúar 2021, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).
     58.      Heiðrún Lind Marteinsdóttir, 25. febrúar 2021, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).
     59.      Sigurður Hannesson, 3. maí 2021, Samtök iðnaðarins (SI).
     60.      Árni Sigurjónsson, 3. maí 2021, Samtök iðnaðarins (SI).
     61.      Jón Ólafur Halldórsson, 24. febrúar 2021, Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ).
     62.      Andrés Magnússon, 24. febrúar 2021, Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ).
     63.      Benedikt S. Benediktsson, 24. febrúar 2021, Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ).
     64.      Sara Dögg Svanhildardóttir, 24. febrúar 2021, Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ).
     65.      Þóranna Kristín Jónsdóttir, 24. febrúar 2021, Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ).
     66.      Svanhildur Hólm Valsdóttir, 26. febrúar 2021, Viðskiptaráð Íslands.
     67.      Ari Fenger, 26. febrúar 2021, Viðskiptaráð Íslands.
     68.      Unnur Helga Óttarsdóttir, 25. október 2021, Landssamtökin Þroskahjálp.
     69.      Árni Múli Jónasson, 14. apríl 2021, Landssamtökin Þroskahjálp.
     70.      Þuríður Harpa Sigurðardóttir, 14. júní 2021, Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ).
     71.      Bergþór Heimir Þórðarson, 14. júní 2021, Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ).
     72.      Eva Þengilsdóttir, 21. október 2021, Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ).