Ferill 489. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1021  —  489. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ákvarðana Vinnumálastofnunar.


     1.      Hversu margar kærur bárust úrskurðarnefnd velferðarmála vegna ákvarðana Vinnumálastofnunar frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2021, sundurliðað eftir árum?
    2016 bárust 37 kærur.
    2017 bárust 59 kærur.
    2018 bárust 39 kærur.
    2019 barst 71 kæra.
    2020 barst 171 kæra.
    2021 bárust 198 kærur.

     2.      Hversu margar af þeim kærum voru vegna ákvarðana í málum á grundvelli:
                  a.      laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006,
                  b.      laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006,
                  c.      laga um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að vera sýktir, nr. 24/2020,
                  d.      laga um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs, nr. 155/2020,
        sundurliðað eftir árum?

    a.    2016 bárust 37 kærur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar.
              2017 bárust 53 kærur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar.
              2018 bárust 37 kærur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar.
              2019 barst 71 kæra á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar.
              2020 bárust 167 kærur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar.
              2021 bárust 195 kærur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar.
    b.    Engar kærur bárust á þessu tímabili á grundvelli laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006.
    c.    Engar kærur bárust nefndinni á grundvelli þessara laga á árunum 2016, 2017, 2018, og 2019, enda höfðu lögin þá ekki tekið gildi. Á árunum 2020 og 2021 bárust þrjár kærur á grundvelli laganna.
    d.    Engar kærur bárust nefndinni á þessu tímabili vegna laga um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

     3.      Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að Vinnumálastofnun tók mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar, sundurliðað eftir árum?
    Árið 2016 var einu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2017 var tveimur málum vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2018 var einu máli vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2019 var þremur málum vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2020 var 18 málum vísað frá á þessum grundvelli.
    Árið 2021 var 22 málum vísað frá á þessum grundvelli.

     4.      Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2016 var 5,1 mánuður.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2017 var 2,6 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2018 var 2,7 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2019 var 3,0 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2020 var 3,3 mánuðir.
    Málsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í árið 2021 var 3,0 mánuðir.

     5.      Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
    2016 var málsmeðferðartími í 83% mála lengri en þrír mánuðir.
    2017 var málsmeðferðartími í 29% mála lengri en þrír mánuðir.
    2018 var málsmeðferðartími í 32% mála lengri en þrír mánuðir.
    2019 var málsmeðferðartími í 42% mála lengri en þrír mánuðir.
    2020 var málsmeðferðartími í 68% mála lengri en þrír mánuðir.
    2021 var málsmeðferðartími í 65% mála lengri en þrír mánuðir.

     6.      Hversu oft hefur Vinnumálastofnun höfðað dómsmál til að fá úrskurði nefndarinnar hnekkt, sundurliðað eftir árum og á grundvelli hvaða laga hin kærða ákvörðun var tekin?
    Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun hefur stofnunin aldrei höfðað mál til þess að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt.